23.10.2022 | 16:37
Kaflaskipti í virkjanasögunni
Ef yfirvöld hér ætla að hleypa vindmyllutindátum á íslenzka náttúru, þá hefja þau þar með svartan kafla í virkjanasögu landsins. Ástæðan er sú, að jarðrask á ósnortnum víðernum eða annars staðar og herfileg ásýndarbreyting landsins til hins verra mun ekki vera í neinu ásættanlegu samræmi við ávinningin, sem af bröltinu hlýzt fyrir almenning. Þegar bornir eru saman debet- og kredit-dálkar bókhalds vindmylluþyrpingar í íslenzkri náttúru, stendur eftir einn stór mínus.
Þessu er allt öðru vísi varið með hefðbundnar íslenzkar virkjanir. Þær eru allar í stórum plús, þegar bornir eru saman debet- og kredit-dálkar þeirra að teknu tilliti til landverndar. Nú verða þau, sem lagzt hafa gegn nánast öllum hefðbundnum virkjunum hérlendis, að draga nýja varnarlínu vegna harðvítugrar ásóknar fyrirbrigða, sem engum þjóðhagslegum hagnaði geta skilað að sinni.
Virkjanaandstæðingar verða nú að fara að líta jákvæðum augum á nýtingu innlendra orkulinda fallvatna og jarðgufu og á flutningslínurnar, enda fer nú stöðugt fækkandi km loftlína flutnings og dreifingar í heild sinni, en aftur á móti ættu þessir aðilar nú að beita öllu afli sínu til að koma í veg fyrir stórfellda afurför, hvað varðar jarðrask og ásýnd lands vegna virkjana í samanburði við ávinninginn af þeim.
Fjárhagslegur ávinningur fyrir almenning er enginn af vindmylluþyrpingum, af því að þær munu ekki geta keppt við hagkvæmni hefðbundinna íslenzkra virkjana. Landþörf vindmylluþyrpinga er margföld á við hefðbundnar íslenzkar virkjanir á hverja framleidda raforkueiningu, og ásýndin er fullkomlega herfileg, sama hvar á er litið, enda falla vindmyllurnar eins illa að landinu og hægt er að hugsa sér, öfugt við hefðbundin íslenzk orkumannvirki.
Þau, sem leggjast gegn lögmætum áformum um jarðgufuvirkjun eða vatnsfallsvirkjun, eru að kalla yfir okkur óhamingjuna, sem af vindmylluþyrpingum leiðir. Þar er ekki einvörðungu um að ræða mikið jarðrask, hávaða á lágum tíðnum, sem langt berst, örplastmengun jarðvegs frá vindmylluspöðunum og jafnvel fugladauða, ef höfð er hliðsjón af reynslu t.d. Norðmanna, heldur óhjákvæmilega hækkun rafmagnsreikningsins, og mun keyra þar um þverbak eftir innleiðingu uppboðsmarkaðar dótturfélags Landsnets, sem mun aðeins gera illt verra á Íslandi og verða eins konar verkfæri andskotans í þeirri skortstöðu orku, sem iðulega kemur upp á Íslandi.
Jóhannes Stefánsson, lögfræðingur Viðskiptaráðs, ritar iðulega einn eða með öðrum áhugaverðar og bitastæðar greinar í blöðin. Þann 24. ágúst 2022 birtist í Fréttablaðinu ein þessara greina undir fyrirsögninni:
"Virkjum fallega".
Hann víkur þar að þjóðgarðinum Khao Sok í Tælandi:
"Stöðuvatnið, lífríkið og landslagið hefur gríðarlegt aðdráttarafl, og fyrir vikið er Khao Sok vinsæll ferðamannastaður. En það er nýlega til komið.
Það er ótrúlegt til þess að hugsa, að stöðuvatnið, sem má segja, að sé þungamiðja þjóðgarðsins, er manngert. Það heitir Cheow Larn og þekur um fjórðung garðsins. Vatnið er uppistöðulón Ratchaprapha stíflunnar, sem var tekin í gagnið 1987. Framleiðslugetan er 240 MW af hreinni, endurnýjanlegri orku, sem slagar [upp] í uppsett afl Búrfellsvirkjunar, 270 MW. Þrátt fyrir óspillta náttúru hafði Khao Sok ekki það aðdráttarafl, sem [hann] nú hefur, eftir að stíflan var reist."
Svipaða sögu má segja um margar vatnsaflsvirkjanir heimsins, einnig á Íslandi. Það er alls ekki slæmt í sjálfu sér, að landnotkun breytist, og miðlunarlón eru víða til bóta, hækka grunnvatnsstöðu í grennd, og þar þróast lífríki, enda draga þau til sín ferðamenn.
Góð hönnun gerir gæfumuninn. Einhverjar fórnir eru þó óhjákvæmilegar, þegar vatnsfall eða jarðgufa eru virkjuð, en það má nú á dögum gera þannig, að það, sem í staðinn kemur, vegi upp tapið og jafnvel vel það. Þá hefur verið gætt hófs hérlendis og mannvirki felld vel að landinu. Það virðist og hafa verið gert í þeirri vatnsaflsvirkjun í Tælandi, sem Jóhannes Stefánsson gerir þarna að umfjöllunarefni, og þess var líka gætt við Búrfellsvirkjun og allar aðrar virkjanir á Þjórsár/Tungnaársvæðinu.
"Mannleg tilvera útheimtir orku, hvort sem hún fer fram í hellum eða háhýsum. Orkan er notuð til þess að búa til heimili, vegi, skóla, lyf og lækningatæki. Lífskjör og velferð okkar allra eru enn sem komið er í órjúfanlegu samhengi við orkuna, sem við beizlum. Lífið er orka, og orka er lífið."
Þau, sem leggjast gegn hefðbundnum íslenzkum virkjunum, þótt þær hafi verið settar í nýtingarflokk Rammaáætlunar, hafa annaðhvort ekki áttað sig á þessum almennu sannindum eða þau reyna meðvitað að stuðla að minnkun neyzlu, sem er annað orðalag fyrir lífskjararýrnun. Fulltrúar fyrirtækja hafa tjáð skilning sinn á þessu rökræna samhengi, en fulltrúar launafólks hafa verið furðulega hlédrægir og orðfáir um málefnið m.v. það, sem í húfi er fyrir umbjóðendur þeirra.
Nú er það svo, að Íslendingar eiga úr tiltölulega fleiri virkjanakostum endurnýjanlegrar orku að velja en líklega nokkur önnur þjóð. Þegar af þeirri ástæðu er enn úr mörgum kostum að moða, sem ekki geta talizt ganga á einstök náttúruverðmæti eða verið til verulegra lýta í landinu, eins og samþykktur 3. áfangi Rammaáætlunar um vatnsfalls- og jarðgufuvirkjanir er til vitnis um.
Þess vegna sætir furðu, að yfirvöld séu að íhuga að kasta stríðshanzkanum að meirihluta þjóðarinnar með því að leyfa uppsetningu dýrra, afkastalítilla og forljótra mannvirkja með afar ágengum og áberandi hætti í íslenzkri náttúru. Hér er auðvitað átt við risastórar vindmyllur til að knýja rafala, í mörgum tilvikum á heiðum uppi til að ná í hraðfara vind. Það yrði stílbrot í sögu rafvæðingar á Íslandi að leyfa þau ósköp, sem ekki munu auðga almenning, eins og þó hefur gilt um allar virkjanir á Íslandi fram að þessu, því að þessi fyrirbrigði munu leiða til gjörsamlega óþarfra verðhækkana á rafmagni hérlendis.
"Baráttan við óreiðuna fer fram með inngripum í náttúruna. Það fylgir því samt alltaf fórnarkostnaður að raska óspilltri náttúru. Það veit sennilega enginn nákvæmlega, hver sá fórnarkostnaður var í Khao Sok, og þrátt fyrir mótvægis- og björgunaraðgerðir er ljóst, að fjöldi dýra af ólíkum tegundum lifði framkvæmdina ekki af, enda breytti hún vistkerfi stórs hluta þjóðgarðsins verulega.
Í þessu [tilviki] var ávinningurinn talinn meiri en fórnarkostnaðurinn. Þrátt fyrir allt þrífst fjölbreytt lífríki áfram í Khao Sok. Svæðið tók stakkaskiptum og er í dag gríðarfallegt og laðar að sér fjölda gesta árlega. Tælendingar búa nú einnig yfir hreinni, endurnýjanlegri orku. Þessi orka er svo undirstaða verðmætasköpunar, sem aftur er órjúfanleg forsenda velferðar.
Það skal ósagt látið, hvort virkjunin í Khao Sok hefði getað orðið að veruleika í íslenzku laga- og stofnanaumhverfi. Sennilega ekki. Hvað, sem því líður, má samt færa sannfærandi rök fyrir því, að ákvörðun um að reisa Ratchaprapha stífluna hafi verið skynsamleg, þótt hún hafi ekki verið sársaukalaus."
Það er hægt að reikna út þjóðhagslegt gildi virkjunar, hagvaxtaráhrif hennar og áætluð framleiðsluverðmæti rafmagns frá henni. Ef hún er hagkvæmasti virkjunarkostur landsins, er þjóðhagslegt gildi hennar ótvírætt, en ef rafmagnsvinnslukostnaður hennar er 40-50 % hærri en annarra aðgengilegra kosta, þá er þjóðhagsgildi hennar ekkert, og ætti að hafna henni jafnvel áður en lagt er í vinnu við að meta fórnarkostnaðinn.
Það eru til aðferðir við að meta fórnarkostnað við virkjun, en engin þeirra er einhlít. Landþörf virkjunar í km2/GWh/ár er þó óneitanlega mikilvægur mælikvarði og annar vissulega sá, hversu langt að heyrist í og sést til virkjunar. Allir þessir mælikvarðir gefa til kynna mikla landkræfni vindmylla, og kann hún að vera meðvirkandi þáttur í ásókn erlendra fyrirtækja í framkvæmdaleyfi fyrir vindmylluþyrpingar erlendis, en andstaða almennings við uppsetningu þeirra á landi fer nú vaxandi þar.
"Dæmið um Khao Sok þjóðgarðinn á brýnt erindi við þau okkar, sem hafa bæði áhuga á velferð og náttúruvernd. Það eru líklega flestir Íslendingar, sem falla þar undir. Saga okkar, afkoma og lífsgæði, eru svo nátengd íslenzkri náttúru, að það eru harla fáir, sem skilja ekki mikilvægi hennar. Að sama skapi er sá vandfundinn, sem segist ekki vera umhugað um velferð. En það er ekki síður mikilvægt að skilja, hvað velferð er, og hvernig hún verður til.
Velferð okkar sem þjóðar byggir ekki sízt á gæfu okkar til þess að virkja náttúruöflin til orkuframleiðslu. Það er jafnvægislist að gæta að náttúrunni, en beizla krafta hennar á sama tíma, eins og dæmið um Khao Sok sýnir okkur. Þetta er vel hægt með skynsemi að leiðarljósi, og við eigum aldrei að raska óspilltri náttúru meira en þörf krefur.
Við eigum alltaf að velja þá kosti, sem veita mestan ávinning með minnstum fórnarkostnaði. Það er líka mikilvægt að nýta orkuna skynsamlega, og að sama skapi eru einhverjir hlutar náttúrunnar, sem við viljum af góðum og gildum ástæðum ekki undir neinum kringumstæðum hrófla við."
Þarna hefur lögfræðingurinn mikið til síns máls. Við verðum að ganga út frá því sem gefnu, að nútíma- og framtíðarþjóðfélagið útheimta a.m.k. tvöföldun á virkjuðu afli, ef hér á að vera hægt að halda í horfinu með tekjur á mann, sem nú eru á meðal hinna hæstu í Evrópu, svo að ekki sé nú minnzt á blessuð orkuskiptin og kolefnishlutleysið 2040.
Innan íslenzku verkfræðingastéttarinnar er fólk, sem hefur sérhæft sig í virkjunum við íslenzkar aðstæður, og þetta sama fólk leggur auðvitað metnað sinn í að leggja fram góðar lausnir, sem hafa verið beztaðar (optimised) til að gefa kost á hámarksorkuvinnslu á viðkomandi stað innan ramma hófsamlegrar breytingar á náttúrupplifun á athafnasvæðinu. Sé litið til baka, sést, að íslenzkir arkitektar og verkfræðingar hafa staðið undir kröfum, sem gerðar eru til þeirra um ásýnd mannvirkjanna.
Við val á næsta virkjunarkosti er það gullvæg regla, sem lögfræðingurinn nefnir, að hlutfall ávinnings og fórnarkostnaðar á að vera hæst fyrir valinn kost úr hópi virkjunarkosta, sem virkjunarfyrirtækin leggja fram. Sé þessi gullvæga regla höfð að leiðarljósi, geta yfirvöld hætt að klóra sér í skallanum út af regluverki, sem þau eru að bögglast við að koma á koppinn um vindmylluþyrpingar, því að röðin mun þá ekki koma að þeim fyrr en að a.m.k. tveimur áratugum liðnum.
Undir lokin skrifaði lögfræðingurinn:
"En það er aldrei hægt að fallast á, að það megi ekki undir nokkrum kringumstæðum hrófla við neinum hluta náttúrunnar. Ef náttúran á alltaf að njóta vafans, þá er engin mannleg velferð í boði og rangt að halda öðru fram. Svo öfgakennd afstaða getur ekkert annað leitt af sér en versnandi lífskjör okkar allra til langrar framtíðar. Þá neitum við okkur og afkomendum okkar um lífskjörin, sem við þekkjum í dag. Þeim mun hratt [hraka], nema ófyrirséðar tækniframfarir séu handan við hornið.
Vonandi bíður okkar bylting í orkuframleiðslu, t.d. með kjarnasamruna. Það gæti breytt dæminu verulega. Við getum hins vegar ekki stefnt inn í framtíðina upp á von og óvon um, að það gerist einhvern tímann á næstunni."
Það er nú sennilega styttra í nýja og öruggari kynslóð kjarnakljúfandi orkuvera en samrunavera. Þótt ábyrgðarlaust og glórulaust sé að leggjast gegn nánast öllum virkjanahugmyndum á Íslandi, sé höfð hliðsjón af tilvitnunum í téðan lögfræðing, þá er samt talsverður fjöldi landsmanna í þessum hópum ofstækisfullra náttúruverndarsinna. Mörgum þeirra gengur hrein afturhaldssemi til. Þeir vilja ekki sjá nein mannleg inngrip í náttúruna, sem heitið geti, og þeir eru "mínímalistar" um lifnaðarhætti. Fjölskyldubíllinn er þar á bannlista, og kannski vilja þau innleiða þvottabrettið í stað þvottavélarinnar. Þau hafa talið sér trú um, að stórfelld neyzluminnkun verði að eiga sér stað til að bjarga jörðunni, andrúmsloftinu og lífríkinu. Þessar öfgaskoðanir eru keyrðar áfram sem trúarbrögð, svo að mótrök komast ekki að.
Þjóðfélagið á ekki að færa slíku jaðarfólki og sérvitringum alls konar vopn í hendur til tafaleikja og hindrana á framfarabrautinni. Ein afleiðingin af því er, að ekkert virkjanaleyfi hefur enn fengizt fyrir virkjun, sem leyst getur íslenzkt efnahagslíf úr viðjum orku- og aflskorts. Íslendingar missa þar með af mikilvægri atvinnuþróun í a.m.k. einn áratug og eiga á hættu orkuskömmtun að vetrarlagi, eins og fiskbræðslur, hitaveitur með lítinn eða engan jarðvarma og orkusækinn útflutningsiðnaður fengu að kenna á veturinn 2021-2022. Enginn er bættari með afl- og orkuskorti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.10.2022 | 10:20
Misheppnuð stjórnun Samfylkingar á höfuðborginni
Það er með eindæmum, hversu mislagðar hendur stjórnmálafólki Samfylkingarinnar eru við stjórnun málefna almennings. Þótt vítin séu til að varast þau, vantar ekki gorgeirinn í forkólfana, en þeir (þau) tala gjarna, t.d. á Alþingi, eins og þau hafi öðlazt æðsta sannleik um málefni í almannaþágu, en samt eru svikin loforð og mistök á mistök ofan, það sem upp úr stendur, þar sem þau hafa krafsað til sín völd þrátt fyrir dvínandi fylgi, eins og í Reykjavík.
Pólitískur sjálfstortímingarleiðangur Framsóknarflokksins inn í Ráðhúsið við Tjörnina er reyndar saga til næsta bæjar fyrir flokk, sem annars hefur verið nokkur borgaralegur bragur á undir stjórn Sigmundar og síðar dýralæknisins. Einar, fyrrverandi fréttamaður á RÚV, virkar nú sem blaðafulltrúi læknisins eða öllu heldur búktalari.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er skeleggur gagnrýnandi borgarstjórnarmeirihlutans. Hann reit grein grein í Morgunblaðið 6. október 2022, sem hann nefndi:
"Neyðarástand á húsnæðismarkaði í Reykjavík".
Þar gat m.a. þetta að líta:
"Húsnæðisstefna Samfylkingarinnar og fylgiflokka hennar hefur verið ráðandi í Reykjavík frá því um aldamót. Á þessum tíma hafa vinstri stjórnir í Reykjavík knúið fram stórfelldar hækkanir á húsnæðisverði með ýmsum ráðum, t.d. með lóðaskortstefnu, lóðauppboði, auknu flækjustigi í stjórnsýslu, hækkun margvíslegra gjalda og álagningu nýrra, t.d. hárra innviðagjalda. Allar slíkar aðgerðir eru lóð á vogarskálar hækkandi húsnæðisverðs."
Dettur einhverjum í hug, að þessar gjörðir Samfylkingarinnar, sem skreytir sig með öfugmælunum Jafnaðarmannaflokkur Íslands, þjóni hagsmunum alþýðunnar í borginni ? Allt, sem Samfylkingin tekur sér fyrir hendur, gerir hún með öfugum klónum. Hún hefur alla sína hundstíð daðrað við auðjöfra, sem varð alræmt fyrir Hrun, enda kemst Kjartan Magnússon að eftirfarandi niðurstöðu í framhaldinu:
"Auk þess að stórhækka húsnæðisverð hefur þessi stefna gefið fjársterkum aðilum kost á að sanka að sér byggingarlóðum og [selt] þar íbúðir til almennings á uppsprengdu verði. Þessi stefna felur því í sér þjónkun við fjársterka verktaka og stórfyrirtæki, sem hafa hagnazt um tugi, ef ekki hundruði milljarða ISK vegna húsnæðisstefnu vinstri flokkanna."
Þarna kemur Samfylkingin aftan að almenningi, eins og henni er einni lagið. Hún hagar málum þannig, að markaðurinn geri nýjum kaupendum og öðrum með takmörkuð fjárráð erfitt eða ómögulegt að festa kaup á húsnæði í borginni, en neyðist þess í stað til að flytjast í leiguhúsnæði, þar sem Samfylking einmitt vill hafa almenning. Sjálfsbjargarfólk á meðal almennings er eitur í beinum Samfylkingar, og hún fer ýmsar krókaleiðir gegn því.
Sigurður Oddsson, verkfræðingur, ritaði skorinorða grein í Morgunblaðið 3. október 2022, þar sem hann sýndi fram á, hvernig fúskarar borgarstjórnar í umferðarmálum hefðu eyðilagt meginhugmyndir faglegra hönnuða umferðarflæðis í höfuðborginni. Þarna er um ótrúlega ósvífin skemmdarverk atferlishönnuða að ræða, sem svífast einskis í viðleitni sinni til að skapa farþegagrundvöll fyrir andvana fædda borgarlínuhugmynd sína. Samfélagshönnuðir af þessu tagi eru eitthvert leiðasta fyrirbrigði nútímans, afætur, sem verða borgurunum óhemju dýrir á fóðrum áður en lýkur.
Grein sína nefndi Sigurður:
"Eyðilegging umferðarmannvirkja".
Þar gaf m.a. þetta á að líta:
"Eigendur bíla hafa með skattlagningu og eldsneytisgjöldum byggt Háaleitisbraut og Grensásveg, eins og allt gatnakerfi borgarinnar. Hefur meirihlutinn leyfi til að eyðileggja þessi umferðarmannvirki í þeim tilgangi að tefja umferð."
Nei, auðvitað hefur meirihluti Samfylkingar engan siðferðislegan rétt til slíkrar kúvendingar í skipulagsmálum, enda er hér komið aftan að kjósendum, þar sem engin kynning á þessum klaufaspörkum hefur farið fram fyrir kosningar. Fallandi fylgi Samfylkingar í borginni gefur til kynna óánægju með afkáraleg vinnubrögð hennar í skipulagsmálum umferðar og húsnæðis. Lýðræðið er fótum troðið, því að allt eru þetta óvinsælar ráðstafanir.
"Markvisst hefur verið unnið að því að skemma Bústaðaveginn sem stofnbraut: Við Reykjanesbraut er margbúið að lofa mislægum gatnamótum við Bústaðaveg. Í stað þess að standa við það er nú komið illa hannað hringtorg, sem tefur alla umferð að og frá Bústaðavegi.
Við Grensásveg er komið raðhús svo nálægt Bústaðavegi, að þar verður illmögulegt að hafa Bústaðaveginn 2+2-akreinar. Þannig eru komnir flöskuhálsar á báða enda þess kafla, sem auðvelt var að hafa 2+2."
Skemmdarverk furðudýranna í borgarstjórnarmeirihlutanum í Reykjavík setur þá stjórnmálamenn, sem þannig nota völd sín, í ruslflokk á meðal sveitarstjórnarmanna á Norðurlöndunum. Það er fullkomlega ósiðlegt og ólýðræðislegt að beita skipulagsvaldinu til að binda hendur komandi kynslóða við úrlausn umferðar viðfangsefna borgarinnar, eins og Samfylkingin undir furðuforystu læknisins Dags hefur gert sig seka um. Fyrir vikið er ástæða til að treysta henni ekki fyrir landstjórninni, enda er reynslan af henni þar ömurleg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.10.2022 | 16:51
Fúsk og bruðl í umferðarmálum býður hættunni heim
Nýlega greindi einn ráðherranna frá því í viðtali í fréttum Ríkissjónvarpsins, að í undirbúningi væri að setja upp gjaldtöku á bifreiðir á leið til höfuðborgarinnar, og væri ætlunin með henni að stýra umferðinni framhjá mesta tafatímanum og að fjármagna framkvæmdir, sem eiga að greiða úr umferðarhnútunum. Þótt þessi aðferð sé viðhöfð víða erlendis, er ekki þar með sagt, að hún sé skynsamleg og réttlætanleg hérlendis. Umferðarhnútarnir í Reykjavík eru vegna vanfjárfestinga í umferðarmannvirkjum á stofnleiðum í Reykjavík, en gjöld á bifreiðaeigendur hafa þó ekki lækkað. Það er órökrétt og ósanngjarnt að taka gjald af umferðinni til að fjármagna það, sem vanrækt hefur verið, og að auki að fjármagna allt of viðamikla og dýra Borgarlínu. Strætó á í fjárhagslegum rekstrarerfiðleikum, en tapið af Borgarlínu, sem er "ofurstrætó, sumir segja strætó á sterum, verður fyrirsjáanlega margfalt, því að spár um þróun hlutdeildar Strætó í heildarumferð á höfuðborgarsvæðinu með tilkomu Borgarlínu úr núverandi 4 % í 12 % eru draumórar einir. Borgarlínan er afsprengi fúskara í umferðartæknilegum efnum og stjórnmálamanna, sem haldnir eru slíkri andúð á einkabílnum, að þeir vilja hrekja almenning út úr honum, þarfasta þjóninum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, skrifar iðulega fróðlegar greinar í Morgunblaðið. Ein slík birtist 6. október 2022 undir fyrirsögninni:
"Stefnuleysi og óráðsía".
Hún hófst þannig:
"Núverandi borgarlínutillögur munu aldrei ganga upp. Kostnaður við þá framkvæmd var áætlaður um mrdISK 120, líklega nú kominn í mrdISK 130-140, sem er óheyrilegur og gott dæmi um óráðsíu borgarstjórnarmeirihlutans í fjármálastjórn undanfarin kjörtímabil. Ýmsar borgir, sem upphaflega ætluðu að byggja borgarlínu í háum gæðaflokki, hættu við það og byggðu þess í stað miklu ódýrari borgarlínu, stundum nefnd BRT-Lite [Bus Rapid Transit-innsk. BJo] eða létt borgarlína. Sýnt hefur verið fram á, án þess að gerðar hafi verið athugasemdir, að kostnaður við létta borgarlínu sé rúmar mrdISK 20."
Þórarinn Hjaltason, samgönguverkfræðingur, o.fl. hafa komið fram með þessa Léttlínulausn, sem eru sérreinar hægra megin, en ekki fyrir miðju. Léttlausnin skerðir hvergi venjulegt umferðarflæði, en hætt er við, að Draumóralínan geri það, og hún mun valda gríðarlegri umferðarröskun á framkvæmdatíma.
Það eru engin haldbær rök fyrir því að kasta mrdISK 120 af aflafé almennings út um gluggann í glórulaust gæluverkefni, þegar hið opinbera vanhagar alls staðar um fjármuni. Það er óviðunandi, að hið opinbera ætli nú að forgangsraða fjáröflun sinni til bruðlverkefna, sem engin þörf er á og sem verður viðkomandi sveitarfélögum myllusteinn um háls, þegar kemur að rekstrinum, eins og botnlaus hít Strætó er forsmekkurinn að. Hér hafa fúskarar um samgöngutækni látið eigin forræðishyggju um lifnaðarhætti almennings fengið að ráða för, fólk, sem er svo raunveruleikafirrt, að það gerir sér enga grein fyrir bruðlinu eða er nógu siðlaust til að láta sér það í réttu rúmi liggja.
Þórarinn Hjaltason, samgönguverkfræðingur, skrifaði góða grein í Morgunblaðið 28. september 2022 undir fyrirsögninni:
"Samgöngumál í strjálbýlu landi".
Þar stóð m.a. þetta:
"Þjóðvegir á höfuðborgarsvæðinu hafa líka goldið þess, að vegafé hefur verið af skornum skammti. Á undanförnum áratugum hafa árlegar fjárveitingar til þjóðvega á svæðinu að jafnaði verið um 2 mrdISK/ár, en hefðu þurft að vera 5 mrdISK/ár. Það skýrir, hvers vegna umferðartafir eru óeðlilega miklar á höfuðborgarsvæðinu saman borið við önnur borgarsvæði af svipaðri stærð."
Tekjur ríkisins á þessu tímabili af ökutækjaeigendum hafa verið meiri en útgjöld til vegaframkvæmda- og viðhalds. Í ljósi þess er óásættanlegt, að borg og ríki skuli hafa leyft núverandi umferðarhnútum að myndast í stað þess að t.d. reisa mislæg gatnamót. Borgin á höfuðsök á þessu með því að taka þau út af aðalskipulagi og þvælast fyrir raunverulegum framfaramálum umferðar, t.d. Sundabraut, og til að kóróna vitleysuna hefur áhugafólk um bíllausan lífsstíl vísvitandi og að óþörfu skert umferðarþol gatna borgarinnar með fækkun akreina, þrengingum og álíka ónytjungslegum aðgerðum undir yfirskini umferðaröryggis.
Þetta er fullkomin hræsni, því að þau, sem látið hafa ljósastýrð gatnamót viðgangast á fjölförnum og varasömum gatnamótum, þótt fyrir löngu sé tímabært að setja þar upp mislæg gatnamót, bera ábyrgð á alvarlegum slysum á fólki og stórfelldu fjárhagstjóni. Það er ófært, að ökumenn, sem hafa verið snuðaðir um nauðsynlegar framkvæmdir í öryggisskyni og til tímasparnaðar, eigi nú að borga viðbótar gjald fyrir löngu tímabærar framkvæmdir og að auki fyrir gjörsamlega óþarft bruðlverkefni, sem mun valda bílaumferð auknum vandræðum og soga til sín fjármagn frá öðrum og þarfari verkefnum á höfuðborgarsvæðinu og reyndar um allt land (vegna þátttöku ríkisins).
"Árið 2019 gerðu ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu með sér samgöngusáttmála um, að á 15 ára tímabili, 2019-2034, yrðu byggð samgöngumannvirki á höfuðborgarsvæðinu fyrir mrdISK 120. Þessi framkvæmdapakki er myndarlegt átak að því leyti, að á 15 ára tímabili á að verja jafnmiklu fé og samsvarar hefðbundnu framlagi ríkisins til þjóðvega á svæðinu í 50 ár. Þegar nánar er skoðað, kemur í ljós, að framkvæmdaáætlun sáttmálans mun ekki minnka umferðartafir. Skýringin er einföld. Borgarlínan mun ekki leysa neinn umferðarvanda. Stokkar og/eða jarðgöng eru tvöfalt til þrefalt dýrari en hefðbundnar lausnir með mislægum gatnamótum. Umferðartafir á höfuðborgarsvæðiu munu því halda áfram að aukast, ef ekki er breytt um stefnu."
Það, sem samgönguverkfræðingurinn Þórarinn upplýsir þarna um, er reginhneyksli. Í stað þess að beita beztu verkfræðilegu þekkingu til að hanna lausn á umferðarmálum höfuðborgarsvæðisins, þar sem fjármagnið nýtist bezt til að greiða fyrir umferðarflæðinu og hámarka öryggi vegfarenda, eru fúskarar, draumóramenn og sérvitringar látnir ráða ferðinni. Það verður viðkomandi stjórnmálamönnum til ævarandi hneisu að standa svona að verki.
Þarfri grein sinni lauk Þórarinn þannig:
"Vegna fámennis verðum við að gæta ýtrustu hagkvæmni við uppbyggingu samgönguinnviða. Við höfum einfaldlega ekki efni á rándýrri útfærslu á borgarlínu. Við höfum heldur ekki efni á því að setja þjóðvegi á höfuðborgarsvæðinu að óþörfu í stokka eða jarðgöng. Við þurfum að fara vel með fjárveitingar til samgönguinnviða. Veljum því tillögu SFA (Samgöngur fyrir alla) https://www.samgongurfyriralla.com um létta borgarlínu (BRT-Lite) og höfum Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni."
Þetta eru hógvær lokaorð samgönguverkfræðingsins, en þeim fylgir mikill þungi og undir hvert orð er hægt að taka. Samgöngumál höfuðborgarinnar eru í fullkomnum ólestri, af því að þar hefur verið látið reka á reiðanum og látið hjá líða að beita beztu fáanlegu samgöngutækni til að leita hagkvæmustu lausna, sem þó losa vegfarendur undan umferðarhnútum, auka öryggi vegfarenda og tryggja snurðulaust umferðarflæði um langa framtíð.
Í staðinn sitja íbúar höfuðborgarsvæðisins og aðrir vegfarendur þar uppi með rándýrt örverpi, sem leysir ekki nokkurs manns vanda, en mun valda fjársvelti til margra þarfra verkefna, ef því verður hleypt áfram, eins og yfirvöld borgarinnar berjast fyrir.
Það verður ekki af Samfylkingunni skafið, að hún er trú skortstefnu sinni á öllum sviðum. Hér slær hún 2 flugur í einu höggi: skapar skort á fé til gagnlegra samgönguverkefna og skort á frambærilegum umferðaræðum í Reykjavík, m.a. með úreltum ljósastýrðum gatnamótum í stað mislægra gatnamóta, sem svara kalli nútímans. Stefna Samfylkingarinnar er í raun að stöðugt vaxandi óreiðu, af því að getuna til að standa uppbyggilega og af ábyrgð að málum skortir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2022 | 17:08
Skref aftur á bak - Járnsíða og vindmylluþyrpingar
Að kvöldi 12. október 2022 var haldinn fundur í glæsilegum sal Tónlistarskóla Akraness undir yfirskriftinni: Vindmyllur - fyrir hverja [og] til hvers ? Fundarstjóri var Jón Magnússon, hrl., og fórst honum það vel úr hendi, eins og hans var von og vísa.
Höfundur þessa vefpistils flutti þarna erindið, sem sjá má í viðhengi þessa pistils. Aðrir frummælendur þessa fundar voru Arnar Þór Jónsson, sem kveikti neista baráttuanda í brjósti fundarmanna í nafni sjálfstæðrar hugsunar og leyfis til gagnrýninnar tjáningar með haldföstum rökum, Kristín Helga Gunnarsdóttir, sem sýndi með fjölmörgum fallegum náttúrumyndum úr sveitum Vesturlands, hversu gróft og yfirþyrmandi inngrip í náttúruna um 200 m háar (spaðar í hæstu stöðu) vindmyllur yrðu í náttúru Íslands. Ólafur Ísleifsson rifjaði upp umræðuna, sem varð í landinu í aðdraganda innleiðingar Alþingis á s.k. Orkupakka 3-OP3, lagabálki Evrópusambandsins (ESB) um orkumál, sem hann o.fl. telja á meðal lágpunktanna í sögu Alþingis.
Nú er spurningin sú, hvort, samkvæmt OP3, Íslendingum beri að verða við óskum fyrirtækja af EES-svæðinu um leyfi til uppsetningar vindmylluþyrpinga í landi sínu á forsendum atvinnufrelsis á EES-svæðinu og jafnræðis á milli orkufyrirtækja á Innri markaði EES, enda sé raforkan frá vindmylluþyrpingunum "græn" samkvæmt skilgreiningu ESB. Íslendingum finnst mörgum hverjum lítið til koma þeirrar grænku.
Á þetta kann að reyna fyrir dómstólum, enda mætast í þessu máli stálin stinn. Þetta minnir okkur á, að Íslendingar hafa ekki ætíð talið sér henta að starfa eftir erlendum lagabálkum. Magnús, konungur lagabætir, vildi samræma löggjöf í gjörvöllu norska konungsríkinu, sem var víðfemt og spannaði eyjar úti fyrir Skotlandi, Færeyjar og Ísland, og e.t.v. Dublin og héruðin í kring á Írlandi, en um þetta leyti hafði Skotakonungur líklega náð tökum á fastlandi Skotlands.
Magnús, konungur, lét leggja lögbók sína, Járnsíðu, fyrir Alþingi 1271, en Íslendingar sáu meinbugi við að umturna lagaumhverfi sínu og laga það að norskum rétti. Þá fékk konungur lögfróðan Íslending, Jón Einarsson, til að sníða vankantana af Járnsíðu fyrir Íslendinga, og smíðaði hann nýja lögbók upp úr Grágás og Járnsíðu, sem kölluð var Jónsbók og hlaut samþykki Alþingis 1281 og var lögbók landsins, þar til Íslendingar sóru einvaldskonunginum, danska, hollustueið á Kópavogsfundi 1661. Eftir það breyttist Alþingi að mestu í dómstól.
Hvað sem þessu líður, þá ber Íslendingum nútíðarinnar að vega og meta gaumgæfilega kosti og galla vindmyllanna í íslenzkri náttúru og á íslenzka raforkumarkaðinum. Tilraun til þess er gerð í téðu viðhengi með pistli þessum. Hættan er sú, að þessi óskilvirka og ágenga leið til raforkuvinnslu komi óorði á íslenzkan orkuiðnað og jafnvel orkunotkunina, af því að raforkuvinnslan gangi of nærri landinu og gíni hvarvetna yfir landsmönnum og erlendum gestum þeirra. Það yrði afleit staða fyrir landsmenn að sitja uppi með, og ekkert var fjær forgöngumönnum rafvæðingar Íslands en slíkt. Vindmylluforkólfar eru af öðru sauðahúsi.
Raforkunotkun landsmanna er sú mesta í heimi, og er höfundur þessa vefpistils fyrir sína parta stoltur af því, enda er þessi mikla orkunotkun ásamt sjávarútvegi og ferðaútvegi undirstaða íslenzka velferðarþjóðfélagsins. Varla hefur farið fram hjá nokkrum manni, að hrópað er úr öllum áttum á meira fé úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Við slíkum óskum er ómögulegt að verða án hagvaxtar í landinu. Stækkun hagkerfisins er nátengd aukinni orkunotkun í samfélaginu. Því er tómt mál að stöðva allar nývirkjanir í landinu, þótt sú óskilvirkasta og fórnfrekasta sé látin eiga sig.
Áður var drepið á vindmyllufund á Akranesi. Akraneskaupstaður er velferðarsamfélag, sem stendur traustum fótum í sjávarútvegi og iðnaði á Grundartanga, þar sem öflug útflutningsfyrirtæki nýta mikla raforku. Sjávarútvegurinn íslenzki hefur getið sér gott orð fyrir sjálfbæra nýtingu sjávarauðlindarinnar og gjörnýtingu hráefnisins við framleiðslu á útflutningsvörum.
Nýting íslenzkra orkulinda hefur verið sjálfbær fram að þessu og hófsemi og aðgátar verið gætt, þar sem kappkostað er að fella mannvirkin sem bezt að landinu. Notkun orkunnar hefur verið með glæsilegum hætti, eins og framsæknir auðlindagarðar og tækniþróuð iðnfyrirtæki, þar sem mest munar um álverin þrjú, bera glögglega vitni um.
Hvers vegna jafngilda vindmyllur afturför í þessum efnum ? Það er vegna þess, að vindmyllur eru afkastalítil framleiðslutæki m.v. allan efniviðinn, sem þarf til að fá fram afleininguna MW. Við nýtingu vindorkunnar myndast óhjákvæmilega lofthvirflar. Ef þeir ná til næstu vindmyllu, hraðfellur vinnslugeta hennar, hávaði frá henni eykst og titringur myndast, sem eykur bilanatíðnina umtalsvert. Þess vegna þurfa vindmylluþyrpingar að flæmast yfir margfalt landsvæði á við hefðbundnar íslenzkar virkjanir m.v. sambærilega orkuvinnslugetu, eins og rakið er hér í viðhenginu.
Þessi frumstæða aðferð við raforkuvinnslu er einfaldlega fjarri því að geta réttlætt þær miklu landfórnir, sem háar vindmylluþyrpingar fela í sér. Þjóðhagslegt gildi þeirra er ekkert, af því að aðrir endurnýjanlegir orkukostir í landinu eru miklu hagkvæmari, fjárhagslega.
Það, sem nú eykur ásókn orkufyrirtækja, innlendra og erlendra, í að leggja "ósnortin" íslenzk víðerni undir ferlíki, sem gjörbreyta mundu ásýnd landsins, er ekki sæstrengur, enda styrkir ESB ekki lengur slíkan til Bretlands, heldur uppboðsmarkaður raforku í skortástandi á Íslandi, þar sem eigendur vindorkuþyrpinga munu verða ráðandi fyrir endanlegt verð á markaðinum samkvæmt jaðarkostnaðarreglu OP3. Hér er rétt að hafa í huga, að þrátt fyrir eindregin tilmæli í þá veru í OP3 að innleiða slíkan uppboðsmarkað raforku, er það ekki skylda aðildarlandanna.
Forseti framkvæmdastjórnar ESB hefur nú gefið þetta kerfi upp á bátinn, því að framboðshliðin brást niðri í Evrópu. Á Íslandi er framboðshliðin háð duttlungum náttúrunnar, og þess vegna er innleiðing þessa kerfis reist á misskilningi um áhrif þess á hagsmuni neytenda. Að segjast ætla að innleiða þetta uppboðskerfi raforku í nafni hagsmuna almennings er léleg öfugmælavísa í ljósi skortstöðunnar á markaði.
Þegar í stað á að hætta við afritun úrelts ESB-markaðar hjá dótturfélagi Landsnets og hefja þess í stað þróun á markaðskerfi raforku, sem sérsniðið sé við íslenzkar aðstæður. Hugmynd að slíkri hönnun er þegar fyrir hendi í riti eftir íslenzkan verkfræðing, sérfræðing í orkumálum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.10.2022 | 10:48
Gönuhlaup í loftslagsmálum
Engu máli skiptir fyrir þróun hitastigs á jörðunni, hversu fljótir Íslendingar verða að ná kolefnishlutleysi. Engu að síður hafa leiðandi stjórnmálamenn á Íslandi á borð við forsætisráðherra fyrrverandi og núverandi ríkisstjórnar, Katrínu Jakobsdóttur, beitt sér fyrir því, að Íslendingar verði á undan öðrum þjóðum í heiminum að ná þessu marki. Þetta er sem sagt "futile" eða marklaust markmið. Innihaldsleysið og tvískinningurinn við þessa markmiðssetningu er síðan, að græningjarnir grafa undan þessu markmiði með því að leggjast gegn því, sem er forsenda markmiðsins, að til sé næg áreiðanleg virkjuð orka til að framleiða raforku til að koma í stað jarðefnaeldsneytisins, sem óhjákvæmilegt er að stórminnka notkun á til að ná kolefnishlutleysi. Markmiðið er þannig ómarktækt. Síðan er vaðinn elgurinn í kringum þessi orkuskipti, sem þar að auki eru óraunhæf innan settra tímamarka, af því að nauðsynlegar þróaðar tæknilausnir vantar. Blindur leiðir haltan.
Þann 3. október 2022 birti Morgunblaðið viðtal við forstöðumann Grænvangs, þar sem kenndi ýmissa grasa:
""Loftslagsmál þurfa hvarvetna að vera efst á blaði", segir Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, sem er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. "Græn orkuskipti byggjast á samvinnu fjöldans, þannig að um verkefni ríki samfélagsleg sátt. Umskipti, sem nú eiga sér stað í heiminum, fela í sér mörg sóknartækifæri fyrir Ísland. Munu geta aukið samkeppnishæfni okkar í alþjóðlegu samhengi, en jafnhliða þurfa umskiptin að vera sjálfbær og réttlát. Því eru fram undan spennandi tímar í umbreytingum, þar sem Íslendingar ætla að ná forystu á heimsvísu.""
Hér orkar æði margt tvímælis og annað svo loftkennt, að erfitt er að festa fingur á því. Hvers vegna þurfa loftslagsmál hvarvetna að vera efst á blaði á Íslandi, þótt ljóst sé, að losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi manna hérlendis hafi engin mælanleg áhrif á meinta hlýnun jarðar af mannavöldum og sé ekki umfangsmikil í samanburði við losun náttúrunnar sjálfrar án tilstillis "homo sapiens", m.a. frá eldstöðvum landsins ? Þá hafa landsmenn þegar staðið sig betur en flestar þjóðir aðrar við að sneiða hjá jarðefnaeldsneyti við rafmagnsframleiðslu og upphitun húsnæðis. Hvers vegna liggur svona mikið á, þegar hlutfall jarðefnaeldsneytis í heildarorkunotkun landsmanna er nú þegar lægra (15 %) en víðast hvar annars staðar ?
Hefði forstöðumanni Grænvangs ekki verið nær að hefja mál sitt á nauðsyn þess að leggja traustan og sjálfbæran grunn að orkuskiptum á Íslandi ? Sá grunnur felst í að afla raforku úr vatnsföllum landsins og iðrum jarðar. Á meðan það er ekki gert, er allt tal um hröð orkuskipti hérlendis fleipur eitt. Hér stendur upp á stjórnvöld, því að stofnanir ríkisins hafa ekki verið hjálplegar í þessu tilliti, og nægir að nefna Orkustofnun, sem legið hefur nú á umsókn Landsvirkjunar um virkjanleyfi í Neðri-Þjórsá í hálft annað ár. Þetta heitir að draga lappirnar og stuðla að langvarandi raforkuskorti í landinu, sem hamlar hagvexti stórlega og þar með kjörum almennings og afkomu hins opinbera.
""Orkunýting með virkjunum bætti þjóðarhag. Hún styrkti sjálfstæði þjóðarinnar, skapaði meiri stöðugleika og jók samkeppnishæfni okkar í alþjóðlegu samhengi. Það sama er að gerast núna. Verkefnið í dag er stærra og snýr að öllum heiminum, sbr fyrirheit þjóða um að draga úr mengun og halda hlýnun andrúmsloftsins undir 1,5°C, sbr Parísarsamkomulagið. Stærðargráða viðfangsefna er því allt önnur en áður, auk þess sem lönd og jafnvel atvinnugreinar eru tengdari nú en áður. Orkuöflun og -skipti eru alþjóðleg verkefni.""
Það er jákvætt, að þarna er viðurkennt, að virkjanir landsins eru hornsteinn velmegunarinnar í nútímasamfélaginu á Íslandi, en annað þarfnast skýringa af hendi höfundarins. Hvernig getur orkuskiptaverkefnið verið stærra núna en áður, þegar aðeins 15 % heildarorkunotkunarinnar er úr jarðefnaeldsneyti ? Hvernig leggjum við mest af mörkum á heimsvísu til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda ? Það er með því að virkja sem mest af stöðugum orkulindum landsins til að verða við óskum stóriðjufyrirtækja um ný orkukaup á Íslandi, hvort sem það eru núverandi stóriðjufyrirtæki á landinu eða önnur. Það er hins vegar ekki á döfinni samkvæmt forstjóra Landsvirkjunar á Haustfundi fyrirtækisins í október 2022. Það fer víða ekki saman hljóð og mynd, þegar umræðan snýst um orkumálin á Íslandi, þ.e.a.s. hún er handan raunveruleikans, enda ríkir stöðnun á því sviði, sem mestu máli skiptir; á sviði stórfelldrar nýrrar hagnýtingar náttúrulegra, hefðbundinna orkulinda landsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.10.2022 | 13:31
Hræsni loftslagspredikara
Gríðarlegt magn af metangasi (CH4) hefur mælzt stíga upp frá jarðgaslindum Rússa og talsvert er um leka á löngum lögnum, sem lítið virðist vera gert með. Þeir, sem létu sprengja í sundur báðar Nord Stream 1 lagnirnar og aðra Nord Stream 2 lögnina, ekki fjarri þverun nýrrar norskrar gaslagnar til Póllands á þessum lögnum [var hún e.t.v. skotmarkið ?], víluðu ekki fyrir sér að valda umhverfisslysi í lögsögu Danmerkur og Svíþjóðar í september 2022 og valda hættuástandi fyrir sæfarendur á Eystrasalti. Nú streymir sjór inn um rifurnar, sem mynduðust, og mun tæring gera skemmdu lagnirnar 3 af 4 ónothæfar.
Norðmenn eru nú aðaleldsneytisgasbirgjar Bretlands og Evrópusambandsins og sjá ESB fyrir 25 % af núverandi þörf. Á sama sólarhring og skemmdarverkið var unnið, var ný gaslögn frá borpöllum Norðmanna úti fyrir ströndinni og um Danmörku alla leið til Póllands tekin í notkun. Þær kenningar eru á lofti, að hin kaldrifjaða aðgerð úti fyrir Borgundarhólmi sé undan rifjum Kremlar runnin í ógnunarskyni við þennan mikilvægasta eldsneytisbirgi frjálsrar Evrópu um þessar mundir.
Björn Lomborg, forseti Kaupmannahafnarhugveitunnar, ritaði eina af athyglisverðum greinum sínum í Morgunblaðið 8. ágúst 2022 undir fyrirsögninni:
"Að leika sér með líf annarra".
Þar stóð m.a. þetta:
"Þjóðverjar endurræsa kolaorkuver sín á meðan Spánverjar og Ítalir tala fyrir aukinni gasframleiðslu í Afríku. Þá er fjöldi Evrópuríkja, sem beðið hafa Botsvana að auka afköstin í kolanámum þarlendum, slíkur, að reikna má með þreföldun í umfangi kolaútflutnings þaðan.
Einn einasti þegn [á] meðal auðþjóða notar meira jarðefnaeldsneyti en samsvarar þeirri orku, sem stendur 23 Afríkubúum til boða. Auður þessara þjóða spratt af umfangsmikilli vinnslu jarðefnaeldsneytis, sem um þessar mundir sér þeim fyrir rúmlega 3/4 þeirrar orku, sem þær nota. Innan við 3 % orku auðþjóðanna rekja uppruna sinn til framleiðslu með sólskini og vindi."
Það er sláandi og varpar ljósi á rangar og óskilvirkar fjárfestingarákvarðanir að setja gríðarupphæðir, oftast með styrkjum úr opinberum sjóðum, í efnismiklar og landfrekar vindmyllur og sólarhlöður, sem þó skila innan við 3 % af orkuvinnslu s.k. auðugra þjóða nú, þegar hæst á að hóa. Forgangsröðunin er kolröng. Nær hefði verið að setja allt þetta opinbera fé í rannsóknir og þróun á kjarnorkutækninni, öruggari tækni með úraníum kjarnakljúfum og þóríum kjarnorkuverum. Vindmyllur eru frumstæð og óskilvirk aðferð við raforkuvinnslu. Þá var glapræði að afhenda Rússlandi allan spilastokkinn og banna jarðgasvinnslu ("fracking") og kjarnorkuver víða í Evrópu. Klóför græningjanna eru alls staðar sama markinu brennd. Til lengdar skaða þau vestræn samfélög. Annars staðar er lítið hlustað á bullið í þeim. Það á ekki að halda dýrum og óáreiðanlegum orkukostum að þjóðum, sem eiga langt í land með að byggja upp raforkukerfi sitt, og það er argasta hræsni að gera það í nafni loftslagsvár. Þessi mistök eru af svipuðu bergi brotin og þau að flýta orkuskiptum á Vesturlöndum, þótt tæknin sé ekki komin á viðunandi stig fyrir þau.
"Nú er lag að rifja upp reynslu indverska þorpsins Dharnai, sem Grænfriðungar einsettu sér árið 2014 að gera að fyrsta sólarorkusamfélagi landsins.
Augu allra fjölmiðla stóðu á Grænfriðungum, þegar þeir lýstu því yfir, að Dharnai neitaði að "falla í gildru jarðefnaeldsneytisiðnaðarins". Daginn, sem skipt var yfir í sólarorku, tæmdust rafhlöðurnar svo á fáeinum klukkustundum. Eftirminnileg er frásögn af dreng nokkrum, sem gat ekki sinnt heimanámi sínu, þar sem rafmagnið dugði ekki til að knýja eina lampa heimilisins.
Þorpsbúum var bannað að nota kæliskápa sína og sjónvarpstæki, þar sem raforkukerfið stæði ekki undir notkuninni. Ekki var heldur hægt að nota rafknúnar eldunarhellur, svo [að] fólkið neyddist til að snúa aftur í hitun með eldiviði, sem olli skelfilegri loftmengun. Um gervöll þróunarríkin deyja milljónir úr innanhússmengun, sem að mati Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar jafnast á við að reykja 2 pakka (af vindlingum] á dag."
Þetta er gott dæmi um skelfilegar afleiðingar þess að hleypa forræðishyggjufólki í hópi fúskara um orkumál að ákvarðanatöku. Þeir skoða engin mál til hlítar, vita vart, hvað áhættugreining felur í sér, en láta stjórnast af blindu hatri á því, sem þeir ímynda sér, að sé hættulegt, í þessu tilviki jarðefnaeldsneyti og í öðrum tilvikum kjarnorkan. Þess eru líklega engin dæmi, að ráð hjátrúarfullra fúskara hafi gefizt vel á nokkru sviði, sem skipta samfélag manna máli. Svipuðu máli gegnir um braskara, sem nota vilja uppboðsmarkað raforku til að græða. Í Noregi ætlar ríkisstjórnin að lina þjáningar raforkukaupenda með niðurgreiðslum á raforkukostnaði, en engu að síður er búizt við mikilli viðarbrennslu á norskum heimilum í vetur til upphitunar húsnæðis. Um rafmagn geta ekki gilt sömu viðskiptalögmál og um vörur, því að það er ekki hægt að safna saman og geyma í umtalsverðum mæli.
"Rafmagn, framleitt með sól og vindi, getur ekki staðið undir iðnaðarframleiðslu né knúið vatnsdælur, dráttarvélar og aðrar vélar - allt það, sem þörf er á til að leysa fólk úr fjötrum fátæktar. Eins og auðþjóðunum er nú að skiljast, eru þessir orkugjafar í grundvallar atriðum ekki til að treysta á. Sólarleysi og logn táknar rafmagnsþurrð. Rafhlöðutækni býður heldur engin svör. Þær rafhlöður, sem til eru í heiminum í dag, nægðu eingöngu til að standa undir orkunotkun heimsbyggðarinnar í 1 mín og 15 sek. Jafnvel árið 2030, í kjölfar umfangsmikillar rafhlöðuframleiðslu, yrði þessi tími ekki orðinn [lengri] en tæpar 12 mín. Til hliðsjónar má hafa vetur í Þýzkalandi, þegar sólarorkuframleiðsla er hvað minnst. Á sama tíma tíma koma [a.m.k.] 5 daga [samfelld] tímabil, rúmar 7000 mín, þegar framleiðsla vindorku er við 0."
Það liggur í augum uppi, að téðir orkugjafar einir og sér eru ónothæfir fyrir notendur, sem reiða sig á áreiðanlega raforkuafhendingu, þegar þeir þurfa á henni að halda, hvenær sem er sólarhringsins. Þar er komið að þeim eiginleikum raforkunnar, sem peningaumsýslumenn, sem hannað hafa markaðskerfi margra landa með raforku, og græningjar, sem predika bráðan heimsendi vegna losunar koltvíildis við bruna jarðefnaeldsneytis, hafa flaskað á: raforkuna verður að framleiða á sama andartaki og aflþörfin í tengdum búnað myndast. Annars rýrna gæði rafmagnsins til allra tengdra notenda á áhrifasvæði skortsins, og hætta getur myndazt á kerfishruni, ef ekki er brugðizt skjótt við.
"Hér eru komnar skýringarnar á því, hvers vegna auðugri þjóðir heimsins munu áfram reiða sig á jarðefnaeldsneyti um áratugi. Alþjóða orkustofnunin spáir því, að jafnvel þótt öll loftslagsumbótaloforðin verði efnd, muni jarðefnaeldsneyti enn verða uppspretta 2/3 hluta orku þessara þjóða árið 2050. Þróunarríkjunum dylst ekki hræsnin í orkuumræðunni, og e.t.v. hefur enginn orðað hlutina haganlegar en Yemi Osanbajo, varaforseti Nígeríu: "Engum í heiminum hefur auðnazt að iðnvæðast með endurnýjanlegri orku einni saman, [þó hafa Afríkuþjóðirnar] verið beðnar að gera það, þótt öllum öðrum í heiminum sé fullkunnugt, að við þurfum gasdrifinn iðnað fyrir viðskiptalífið.""
Þessi alhæfing Nígeríumannsins er röng. Svisslendingar, Norðmenn og Íslendingar iðnvæddust með því að knýja iðnverin með raforku úr vatnsaflsvirkjunum, og það má örugglega finna fleiri slík dæmi. Mikið óvirkjað vatnsafl er enn í Afríku, en sá hængur er á þessum virkjunum, að söfnun vatns í miðlunarlón bregst oftar í Afríku en í Noregi og á Íslandi. Þar með er kominn upp óstöðugleiki á framboðshlið, sem atvinnulífið má ekki við. Það er þó himinn og hafa á milli óstöðugleika raforkuframboðs frá vindorkuverum og sólarhlöðum annars vegar og vatnsorkuverum, a.m.k. hér norðan Alpafjalla, þar sem spáð er vaxandi úrkomu með auknum hlýindum.
Að setja upp vindorkuver á Íslandi er meinloka. Vindorkuver mundu hérlendis hafa hækkunaráhrif á raforkumarkaðinn, og þau draga úr aðdráttarkrafti íslenzkrar náttúru á innlenda og erlenda ferðamenn vegna augljósra lýta á landinu langar leiðir og óþægilegs hávaða. Vatnsaflsvirkjanir og jarðgufuvirkjanir hafa hins vegar aðdráttarafl fyrir ferðamenn víða. Í upphafi skyldi endirinn skoða, en ekki apa allt eftir útlendingum, þótt þar séu aðstæður ósambærilegar orkuaðstæðum á Íslandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2022 | 10:50
Sókn eftir vindi
Vindorkuforkólfar sækja nú í sig veðrið og reyna að fá aukinn byr í seglin sökum þess, að orkustjórnkerfi landsins hefur brugðizt þeirri frumskyldu sinni að útvega þjóðinni næga orku hverju sinni til að halda uppi háu atvinnustigi í landinu og hagvexti. Þessa ásókn mátti t.d. greina í Morgunblaðinu 21. september 2022 undir fyrirsögninni:
"Tugmilljarða tekjur af vindorku".
Þar er greining á efnahagslegum áhrifum þessarar uppbyggingar, sem munu hafa komið fram í kynningu í Hljóðakletti í Borgarnesi 19.09.2021. Um er að ræða 9 vindorkuver á Vesturlandi að uppsettu afli 687 MW og orkuvinnslugetu 2885 GWh/ár á vegum Qair, Hafþórsstaða, Zephyr og EM Orku. Þessar tölur gefa til kynna áætlaðan nýtingartíma á fullu afli í 4200 klst/ár eða 48 % á ári að jafnaði, sem er ólíklegt að náist, enda verður að reikna með viðhaldstíma og viðgerðartíma, sem lækka munu þennan meðalnýtingartíma.
Ólíkt öðrum þjóðum hafa Íslendingar val um tvenns konar endurnýjanlegar orkulindir auk vindorku, og gefa þær báðar kost á ódýrari raforku en hægt er að fá úr vindorkunni. Vinnsla raforku með smáum og gríðarlega plássfrekum rafölum mun því fyrirsjáanlega hækka rafmagnsverð til almennings á Íslandi og mynda óeðlilega háan gróða hjá eigendum vatnsorkuvera og jarðgufuvera, þegar áform dótturfélags Landsnets um innleiðingu raforkukauphallar að hætti Evrópusambandsins (OP3) hafa rætzt. Þar ræður jaðarverðið, þ.e. næsta verðtilboð ofan þess hæsta, sem tekið er, ákvörðuðu verði fyrir tilboðstímabilið. Jaðarverðtilboðið mun væntanlega koma frá vindmylluþyrpingum, og þannig munu vindmyllueigendur verða mótandi fyrir verðmyndun á markaði, sem er fullkomlega óeðlilegt hérlendis.
Það er þó af landverndarástæðum, sem ótækt er að hleypa vindorkuframkvæmdum af stað í íslenzkri náttúru fyrr en samanburðarathugun hefur farið fram á milli virkjanakosta um landþörf í km2/TWh endingartímans (búast má við, að landþörf fyrir 687 MW vindmyllur nemi 35 km2). Þótt Ísland sé ekki þéttbýlt, eru landsmenn viðkvæmir fyrir gjörbreyttri landnýtingu, eins og orkulindanýting úr náttúru Íslands felur í sér. Þess vegna hlýtur þessi kennistærð, km2/TWh (landþörf m.v. orkuvinnslu á endingartíma virkjunar) að vega þungt, og þar með er hægt að skipa landfrekustu orkuverunum á orkueiningu aftast í röð við leyfisveitingar. Þar virðast vindorkuverin munu skipa sér í þéttan hnapp. Með sama hætti má reikna út kolefnisspor virkjunar með því að taka tillit til framleiðslu á helztu hlutum hennar, uppsetningar og rekstrar. Fljótt á litið skipa vindorkuverin sér þar efst á blað, og ekki bætir plastmengun spaðanna umhverfis vindmyllurnar úr skák. Vindmyllur eru þá ekki sérlega umhverfisvænar, þegar allt kemur til alls.
Hraði mylluspaðaendanna er svo mikill, að fuglar eiga erfitt með að forðast þá, ef þeir eru í grennd. Þessi mikli hraði veldur hvirflum og miklum hávaða, sem berst langar leiðir. Þetta er umhverfisbaggi, sem Íslendingar eiga ekki að venjast frá sínum hefðbundnu virkjunum.
Það er ekkert, sem mælir með leyfisveitingum til raforkuvinnslu af þessu tagi, á meðan fjöldi álitlegra kosta liggur enn ónýttur á formi vatnsafls og jarðgufu. Ásókn vindmyllufyrirtækja eftir framkvæmdaleyfum hérlendis er þess vegna tímaskekkja, og vonandi þurfa landsmenn aldrei að fórna miklu landi undir það gríðarlega umrót, sem vindmyllugarðar hafa í för með sér, enda verður komin ný orkutækni, þegar heppilegir virkjanakostir fallvatns og jarðgufu verða orðnir upp urnir.
Í téðri Morgunblaðsgrein voru tíundaðir tekjustraumar frá 9 vindorkuvirkjunum á Vesturlandi án þess að geta um áætlaðar heildartekjur á tímabilinu 2026-2052. Þeir voru tekjuskattur af raforkuframleiðendum, staðgreiðsla, útsvar til sveitarfélaga, tryggingagjald, umhverfis- og auðlindaskattur, fasteignagjöld og lóðaleiga. Vegna þess að vatnsaflsvirkjanir og jarðgufuvirkjanir eru hagkvæmari rekstrareiningar en vindorkuver með svipaðri orkuvinnslugetu, hér 2885 GWh/ár, og miklu áreiðanlegri aflgjafar, þá er langlíklegast, að í heildina séð verði þessir tekjustraumar hærri frá hinum hefðbundnu virkjunum Íslendinga.
Frambærileg rök fyrir uppsetningu vindorkuvera á Íslandi eiga enn eftir að koma fram í dagsljósið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.10.2022 | 18:23
Iðnaðarframleiðsla í kreppu
Nú hefur hryggjarstykkið í illa ígrundaðri orkustefnu Þýzkalands og þar með Evrópusambandsins (ESB) verið sprengt í sundur í bókstaflegri merkingu og verður líklega aldrei sett saman aftur, því að sjór mun flæða inn í lagnirnar og tæra þær. Þar með er í vissum skilningi líftaugin á milli Rússlands og Þýzkalands brostin, en margir Þjóðverjar sáu hana bæði sem leið til að láta sár gróa eftir hildarleik og blóðugustu bardaga Síðari heimsstyrjaldarinnar á Austurvígstöðvum Þriðja ríkisins og illvirki á báða bóga, þar sem tilraun var gerð til að brjóta rússneska heimsveldið á bak aftur, og til eflingar viðskipta, sem væru báðum í hag. Rússneski björninn trúr útþensluhefð sinni undi hins vegar ekki því, að frelsisandi þjóðanna, sem brutust undan veldi hans við fall kommúnismans 1989-1991, fengi að blómstra. Nú er aftur barizt á banaspjótum í Úkraínu og hermdarverk framið úr kafbáti á botni Eystrasalts í lögsögu Danmerkur og Svíþjóðar. Það mun draga dilk á eftir sér. Sá, sem það framdi, lagði grunninn að átökum Austurs og Vesturs, sem lykta mun með falli annars eða beggja. Ragnarök eru í vændum.
Nú reynir mjög á þolrif Evrópuþjóðanna vegna dýrtíðar, samdráttar hagkerfa og líklegu vaxandi atvinnuleysi, sem við þessar aðstæður getur leitt til gjaldþrots margra fyrirtækja og fjölskyldna. Ofan í þessa stöðu var afar athyglivert að heyra haft eftir kanzlara Þýzkalands, kratanum Olaf Scholz, að nú þætti þýzku ríkisstjórninni brýnt til varnar frelsi Evrópuríkjanna, að þýzki herinn yrði sá stærsti og bezt vopnum búni í Evrópu. Það hefur gerzt áður, en undir öðrum formerkjum, en alltaf er ógnin úr austri undirtónninn.
Skyldi Litla-Napóleóni í Elysée-höllinni ekki hafa svelgzt á, þegar hann frétti þetta ? Það er gefið í skyn, að Evrópumenn verði að taka á sig auknar hernaðarlegar byrðar, því að Bandaríkjamenn muni í náinni framtíð þurfa að einbeita sér að Kyrrahafinu og að aðstoða Taiwan-búa við varnir eyjarinnar. Eftir þessa tímamótayfirlýsingu kanzlarans ætti hann að veita Græningjanum á stóli utanríkisráðherra og landvarnaráðherranum nauðsynlegan stuðning, svo að hinn vaxandi þýzki her veiti nú úkraínska hernum allan þann hernaðarstuðning, sem hann má og rúmast innan samþykkta NATO. Sá stuðningur felur í sér öflugustu þungavopn Bundeswehr á borð við Leophard 2 bryndrekann og loftvarnakerfi. Vesturveldin hljóta líka að drífa í afhendingu Patriot-loftvarnakerfisins til Úkraínu.
Þótt sverfi að Evrópuþjóðunum er það hátíð ein hjá því helvíti, sem Rússlandsstjórn og rússneski herinn hafa leitt yfir úkraínsku þjóðina. Þess vegna má ekki láta deigan síga í allra handa stuðningi við úkraínsku þjóðina, sem úthellir blóði sínu fyrir frelsi sitt og frelsi allrar Evrópu.
Iðnaðarframleiðsla dregst nú saman í Evrópu, og er þar bílaiðnaðurinn ekki undanskilinn. Spurn eftir rafmagnsbílum í Evrópu hefur hríðfallið, af því að nú er rafmagnið á bílana dýrara en jarðefnaeldsneyti m.v. sömu akstursvegalengd. Byggingariðnaðurinn er líka í lamasessi, og af þessum ástæðum hefur spurn eftir áli minnkað tímabundið og þar með álverð á LME-markaðinum í Lundúnum. Það berast hins vegar engar fregnir af fyrirætlunum álveranna þriggja hérlendis um að draga saman seglin, enda er LME-verðið nú um 2100 USD/t Al og spáð hækkandi á næsta ári. Fyrirtæki á borð við ISAL í Straumsvík, sem einvörðungu framleiðir sérpantaða vöru (ekkert selt til endurbræðslu), fær hærra verð en skráð LME-verð.
Þann 21. september 2022 skrifaði Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, atvinnulífsgrein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni:
"Af orkuskorti, álframleiðslu og kolefnisspori".
Hún endaði þannig:
"Evrópsk álframleiðsla nær ekki að standa undir helmingi af eftirspurn eftir áli í Evrópu. Ísland og Noregur eru stærstu álframleiðendur innan Evrópska efnahagssvæðisins, en alls er framleitt ál í 15 Evrópulöndum, þ.á.m. Þýzkalandi og Frakklandi. Hér á landi búa álver við langtímasamninga, sem dregur úr sveiflum og áhættu bæði fyrir álver og innlend orkufyrirtæki. Hagstætt álverð hefur skilað viðsnúningi í rekstri íslenzkra álvera , og hafa orkufyrirtækin einnig notið góðs af því, en þau hafa skilað metafkomu síðustu misserin.
Á síðasta ári [2021] voru útflutningstekjur íslenzks áliðnaðar um mrdISK 300 eða fjórðungur af gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Þar af nam innlendur kostnaður álvera mrdISK 123, en áætla má, að um helmingur af því hafi farið í orkukaup. Keyptar voru vörur og þjónusta fyrir mrdISK 35 af hundruðum innlendra fyrirtækja, laun og launatengd gjöld námu yfir mrdISK 20 til 1´500 starfsmanna, en alls eru bein og óbein störf um 5´000. Þá námu opinber gjöld mrdISK 3,4 og styrkir til samfélagsmála yfir MISK 100. E.t.v. er mest um vert, að losun á hvert framleitt tonn hér á landi er margfalt minni en í Kína, sem framleiðir yfir helming af öllu áli í heiminum. Það munar um íslenzkan áliðnað."
Eftir því sem álframleiðsla á meginlandi Evrópu og í Bretlandi dregst saman vegna ósamkeppnishæfrar orkuvinnslu, eykst mikilvægi íslenzkrar álframleiðslu fyrir evrópskan markað. Staða orkumála í Noregi er um þessar mundir óbjörguleg vegna þess, að raforkuframleiðendur hillast til að flytja raforkuna út um öfluga sæstrengi vegna svimandi hárrar verðlagningar á meginlandinu og Bretlandi. Þar með fá verksmiðjur Noregs enga raforku utan langtímasamninga, og hefur það leitt til framleiðslusamdráttar, t.d. hjá Norsk Hydro. Þessi staða mun halda áfram, þar til jafnvægi næst aftur á milli framboðs og eftirspurnar raforku, eða þar til Norðmenn taka orkumálin í eigin hendur og láta innlenda raforkukaupendur njóta forgangs umfram erlenda, en það er bannað í Orkupakka 3, og ESA-Eftirlitsstofnun EFTA, minnti Norðmenn á það, þegar umræða fór fram um það í Stórþinginu.
Núverandi staða raforkumálanna í Noregi gengur þvert á hefðbundna afstöðu norsku þjóðarinnar til orkulindanna, sem er sú, að þær séu í þjóðareign, og norska ríkið eigi að geta beitt fullveldisrétti sínum til að stjórna nýtingu þeirra. Stjórnvöld Noregs hafa villzt af þeirri leið, sem mótuð var í upphafi, að miða raforkuverð frá virkjun við verðmæti vatnsins í miðlunarlónunum, sem er útreiknað eftir vatnsmagni og árstíma, þ.e. líkum á og kostnaði af völdum tæmingar að vori, ásamt hæfilegum hagnaði til að standa undir fjárfestingum. Árið 1993 var vikið frá þessari þjóðlegu stefnu og stofnað dótturfélag Statnetts, þeirra Landsnets, sem átti að stjórna raforkukauphöll, þar sem heildsöluverðið réðist af framboði og eftirspurn.
Nú er Landsnet statt í þessum sporum, en Norðmenn gengu enn lengra og seldu téð dótturfyrirtæki Statnetts til fjölþjóðlegrar orkukauphallar, Nord Pool. Síðan var rekinn endahnúturinn á valdaafsal norska ríkisins yfir orkulindunum með samþykki Stórþingsins 22. marz 2018 um innleiðingu ESB-orkulöggjafarinnar, sem gengur undir nafninu Orkupakki 3, og felur ACER-Orkustofu ESB, stjórnun millilandaviðskipta á raforku. Þessi óheillaþróun hefur leitt til mikillar dýrtíðar í Noregi og kippt fótunum undan samkeppnisstöðu hluta norsks atvinnulífs.
Hvers vegna í ósköpunum er Landsnet nú að feta þessa óheillabraut ? Rafmagn er undirstaða afkomu almennings í landinu, og landsmenn þurfa nú sízt á að halda afætuvæðingu í þessum geira, sem gera mun rafmagn að viðfangsefni kaupahéðna, sem fá aðstöðu til að maka krókinn án nokkurra verðleika til verðmætasköpunar. Steininn tekur úr, þegar allt þetta umstang er sett á laggirnar undir merkjum hagsmuna almennings. Þetta kerfi er svikamylla, sem malar ekki gull, heldur hrifsar það úr sjóðum fyrirtækja og heimila. Vítin eru til þess að varast þau.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.9.2022 | 18:26
Orkustjórnkerfi í lamasessi
Orkustjórnkerfi Breta (frá dögum Margrétar Thatcher sem forsætisráðherra) og Evrópusambandsins (frá dögum Orkupakka 1 laust fyrir aldamót) er ónothæft við núverandi aðstæður að dómi Úrsúlu von der Layen, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Kerfi þetta lætur aðdrætti frumorkunnar afskiptalausa og gerir bara ráð fyrir því, að eldsneytissalar sjái um að birgja forðabúrin af orku. Þegar stjórnendur Sambandsins og aðildarlandanna í einfeldni sinni og barnaskap veita uppivöðslusömu einræðisríki stöðu forgangsbirgis fyrir frumorkuna, er ekki von á góðu, eins og nú hefur komið í ljós. Nú hafa bæði Nord Stream 1 og Nord Stream 2 verið sprengdar í sundur í lögsögu Danmerkur og Svíþjóðar á botni Eystrasalts.
Á Íslandi er raforkukerfið ekki háð slíkum aðdráttum, heldur er það náttúran sjálf, sem stjórnar aðdráttum frumorkunnar, þ.e. vatnsrennsli í miðlunarlón og jarðgufustreymi inn í forðabúr gufuvirkjananna. Þess vegna er markaðskerfi hagfræðinganna ónothæft fyrir íslenzka raforkukerfið, nema Íslendingar vilji verða fórnarlömb spákaupmennsku með raforku úr orkulindum, sem þjóðin á að mestu leyti sjálf.
Núverandi orkustjórnkerfi hérlendis er líka ónothæft, því að það hefur ekki reynzt þess megnugt að tryggja stækkun kerfisins í tæka tíð og skeikar miklu. Nú þegar er kerfið þanið til hins ýtrasta, en það eru a.m.k. 5 ár, þangað til næsta miðlungsstóra virkjun kemst í gagnið, og Orkustofnun virðist ekkert liggja á við að afgreiða umsókn Landsvirkjunar um virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Embættisfærslan þar á bæ er orðin hneykslanleg.
Á forsíðu Morgunblaðsins 21. september 2022 birtist frétt Baldurs Arnarsonar með eftirfarandi fyrirsögn:
"Skortur á raforku gæti ógnað hagvexti á Íslandi".
Fréttin hófst þannig:
"Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur, segir það geta skapað áhættu fyrir íslenzkt hagkerfi, ef áform um orkuskipti ganga ekki eftir. Sé krafan um græna orku ekki uppfyllt, geti það bitnað á útflutningi íslenzkra sjávarafurða og á flugsamgöngum.
Auka þurfi framleiðslu á raforku um 24 TWh/ár, ef markmið um orkuskipti fyrir 2040 eigi að nást. Í mesta lagi 1/10 hluti þess muni að óbreyttu nást fyrir 2030. Því geti sú staða komið upp, að orka verði skömmtuð á Íslandi.
Þá telur Vilhjálmur vandséð, að orkuskiptin geti gengið eftir án þess að nýta vindorkuna. Ef 20 % orkuþarfarinnar verði aflað með vatnsorku, sem sé raunhæft, en hins hlutans með vindorku, muni það samsvara 800 vindmyllum."
Á meðan hlutdeild endurnýjanlegrar orku af heildarorkunotkun landsmanna er yfir 85 % og langflestar þjóðir eru með miklu minni hlutdeild, eins og fyrirsjáanlegt er a.m.k. næstu 10 árin, er ímyndarvandi útflutningsgreina Íslands, þótt óraunhæf markmið stjórnmálamanna um orkuskipti náist ekki, ímyndun ein. Áhættan er fjárhagslegs eðlis. Þá koma til sektargreiðslur til Evrópusambandsins, sem stjórnmálamenn af ábyrgðarleysi sínu í gáska andartaksins hafa undirgengizt í nafni þjóðarinnar og geta skipt milljörðum ISK. Þá verða atvinnuvegir og heimili líka áfram undir hæl olíuframleiðenda á sveiflukenndum markaði á leið til sólseturs, sem þýðir tilhneigingu til verðhækkana. Aftur á móti er líka áhætta fólgin í því, að allur vélbúnaður á Íslandi sé háður raforkuvinnslu í eldfjalla- og jarðskjálftalandi á borð við Ísland. Það er þó með skynsamlegri uppbyggingu og dreifingu mannvirkja minni áhætta en væri fólgin í því fyrir landsmenn að fá hingað aflsæstreng, sem setja mundi orkumarkaðinn hér upp í loft.
Þessi viðbótar raforka, 24 TWh/ár á 2 áratugum, er áætluð heildar viðbótarþörf til vaxtar og viðgangs hagkerfinu ásamt heildar orkuskiptum. Svartsýni Vilhjálms um orkuskömmtunarástand getur hæglega rætzt á næstu 5 árum, þ.e. fram að fyrstu virkjun í Neðri-Þjórsá, sem virðist verða næsta meðalstóra virkjun (um 100 MW) inn á stofnkerfið. Þessi staða jafngildir falleinkunn núverandi stjórnkerfis raforkumála. Það verður þess vegna að hanna nýtt stjórnkerfi orkumálanna hérlendis, ekki síður en í ESB, en þessi 2 stjórnkerfi verða nauðsynlega ólík, því að aðstæður eru gjörólíkar.
Markaðskerfi raforku fyrir Ísland, sniðið að fyrirmynd ESB, er í hönnun, þótt Úrsúla von der Leyen hafi lýst þetta kerfi úrelt og ónothæft við breyttar aðstæður. Ástæða þess, að það er ekki þegar tekið úr sambandi, er, að uppsprengt jarðgasverð veldur uppsprengdu rafmagnsverði vegna þeirrar reglu þessa kerfis, að verð til neytenda ákvarðast af jaðarverðinu, þ.e. verði næstu kWh, sem beðið er um, og þar með spara allir notendur við sig gas og rafmagn eftir megni.
Það er eitthvað brogað við þennan vindmylluáhuga Vilhjálms. Tölurnar, sem eftir honum eru hafðar þarna, fela í sér stórar vindmyllur, a.m.k. 7,0 MW, sem er aflmeiri vindmylla en nokkur framleiðandi hefur hingað til treyst sér að framleiða fyrir íslenzka markaðinn vegna veðurfarsaðstæðna hér. Ef draumfarir Vilhjálms Egilssonar um 19 TWh/ár raforku frá vindmyllum rætast (Guð forði viðkvæmri íslenzkri náttúru frá öllu því jarðraski, sem þessi frumstæða og óskilvirka aðferð við raforkuvinnslu útheimtir), þá er sýnt, hvað gerist á íslenzka raforkumarkaðinum, sem dótturfélag Landsnets er að bauka við. Vindmyllueigendur munu stjórna raforkuverðinu, því að vindmyllurnar munu mynda jaðarkostnaðinn á markaðinum. Þetta eitt út af fyrir sig mun þá valda um 50 % hækkun heildsöluverðs á raforku til almennings. Hins vegar mun skortstaðan á íslenzka raforkumarkaðinum leiða til miklu meiri hækkana á verðinu til almennings en þetta. Þannig stefnir í algert óefni fyrir íslenzk heimili og fyrirtæki án langtímasamninga um raforkukaup vegna markaðsvæðingar raforkunnar, sem sterklega er mælt með í Orkupakka 3, en verður ekki skylda fyrr en með Orkupakka 4, og sá hlýtur nú að koma til róttækrar endurskoðunar af hálfu framkvæmdastjórnar ESB í ljósi nýlegra orða forseta hennar.
Hvers vegna í ósköpunum leggur dr Vilhjálmur Egilsson upp með 20 % frá vatnsorkuverum og 80 % frá vindorkuverum af 24 TWh/ár fram til 2040, en 0 frá jarðgufuvirkjunum ? Raforkan frá jarðgufuvirkjunum er yfirleitt dýrari en frá vatnsaflsvirkjunum, en ódýrari en frá vindorkuverum, og ólíku er saman að jafna um áreiðanleikann, svo að ekki sé nú minnzt á landverndina, kolefnisfótsporið á GWh að byggingarskeiði meðtöldu, notkun fágætra málma og mengun á rekstrartíma. Með því að nýta alla orkustrauma jarðgufuvirkjunar býður hún upp á alls konar starfsemi, bæði tengda afþreyingu, iðnaði og upphitun húsnæðis. Þær eru yfirburðakostur í samanburði við viðurstyggilegar vindmyllur, sem eru algert neyðarbrauð og óþarfar á orkuríku Íslandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.9.2022 | 11:36
Endurskoðun orkumarkaðar
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), hefur lýst því yfir, að raforkumarkaður ESB sé ónothæfur við núverandi aðstæður. Bragð er að, þá barnið finnur. Forsenda markaðarins var alla tíð sú, að nóg bærist til hans af frumorku, þ.e. aðallega jarðefnaeldsneyti í tilviki ESB.
Aðildarlöndin og bandalagið sjálft hafa hins vegar sýnt skilningsleysi á virkni markaðarins og/eða ábyrgðarleysi með því að veikja framboðshliðina smám saman, þangað til hún hrundi við eina aðgerð einræðisherra austur í Moskvu, sem lokaði smám saman fyrir gasstreymi eftir Nord Stream 1 frá Síberíu til Þýzkalands. Nú eru reyndar eldsneytisgasgeymar í Evrópu um 80 % fullir, og ESB hefur sett Gazprom stólinn fyrir dyrnar með ákvörðun hámarksverðs á gasi, sem mun jafngilda 50 EUR/MWh á raforkuvinnslu úr þessu gasi. Sýnir þessi "gagnsókn" ESB, að "orkuvopnið" hefur snúizt í höndum einræðisherrans og ólígarka hans.
Með samningum Þjóðverja við Rússa um gaskaup eftir Nord Stream 1 & 2 á tiltölulaga hagstæðu verði myndaðist enginn hvati til að setja upp aðstöðu í höfnum Þýzkalands fyrir jarðgas á vökvaformi, LNG, sem er auðvitað mun dýrara. Þar að auki var bannað í Þýzkalandi á dögum Merkel sem kanzlara, líklega 2015, að vinna gas úr jörðu með vökvaþrýsingi (fracking), þótt góð reynsla væri af því í Þýzkalandi áður. Árið 2011 lét þessi sami óheilla kanzlari frá Austur-Þýzkalandi (DDR) draga úr framboði raforku í Þýzkalandi með því að loka kjarnorkuverum og banna alla slíka starfsemi frá árslokum 2022. Á sama tíma var girt fyrir byggingu nýrra kolaorkuvera með loftslagssköttum (gjaldi á CO2) og niðurgreiðslu úr ríkissjóði á orku frá vindorkuverum og sólarhlöðum. Af þessum sökum öllum var orkumarkaður Evrópu orðinn óstöðugur 2022, þegar Rússar hófu ólögmæta og grimmilega útrýmingarherferð sína gegn Úkraínumönnum 24.02.2022, og það gerði út um orkumarkað ESB. Hvað tekur við af honum, veit enginn.
Í þessu ljósi er afar lærdómsríkt að velta fyrir sér, hvernig þróunin gæti orðið í vatnsorkulöndum Evrópu. Það eru víða vatnsorkuver í Evrópu, t.d. í Sviss, Frakklandi og í Austur-Evrópu, en stærsta hlutdeild vatnsorku er þó í Noregi, 89,1 %, og Íslandi, 68,8 %. Þrátt fyrir það, að Norðmenn séu sjálfum sér nægir með raforku með sína 155 TWh/ár framleiðslugetu, hafa þeir orðið fyrir barðinu á orkukreppu Evrópu, þar sem orkuverð hefur víða tífaldazt og samkvæmt framvirkum samningum stefnir heildsöluverð í 1200 EUR/MWh í október 2022 í Þýzkalandi og 2500 EUR/MWh í Frakklandi, en þar fer saman lélegt vatnsár fyrir vatnsorkuverin og mikil og brýn viðhaldsþörf í kjarnorkuverunum. Lág vatnsstaða í miðlunarlónum í Suður- og Austur-Noregi vegna mikillar sölu raforku til Hollands, Þýzkalands og Bretlands, ásamt smitáhrifum um öflugar millilandatengingar við þessi lönd veldur tíföldun raforkuverðs sunnan Þrændalaga m.v. Norður-Noreg. Þetta hefur valdið ólgu í Noregi og niðurgreiðslu ríkisins á heildsöluverði umfram 0,7 NOK/kWh (=9,6 ISK/kWh). Hvaða lausnir sjá frændur okkar í Noregi á þessu viðfangsefni ?
Þann 19. september 2022 hélt Samstarfshópur um breytta orkustefnu mótmælafund framan við Stórþingshúsið í Ósló og samþykkti ályktun til þingsins, sem sjá má í viðhengi með þessum pistli. Þessi samtök leggja m.a. fram eftirfarandi rök fyrir því, að Norðmönnum henti ekki gildandi markaðskerfi raforkunnar:
"Norska vatnsorkukerfið er einstakt með sín miðlunarlón, sem jafna út mismunandi úrkomu eftir árstíðum og jafnvel árum. Það er svo ólíkt öðrum orkulindum á evrópska orkumarkaðinum, að það eitt og sér er næg ástæða til að krefjast aftengingar [við uppboðsmarkað raforku]. Norsk miðlunarlón er ekki hægt að fylla með tankbílum [eins og eldsneytisgeyma Evrópu - innsk. BJo]."
Þetta er rétt og á líka við um Ísland. Þar er enn ekki kominn uppboðsmarkaður raforku, en illu heilli vinnur Landsnet undir stjórn æðsta umboðsmanns ACER (Orkustofu ESB) á Íslandi, sem einnig gegnir starfi forstjóra Orkustofnunar !, að hönnun þessa markaðsfyrirkomulags hefur nú stofnað dótturfélag um tiltækið. Allt er það tímaskekkja. Ótrúlegt er, að ACER þrýsti á þetta núna eftir yfirlýsingu Úrsúlu von der Leyen um ónothæfni fyrirkomulagsins. Hér er íslenzkt ríkisfyrirtæki að færa út kvíarnar almenningi til bölvunar.
Hvað vill téður Samstarfshópur í Noregi fá í staðinn ?:
"Þessar aðgerðir munu gera kleift að koma aftur á verðlagningu raforku, sem notuð er í Noregi, sem reist verði á raunkostnaði við að framleiða og flytja rafmagn með nauðsynlegri viðbót vegna fjárfestinga, endurfjárfestinga [stækkanir - innsk. BJo] og endurbóta ásamt hugsanlegum viðbótum til að hvetja til orkusparnaðar."
Undir þetta skal taka, og þetta á líka við um Ísland undir samræmdri stjórn. Raforka er ekki vara, sem hægt er að geyma í umtalsverðum mæli, heldur verður framleiðslan að haldast algerlega í hendur við notkunina. Þess vegna fer illa, ef reynt er að láta lögmál um vörur gilda um rafmagnið. Um vatnsorkuvirkjanir gildir, að vatn í miðlunarlóni kostar og er verðmæti þess fall af vatnsmagni í lóni og árstíma. Verðmæti þess er ekkert í þessu samhengi, þegar flæðir út úr lóni á yfirfalli, en hátt, þegar það nær ekki að fyllast að hausti. Þannig er verðmætið háð líkindum á tæmingu lónsins, og ætlunin með þessari verðlagningu að koma í veg fyrir tæmingu án þess að grípa þurfi til skömmtunar.
Í stað þessa fyrirkomulags hefur verið gripið til þess ráðs í langtíma orkusölusamningum við stóriðjuna að skipta orkusölunni í tvennt - forgangsorku og ótryggða orku. Forgangsorku má ekki skerða, nema í óviðráðanlegu neyðarástandi, en ótryggðu orkuna má skerða um allt að 50 % á ári samkvæmt ýmsum samningum. Útreikningana á verðgildi vatns í miðlunarlónum er þá hægt að láta stjórna þessum skerðingum, og er slíkt mun gegnsærra fyrir viðskiptavini Landsvirkjunar en nú tíðkast. Vatnsverðmætin mynda "eldsneytisverð" fyrir vatnsaflsvirkjunina, sem verður hluti vinnslukostnaðar raforkunnar.
Svipað fyrirkomulag má viðhafa um jarðgufuna. Þegar tekur að draga niður í gufuforðabúri jarðgufuvirkjana, öðlast gufan verðmæti, og þar með hækkar rekstrarkostnaður viðkomandi virkjunar, sem getur leitt til minni spurnar eftir orku frá henni.
Til að annast útreikninga á orkukostnaði virkjana þarf embætti með aðgang að fjárhag fyrirtækjanna, vatnsbúskap og gufubúskap þeirra. Þessu embætti þarf að fela ábyrgð á því að hindra orku- og aflskort til skamms og langs tíma, en nú eru þau mál í lausu lofti og mikil hætta á, að alvarleg skortstaða komi upp áður en næsta miðlungsstóra virkjun kemst í gagnið. 28.07.2019 lýsti höfundur þessa pistils valkosti við markaðskerfi ESB í skjalinu "Orkupakki #4 og afleiðingar hans" á vegum samtakanna "Orkunnar okkar":
"Samkvæmt orkustefnu ESB [meingölluð fyrir vatnsorkulönd og nú í uppnámi alls staðar-innsk. BJo] á raforkumarkaðurinn að sjá um nægt aflframboð á hverjum stað og tíma, og eldsneytismarkaðir eiga á sama tíma að tryggja nægt orkuframboð. Íslenzkur raforkumarkaður getur hins vegar ekki sinnt hvoru tveggja [duttlungar náttúrunnar ráða orkuframboðinu - innsk. BJo]. Hér þarf (nýtt) fyrirkomulag, sem hentar orkulindum Íslands. Þar er kjarni máls, að ríkið beiti fullveldisrétti sínum til að stofna embætti orkulindastjóra, sem hafi með höndum samstýringu allra virkjana landsins, sem máli verða taldar skipta fyrir orkubúskap landsins, með svipuðum hætti og Landsvirkjun stundar nú innan sinna vébanda. Með vandaðri lagasetningu um embætti orkulindastjóra fái hann í hendur "tól og tæki", sem tryggi, að virkjanafyrirtækin hefji virkjanarannsóknir og virkjanaundirbúning í tæka tíð, svo að nægt framboð raforku verði jafnan mögulegt, vald til að takmarka stærð (uppsett afl) jarðgufuvirkjana á hverju svæði, svo að rýrnun gufuafls verði ekki óhóflega hröð, heldur innan "eðlilegra marka", og jafnframt fái orkulindastjórinn vald til að stýra hæð miðlunarlóna í nafni orkuöryggis.
Lagasetningin um embættið þarf jafnframt að tryggja því aðgang að nægum upplýsingum um allar virkjanir í þessari samræmdu auðlindastýringu á hverjum sólarhring, til að embættið geti gegnt öryggishlutverki sínu. Orkulindastjórinn skal tryggja beztu sjálfbæru nýtingu allra virkjana landsins, sem áhrif hafa á orkubúskap þess, með því að hámarka orkuvinnslu hverrar virkjunar til langs tíma. Lögbundnar ákvarðanir orkulindastjóra skapa orkumarkaðinum ramma, sem hann verður að starfa í frjálsri samkeppni innan. Eðlilegast er að neita að aflétta hinum stjórnskipulega fyrirvara af OP#3, unz færi gefst á að semja um þessa íslenzku útfærslu á réttum vettvangi EES."
Sem kunnugt er var hinum stjórnskipulega fyrirvara létt af samþykki Sameiginlegu EES-nefndarinnar á OP3 haustið 2019 á Alþingi. 21.09.2022 var tilkynnt um ráðningu framkvæmdastjóra nýs dótturfélags Landsnets, sem á að setja á fót og reka heildsölumarkað raforku á Íslandi í anda ESB. Sagt er í leiðinni, að þetta fyrirkomulag eigi að tryggja þjóðinni hagstæðasta verð á hverjum tíma og orkuöryggi. Það þarf kaldrifjaða ósvífni til að halda þessu fram, á sama tíma og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, tilkynnir, að smíða verði nýtt og raunhæfara kerfi, því að núverandi kerfi, það sem Katrín Olga Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri raforkukauphallarinnar, ætlar að sjá um hönnun á hérlendis, stenzt ekki kröfurnar, sem gera verður til þess við núverandi aðstæður. Kerfinu hefur mistekizt að girða fyrir orkuskort og hefur sent raforkuverð til skýjanna í samræmi við jaðarkostnaðinn, sem er kostnaður eldsneytisgasorkuveranna.
Þá kann einhver að benda á, að íslenzka raforkukerfið sé ósambærilegt við hið evrópska. Það er einmitt mergurinn málsins. Framboði raforku á Íslandi stjórna náttúruöflin, og þar er engum stöðugleika fyrir að fara. Með framboðshliðina í stöðugri óvissu og fákeppnismarkað raforkubirgjanna verður veruleg verðhækkun á raforku hið eina, sem hefst upp úr stofnun heildsölumarkaðar á Íslandi að forskrift ESB í Orkupakka 3. Það er feigðarflan að setja hér upp kerfi, sem valdið hefur stórvandræðum annars staðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)