Stjórnarskráin og EES

Stjórnarskráin er verðmætt leiðbeiningaskjal fyrir Alþingismenn og aðra um það, sem er í lagi og það, sem ber að forðast við lagasetningu.  Fullveldisákvæðin eru þar ekki upp á punt, heldur sett í varúðarskyni til að missa ekki tökin á stjórn landsins til útlanda.

Dæmigert fyrir EES-samstarfið er, að fullveldið glatast smátt og smátt með valdflutningi yfir einu málefnasviðinu á fætur öðru til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, ESB, og stofnana hennar.  Alþingismenn eru hér á mjög hálum ísi.  Þeir hafa aldrei leitað samþykkis þjóðarinnar á þessu fyrirkomulagi, sem aðild landsins að EES hefur í för með sér. 

ESB hefur gjörbreytzt síðan 1993, þegar Alþingi samþykkti EES-samninginn, og kemur ekki lengur fram við EFTA-ríkin á jafnræðisgrundvelli, heldur heimtar, að þau lúti stjórn stofnana sinna á hverju sviðinu á fætur öðru.

Mikil umræða hefur farið fram í Noregi um þetta málefni.  Norska Stórþingið stendur þó stjórnlagalega aðeins betur að málum en Alþingi, því að við samþykkt EES-samningsins árið 1992 var farið að kröfu norsku stjórnarskrárinnar um meðferð valdframsalsmála ríkisvaldsins til útlanda og farið eftir grein 115 í Stjórnarskránni, sem áskilur a.m.k. 2/3 mætingu þingmanna við atkvæðagreiðslu, og að 3/4 þeirra samþykki hið minnsta. Hið sama var gert 2016 við innleiðingu fjármálaeftirlits ESB í EES-samninginn.  

Lagasérfræðingar við háskólana í Ósló, Björgvin og Tromsö bentu sumir á áður en Stórþingið afgreiddi ACER-málið 22. marz 2018, að innganga Noregs í Orkusamband ESB væri andstæð stjórnarskrá Noregs, en aðrir töldu, að hana yrði Stórþingið að afgreiða samkvæmt grein 115.  Yfirfært á íslenzku stjórnarskrána þýðir þetta, að innganga Íslands í Orkusamband ESB er andstæð henni.  Stórþingið lét einfaldan meirihluta duga í ACER-málinu, en það mun fá eftirmála, því að ætlun samtakanna "Nei til EU" er að láta reyna á réttmæti þeirrar ákvörðunar þingsins fyrir Hæstarétti.

Þriðji orkumarkaðslagabálkur ESB samanstendur af nokkrum regluverkum, og það er einkum gjörðin um orkustofnunina (ACER-gjörð 713/2009) og rafmarkaðstilskipunin (tilskipun 2009/72), sem vekja spurningar um fullveldisframsal.  

ACER gegnir ekki einvörðungu ráðgefandi hlutverki.  Orkustofnunin hefur einnig framkvæmdavald og eigið ákvörðunarvald.  Ákvarðanir hjá ACER eru teknar með auknum meirihluta samkvæmt Þriðja orkubálkinum, en það mun sennilega breytast með væntanlegum Fjórða orkubálki í einfaldan meirihluta.  

Gagnvart Íslandi er látið líta svo út, að ESA-Eftirlitsstofnun EFTA taki hina formlegu ákvörðun, sem þó kemur frá ACER, þar sem Ísland verður ekki fullgildur aðili.  Það var hins vegar tekið fram við þetta samkomulag EFTA og ESB, að ESA-ákvörðunin verði í samræmi við drögin frá ACER; sem sagt "monkey business" eða afritsákvörðun.

Erik Holmöyvik og Halvard Haukeland Fredriksen, báðir prófessorar við lagadeild Háskólans í Björgvin, lýsa stöðunni, sem upp kemur við ágreining á milli yfirvalda ólíkra landa þannig:

"Hér blasir sú lausn við, að ACER taki bindandi ákvörðun fyrir orkustjórnvöld í ESB-löndum og ESA taki síðan nauðsynlega samhljóða ákvörðun, sem bindi norsk stjórnvöld.  Að ACER taki raunverulega ákvarðanirnar, endurspeglast af alls konar EES-aðlögunum að málsmeðferðarreglum [ESB], sem raunverulega minnka ESA niður í millilið, sem miðlar sambandi á milli norskra orkuyfirvalda og ACER."

Eivind Smith, prófessor við Svið opinbers réttar, Háskólanum í Ósló, heldur því fram, að ESA-ákvörðun hafi bein áhrif á norskan rétt.  Í viðtali við Klassekampen tjáir hann það þannig:

"Hér er einmitt um að ræða ákvörðun, sem virkar beint inn í þjóðarrétt í Noregi og sem grípur inn í valdréttindi yfir framkvæmdavaldinu, sem Stjórnarskráin færir löggjafanum."

Smith skrifar ennfremur: "Hin nýja valdstjórn yfir orkumálum (RME-landsreglari) á að verða óháð pólitískri stjórnun með hætti, sem ekki á við um neina stofnun í stjórnkerfinu."

Stjórnlagalega er hér fitjað upp á nýjung, sem hefði átt að fá rækilega lögfræðilega og stjórnmálalega umfjöllun áður en til mála kæmi að innleiða hana á Íslandi.  Framkvæmdavald, sem lætur sér detta í hug að umgangast Stjórnarskrá lýðveldisins með þessum hætti, er á hálum ísi. Að ráðherra og ráðuneytisstarfsmenn skuli enn tala með þeim hætti, að þetta fyrirkomulag breyti nánast engu í raun á Íslandi, af því að við höfum enn enga afltengingu til útlanda, er fáheyrt og hrein ósvífni.  Þetta fyrirkomulag færir einmitt ákvörðunarvald um m.a. sæstrenginn "Ice Link" úr höndum íslenzka löggjafans, ríkisstjórnarinnar og íslenzkra dómstóla í hendur ACER/ESB og EFTA-dómstólsins.  

ESA-"ákvörðunum" verður í Noregi beint til óháðrar einingar í NVE, sem er orkustofnun Noregs.  Þessi óháða eining er Landsreglari fyrir orku, "Reguleringsmyndighet for energi"-RME.  Sjálfstæði RME er skilgreint í Orkulögum Noregs, greinum 2-3, þar sem skýrt kemur fram, að stjórnvöld landsins munu ekki geta gefið RME nein fyrirmæli.  RME mun fá eigin fjárveitingu á fjárlögum.  Holmöyvik og Haukeland Fredriksen telja, að ESA yfirtaki þar með stjórnun þeirra þátta orkumálanna, sem falla undir RME.  Hvaða augum skyldu íslenzkir stjórnlagafræðingar líta á þessi mál með hliðsjón af íslenzku Stjórnarskránni ?  Í huga leikmanns samræmist þetta fullveldisframsal henni engan veginn.  Hvað ætla þingmenn hérlendis að arka langt út í stjórnlagalega ófæru í þessum efnum ? Þótt ráðherra utanríkismála telji sig bundinn af samþykki Sameiginlegu EES-nefndarinnar um framlagningu þingsályktunartillögu um Þriðja orkumarkaðslagabálkinn, þá verða Alþingismenn að ganga óbundnir til atkvæðagreiðslu um hana, og niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar á ekki að verða hægt að túlka sem vantraustsyfirlýsingu á utanríkisráðherra eða ríkisstjórnina.  Það má tryggja með samþykkt sérstakrar traustsyfirlýsingar í kjölfarið.  Alþingi verður einfaldlega að fá tækifæri til að nýta sér samningsbundinn synjunarrétt sinn samkvæmt EES-samninginum.   

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Frábært er að fylgjast áfram með þessu máli á vef þínum, Bjarni.

Þótt eflaust sé þolinmæðisverk fyrir ýmsa, launar það sig sjálft að lesa alla þessa grein þína í samfellu, lið fyrir lið, og sjá hvernig rök þín, hver eftir önnur skotheld og ljós, byggja hér upp sterkan málflutning og heildstæðan málstað, sem alþingismenn mega vera fullsæmdir af að nýta sér til fulls í öllum ákvörðunum um mál þetta; og hyggindi birtast einnig í því sem þú segir hér undir lokin um sérstaka traustsyfirlýsingu til ráðherra, til að fjarlægja hvorki hann né hans menn frá stuðningi við þennan málstað okkar Íslendinga, þennan trúnað við sjálfa stjórnarskrá landsins, hag og rétt þjóðarinnar í bráð og í lengd.

Jón Valur Jensson, 1.6.2018 kl. 02:49

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Úr vöndu er að ráða fyrir Alþingismenn og ráðherra.  ACER málið á sér fortíð á Alþingi áður en vakning til vitundar um afleiðingar Orkusambandsaðildar Íslands átti sér stað.  Þá (t.d. 2015) var bara halelúja í nefndum gagnvart því, sem ráðherra og embættismenn hans höfðu fram að færa, t.d. í utanríkismálanefnd, utan Frosta Sigurjónssonar, sem var rödd hrópandans í eyðimörkinni.  5. maí 2017 var gefið eftir gagnvart ESB í Sameiginlegu EES-nefndinni og telur utanríkisráðherra sig bundinn af því.  Úr því sem komið er, er aukaatriði, hvernig þessu máli verður komið fyrir kattarnef.  Aðalatriðið er, að því verði komið fyrir kattarnef, helzt án þess, að það hafi frekari áhrif á störf núverandi ríkisstjórnar.  

Ég segi við þig, Jón Valur, og aðra: það er enn raunveruleg hætta á því, að afgreiðsla þessa máls endi skelfilega við Austurvöll, og það mun þá hafa stórpólitískar afleiðingar hérlendis. 

Bjarni Jónsson, 1.6.2018 kl. 10:21

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Færi svo, yrðu aðrir stjórnmálaflokkar að sameinast um að vinna að uppsögn EES-samningsins.

En það er hálfgerð hrollvekja sem þú upplýsir hér um. 

Heyr fyrir Frosta Sigurjónssyni!

Jón Valur Jensson, 1.6.2018 kl. 14:50

4 Smámynd: Bjarni Jónsson

Alveg rétt.  Flokkakerfið mun þá riðlast, og ríkisstjórnin verður varla starfhæf á eftir.  Ef fer að hilla undir stórkostleg svik í málinu við 80 % landsmanna, samkvæmt skoðanakönnun, þarf að undirbúa skírskotun til forseta lýðveldisins, sem getur kallað fram bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu.  Þá mundi skapast mikið umrót í samfélaginu, sem er fórnarkostnaður fyrir fullveldi á dýrmætu sviði.  

Bjarni Jónsson, 1.6.2018 kl. 18:41

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Bjarni sömuleiðis þakka baráttu þína í okkar garð og vomum það besta og eða uppþot á austurvelli en ég er farið að sjá betur og betur að flest allir pólítukusar vilja sæti á ESB þinginu en þar sjá þeir frama sinn þegjandi fyrir hönd Íslands.

Valdimar Samúelsson, 2.6.2018 kl. 14:21

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Ætli ég hafi ekki lesið þetta 4 sinnum kem svo ekki orðum að neinu,en er samt efst í huga þakklæti fyrir að eiga slíka afburðamenn sem vaka yfir velferð ættjarðar sinnar (sumir kalla það væmið!) Áfram Ísland!

Helga Kristjánsdóttir, 2.6.2018 kl. 18:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband