Umhverfisverndarstefna í skötulíki

Stefna íslenzkra yfirvalda um verndun umhverfis er óbeysin.  Þau hafa skuldbundið landsmenn til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda mikið, eða um 20 % árið 2020 og 40 % árið 2030 m.v. 1990.  Reyndin er sú, að hún verður um 30 % meiri árið 2020 en 1990, og engin trúverðug áætlun hefur litið dagsins ljós um að ná 40 % markinu árið 2030. 

Gróðurfarslegt ástand landsins er slæmt, og hægagangur á að hamla skemmdum lands af völdum ferðamanna, sem víða eru miklu fleiri en takmarkaðar eða engar mótvægisaðgerðir réttlæta.

Við þessar aðstæður mátti lesa þetta í frétt Fréttablaðsins, 25. júní 2018,

"Hefji undirbúning til að kaupa losunarheimildir fyrir Ísland":

"Vinna við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er einnig á eftir áætlun, en hún átti að liggja fyrir á vormánuðum [2018].  Vinnan er leidd af umhverfis- og auðlindaráðherra, en fulltrúar 6 annarra ráðherra koma að vinnu verkefnisstjórnar."

Það er engu líkara en stjórnvöld telji að sinni hálfu nóg að gert með því að leggja á kolefnisgjald og hækka það árlega.  Jafnvel þetta kolefnisgjald er illa ígrundað.  Það er ekki eyrnamerkt, þannig að það veitir engin sóknarfæri á sviðum, þar sem virkilega mundi muna um það í umhverfisvernd, eins og síðar verður að vikið.  Kolefnisgjaldið er lagt á fljótandi jarðefnaeldsneyti, s.s. dísilolíu, svartolíu og benzín. Gjaldið var sett á í neyzlustýringarskyni, fyrst til að örva kaup á dísilbílum og síðan til að flýta fyrir orkuskiptum.  Þar sem það hefur verið lagt á erlendis, hafa þar af leiðandi aðrir skattar verið lækkaðir á móti, svo að tekjuöflun ríkissjóðs stæði óbreytt.  Segja má, að gjaldalegar ívilnanir til rafbílakaupenda hafi verið vísir að slíkri mótvægisaðgerð hérlendis (u.þ.b. 1 miaISK/ár).

Gera má ráð fyrir, að kolefnisgjald skili ríkissjóði miaISK 5,5 í ár og miaISK 6,6 árið 2020.  Stuðningsaðgerðir við orkuskiptin, sem kostaðar eru af ríkissjóði, nema árlega mun lægri upphæðum. Stjórnvöld eru enn á villigötum með innheimtu og ráðstöfun kolefnisgjalds.  Skortur á stefnumörkun tefur fyrir orkuskiptum.  Stjórnvöld eru enn sem komið er hemill fremur en hvati á orkuskiptin, enda hafa þau ekki einu sinni getað tryggt næga raforku til allra landshluta. Á meðan slíkt herfilegt misrétti er við lýði í landinu, að sum héruð séu í raforkusvelti, eru stjórnvöld með allt á hælunum í orkuskiptamálum.   

Einn er sá gjaldstofn kolefnisgjalds, sem bæði er ósanngjarnt og óskynsamlegt að nota, ef álagningin er í þágu orkuskipta.  Þetta eru eldsneytiskaup sjávarútvegsins hérlendis.  Að nota þennan gjaldstofn ósanngjarnt af tveimur ástæðum:

  Í fyrsta lagi hefur sjávarútvegurinn einn allra atvinnugreina nú þegar náð markmiðum ríkisstjórnarinnar um 40 % minni losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030 en 1990.  Fyrir þetta ber að umbuna honum með því að fella kolefnisgjöld af eldsneytiskaupum hans niður og mynda þannig árangurshvata fyrir aðra.  50 % hækkun kolefnisgjalds um síðustu áramót leiddi til 4 % hækkunar á eldsneytiskostnaði sjávarútvegsfyrirtækja, sem er annar stærsti útgjaldaliður sjávarútvegsfyrirtækja á eftir launakostnaði. Á tímum 50 % hækkunar á heimsmarkaðsverði eldsneytis sýnir þessi gjörningur óvitaskap stjórnvalda, sem láta stjórnast af þokukenndri hugmyndafræði í stað markaðsstaðreynda. 

  Í öðru lagi nýtur fiskiskipafloti flestra hinna EES-landanna, t.d. Noregs, Danmerkur, Þýzkalands og Portúgals, undanþágu frá kolefnisgjaldi, eða þeir njóta endurgreiðslna úr viðkomandi ríkissjóði.  Stjórnvöld veikja með þessu alþjóðlega samkeppnisstöðu íslenzka sjávarútvegsins og höggva þar með tvisvar í sama knérunn, sem þykir ógæfulegt. 

Það er ennfremur óskynsamlegt að haga sér með þessum hætti, því að kolefnisgjaldið dregur úr fjárfestingargetu sjávarútvegsins, en fjárfestingar í nýjum fiskiskipum og verksmiðjubúnaði hafa verið undirstaðan að frábærum árangri hans í umhverfisvernd hingað til.  

Þá að markvissri ráðstöfun kolefnisgjaldsins í því skyni að draga úr magni kolefnis í andrúmsloftinu:

  Kolefni, C, berst þangað eftir ýmsum leiðum og ekki einvörðungu við bruna jarðefnaeldsneytis.  Kolefni í andrúmslofti nemur nú 790 Tg (teragrömmum, tera er milljón milljónir), og til samanburðar er um 620 Tg af C í gróðri á jörðunni og 3000-4000 Tg í mold.  Í mold er magn C meira en fjórfalt magn C í andrúmslofti, svo að brýnast er að binda C í vistkerfum jarðar.  Þessar upplýsingar koma fram í grein prófessors Ólafs Arnalds,

"Moldin og hlýnun jarðar", 

í Fréttablaðinu, 27. júní 2018. Af þessu má ráða, hvernig forgangsraða á fjármunum hins opinbera og annarra til að ná mestum árangri fyrir hverja krónu, en íslenzk stjórnvöld hafa enn ekki markað stefnu í þessa átt. Það er hneisa.  Í greininni sagði m.a.:  

"Það er ekki aðeins notkun jarðefnaeldsneytis, sem hefur aukið styrk gróðurhúsalofttegunda; vænn hluti aukningar þeirra í andrúmsloftinu á rætur að rekja til hnignunar vistkerfa.  Ofnýting landbúnaðarlands leiðir til þess, að gengið er á lífrænan forða jarðvegsins, sem getur losað ógrynni CO2 til andrúmsloftsins.  Nýleg skýrsla Landbúnaðarháskóla Íslands leiðir í ljós, að losun af þessu tagi hérlendis er af sambærilegri stærðargráðu og losun frá iðnaði, samgöngum og sjávarútvegi samtals, jafnvel mun meiri. [Þetta þýðir losun a.m.k. 3500 kt CO2 á ári, ef einvörðungu er átt við samgöngur á landi-innsk. BJo.] 

Þá er áætlað, að losun á gróðurhúsalofttegundum frá framræstum votlendum á Íslandi sé meiri en losun frá iðjuverum og samgöngum landsins.  [Þetta þýðir a.m.k. 3000 kt CO2 og er lægra en áður hefur sézt. Hérlendir vísindamenn hafa varað við flausturslegri endurheimt votlendis.  Ef nýja vatnsstaðan nær ekki yfirborðshæð, er verr farið en heima setið-innsk.BJo.]  Það er ákaflega hollt að hafa þetta samhengi hlutanna í huga við ákvarðanatöku á mótvægisaðgerðum vegna hlýnunar andrúmsloftsins."

Því miður virðist Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, vera að miklu leyti úti á þekju í störfum sínum og ekki hafa "samhengi hlutanna í huga við ákvarðanatöku á mótvægisaðgerðum".  Hann hefur tekið tillögu frá Náttúrufræðistofnun Íslands um friðlýsingu lands sunnan Hornstranda og Drangajökuls til athugunar, þótt slík tillaga sé allt of seint fram komin, setji Rammaáætlun um vernd og nýtingu orkuauðlinda í uppnám og fyrirbyggi að líkindum virkjun Hvalár í Ófeigsfirði, sem ásamt fleiri aðgerðum á að draga stórlega úr olíubrennslu í kyndistöðvum (uppsett afl 24 MW) og neyðarrafstöðvum (20 MWe) á Vestfjörðum og mun draga úr raforkutöpum á landsvísu vegna flutnings raforku um langar vegalengdir.  

Í frétt Fréttablaðsins, 25. júní 2018,

"Hefji undirbúning til að kaupa losunarheimildir fyrir Ísland",

var eftirfarandi haft eftir ráðherranum um viðbrögð við lélegum árangri í loftslagsmálum hérlendis:

""Við munum þó væntanlega þurfa að kaupa heimildir vegna fyrri skuldbindinga, sem miðast við árið 2020, en hversu miklar liggur ekki ljóst fyrir að svo stöddu", bætir Guðmundur Ingi við. "Ég vil hefja undirbúning kaupa á heimildum sem fyrst, þannig að Ísland sé í stakk búið til þess fyrr en á eindaga eftir 4-5 ár.  Ljóst er þó, að fjárheimildir þarf fyrir slíkum kaupum.""

Þessi forgangsröðun ráðherrans er fyrir neðan allar hellur.  Það á ekki að koma til mála að henda fé úr ríkissjóði Íslands til greiðslu á koltvíildiskvótum frá útlöndum (ESB).  Hér getur hæglega verið um að ræða upphæð fyrir tímabilið 1990-2020, sem nemur um miaISK 10.  Það ber þess í stað þegar í stað að setja afrakstur kolefnisgjaldsins, þann hluta, sem ekki hefur farið í  mótvægisaðgerðir gegn koltvíildislosun hingað til, til að hefja kolefnisbindingu í jarðvegi og gróðri af miklum krafti. 

Það verður að láta ESB vita, að við getum ekki samtímis greitt háar sektir og farið í skilvirkar mótvægisaðgerðir og að við höfum ákveðið að fara seinni leiðina samkvæmt vísindalegri ráðgjög Landbúnaðarháskóla Íslands og Skógræktar ríkisins.

Á illa saman

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hvers vegna er "raforkuskortur" hér á Íslandi?!

"Í Fljótsdalsstöð fer fram raforkuvinnsla Kárahnjúkavirkjunar.

Afl stöðvarinnar er 690 MW og raforkan fer öll til álvers Alcoa-Fjarðaáls í Reyðarfirði."


15.11.2015:

Alcoa aldrei greitt skatt hér á Íslandi - Um 57 milljarðar króna farið frá Alcoa í Reyðarfirði til Lúxemborgar

Þorsteinn Briem, 12.7.2018 kl. 14:37

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Raforkuvinnsla hér á Íslandi árið 2008 var 16,467 GWh og hafði þá aukist frá árinu áður um 37,5%.

Og notkunin á íbúa jókst úr 38,5 MWh í 51,6 MWh.

Árið 2002 varð raforkunotkunin hér sú mesta í heiminum á mann
en áður hafði hún verið mest í Noregi.

Með Fjarðaáli jókst raforkunotkun stóriðju verulega árið 2008 og hlutur hennar fór þá í 77% af heildarnotkuninni.

Þorsteinn Briem, 12.7.2018 kl. 14:37

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

2.3.2017:

Norðurál ekki hætt við álver í Helguvík

10.5.2013:

Skipulagsstofnun: Kísilver í Helguvík þarf 130 MW þegar það er komið í fulla stærð, sjá bls. 4


Norðurál:
"Álver í Helguvík þarf 625 MW þegar það er komið í fulla stærð."

Álver í Helguvík þyrfti því
um fimm sinnum meiri raforku en kísilver á sama stað.

Og samtals þyrftu álverið og kísilverið 755 MW.

Þorsteinn Briem, 12.7.2018 kl. 14:43

4 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Landnýtingarstefna er orð sem er ekki til í kokkabókum stjórnmálmanna. Það væri nær að nýta ríkisjarðir undir skóg og slá með því margar flugur í einu höggi, í stað þess að leigja þær undir tómstundaiðkun s.s. hross og þ.h. hobbý. Það ætti að hefjast handa og setja í gang eins og framleiðslu á 10 milljónum skógarplantna árlega næstu 5 ár eða svo og tvöfallda eftir það framleiðsluna á 5 ára fresti þar til búið er að loka þessu ímyndaða kolefnisgati.

Varðandi orkuskiptin þá er litlu við að bæta. Ætt af stað og enginn veit hvert.

Kaup á lofti... Þetta fær mann til að hugsa til bræðranna á Bakka sem báru sólina inn í gluggalaust hús.

Sindri Karl Sigurðsson, 12.7.2018 kl. 14:46

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Útstreymi árið 2007 (CO2-ígildi í þúsundum tonna) og hlutfallsleg breyting frá árinu 1990:

Iðnaður og efnanotkun
1.845 +64%,

samgöngur
1.017 +67%,

sjávarútvegur
650 -18%,

landbúnaður
534 -7%,

úrgangur
254 +41%,

rafmagn og hiti
182 +48%,

samtals
4.482 +32%.

Ál:


"Útstreymi vegna álframleiðslu jókst úr 569 þúsund tonnum árið 1990 í 978 þúsund tonn árið 2007, eða um 72%."

Járnblendi:


Útstreymi vegna framleiðslu járnblendis jókst
úr 205 þúsund tonnum árið 1990 í 393 þúsund tonn árið 2007, eða um 91%."

Samgöngur:


"Útstreymi frá samgöngum árið 2007 skiptist í útstreymi vegna innanlandsflugs (2%), strandsiglinga (6%) og vegasamgangna (92%).

Í heildina jókst útstreymi frá samgöngum úr 608 þúsund tonnum árið 1990 í 1.017 þúsund tonn árið 2007, eða um 67%.

Útstreymi frá innanlandsflugi minnkaði
lítillega á tímabilinu en útstreymi vegna strandsiglinga jókst um 1%.

Útstreymi frá vegasamgöngum jókst
hins vegar um 81% frá 1990 til 2007 eða úr 517 þúsund tonnum í 934 þúsund tonn."

Sjávarútvegur:


"Útstreymi frá sjávarútvegi skiptist árið 2007 í útstreymi frá fiskiskipum (87%) og fiskimjölsverksmiðjum (12%).

Í heildina jókst útstreymi frá sjávarútvegi frá 1990 til 1996 en hefur farið minnkandi síðan. Útstreymið var mest árin 1996 og 1997 þegar mikil sókn var á fjarlæg mið."

Landbúnaður:


"Útstreymi frá landbúnaði minnkaði um 6,7% á milli 1990 og 2007. Rekja má þessa minnkun til fækkunar búfjár. Nokkur aukning varð árin 2006 og 2007 miðað við árin á undan og má rekja þá aukningu til aukinnar notkunar tilbúins áburðar."

Úrgangur:


"Útstreymi vegna meðferðar úrgangs skiptist í útstreymi vegna frárennslis og útstreymi vegna urðunar, brennslu og jarðgerðar úrgangs. Útstreymi jókst um 41% frá 1990 til 2007.

Sem hlutfall af heild innan geirans árið 2007 var útstreymi vegna urðunar um 80%, frárennslis um 9%, brennslu um 11% og jarðgerðar 1%."

Orkuframleiðsla:


"Útstreymi gróðurhúsalofttegunda vegna orkuframleiðslu árið 2007 skiptist í útstreymi vegna jarðhitavirkjana (83%) og útstreymi vegna notkunar eldsneytis til rafmagns- og hitaframleiðslu (17%).

Heildarútstreymi frá orkuframleiðslu jókst
úr 123 þúsund tonnum árið 1990 í 182 þúsund tonn árið 2007, eða um 48%.

Aukning frá jarðhitavirkjunum vegur þar mest
en útstreymi frá jarðhitavirkjunum jókst úr 67 þúsund tonnum í 152 þúsund tonn á tímabilinu."

Nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda hér á Íslandi, bls. 30-36

Þorsteinn Briem, 12.7.2018 kl. 14:49

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fyrir okkur Íslendinga skiptir því langmestu máli hvað mengun snertir að reisa ekki fleiri stóriðjuver og rafvæða bílaflotann hér á Íslandi.

3.4.2017:

""Ég held að við þurfum ekki að reisa eina einustu virkjun.

Það sem rafbílar taka er mjög lítið og spá segir okkur að innan 15-20 ára verði komnir hundrað þúsund rafbílar í landinu.

Þessir bílar þurfa ekki nema 1,5% af því rafmagni sem framleitt er í landinu í dag og til að fullnægja því höfum við 10-15, jafnvel 20 ár.

Þannig að við þurfum í rauninni ekki að virkja neitt til að skipta yfir í rafmagn í umferðinni," segir Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur."

Þarf ekki nýjar virkjanir fyrir rafbílavæðinguna segir forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur

Þorsteinn Briem, 12.7.2018 kl. 14:51

7 Smámynd: Bjarni Jónsson

Alveg sammála þér, Sindri Karl.  Upplagt að nýta ríkisjarðirnar undir skógrækt og endurheimtu votlendis undir vísindalegu eftirliti, þar sem staðfesta má kolefnisbindingu og minnkun losunar með mælingum.  Landgræðsla er einnig mjög mikilvæg til að draga úr losun koltvíildis, því að jarðvegurinn er svo kolefnisríkur. 

Bjarni Jónsson, 12.7.2018 kl. 18:53

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Hið eina stefnumál sem hérlend stjórnvöld virðast eilíflega geta komið sér saman um, er að hækka skatta og álögur. Heilsteypt langtímastefna í nánast hvaða málaflokki sem er, virðist þessum amlóðum algerlega um megn. Það verður að elta allar reglugerðir og rugl sem frá Bulluseli kemur. Skattleggja, skattleggja, skattleggja út í hið óendanlega. Hvert skattféð rennur vita fáir, enda stjórnvöld svo steingeld í gæslu sinni fyrir Íslenskum hagsmunum, að undrun sætir. Íhald, kommar, opnadollan framsókn, eða hvaða nöfnum sem þessu er gefið, er of upptekið af eigin rassi til að hafa tíma fyrir þjóðarhag. Svei þessu rusli á Alþingi, sem heldur að einhver nenni að hlusta á helvítis kjaftæðið í þeim á hátíðarfundi á Þingvöllum eftir örfáa daga. Þar mun enginn mæla af heilindum, svo mikið er víst. Vonandi sækja sem fæstir þessa fáránleikasamkomu, því þar munu einungis fullveldisafsalssinnar væla og mæra fullveldið, í Bulluselsvímu. Svei þessu hyski.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 13.7.2018 kl. 01:13

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er hrollvekjandi að hugsa um píp falskra ráðamanna menga friðsældina og þá helgu jörð sem þingvellir er.Baulaðu bara Búkolla mín alíslenska og kæfðu jóðlið í Evrópusinnum ég veit þú ert alltaf nærri.

Helga Kristjánsdóttir, 13.7.2018 kl. 05:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband