Af hagkerfum

Reynt er að halda því að Íslendingum, að hagkerfi þeirra mundi styrkjast við að lýsa áhuga fyrir inngöngu í Evrópusambandið (ESB) og myntbandalag Evrópu (EMU).  Þessi hugdetta er algerlega úr lausu lofti gripin og lýsir fullkomnum barnaskap.  Íslenzka hagkerfið er öflugt og sveigjanlegt, en einkenni evrusvæðisins eru háir og íþyngjandi skattar ásamt reglugerðafargani.  Innganga mundi að öllum líkindum drepa hér allt í dróma, því að útflutningsatvinnuvegirnir, sem velmegunin er reist á, mundu berjast í bökkum vegna meiri tilkostnaðarhækkana en annars staðar á evrusvæðinu.  Dæmi um þetta eru að verða ískyggileg innan evrusvæðisins.

Núverandi efnahagsvandræði heimsins hófust með hruni húsnæðismarkaðarins í BandaríkjuUSD-EUR apríl-ágúst 2008num árið 2007.  Hundruðir milljarða bandaríkjadala töpuðust með svo nefndum lánavöndlum um allan heim.  Hagvöxtur dróst saman í Bandaríkjunum og víðar.  Ætla hefði mátt að óreyndu, að Bandaríkjamenn færu verst út úr þessari kreppu.  Nú er annað að koma á daginn.  Mjög sígur nú á ógæfuhlið helztu efnahagskerfa evrusvæðisins.  Margt bendir nú til, að kreppan verði bæði dýpri og langvinnari í evrulandi en víðast hvar annars staðar.  Bandaríska efnahagskerfið er hins vegar tekið að rétta úr kútnum á meðan hið evrópska sígur til botns.  Gjaldeyriskaupmenn hafa áttað sig á þessu, eins og meðfylgjandi mynd er til vitnis um.  Traust á dollarnum vex á kostnað evru. Gengi gjaldmiðla ræðst að lokum alltaf af styrk efnahagskerfanna, þ.e.a.s. af hagvextinum á viðkomandi myntsvæði.  Heilbrigður hagvöxtur fæst aðeins með sköpun útflutningsverðmæta, sem eru verulega (a.m.k. 5 %) meiri en nemur verðmætum innflutnings.

Hvers vegna halda menn, að þróun téðra risahagkerfa sé með þessum hætti ?  Ein skýringin er sú, að bandaríski seðlabankinn (Federal Reserve) brást skjótt við niðursveiflunni og lækkaði vextina.  Þá lagðist bandaríska ríkisstjórnin á sömu sveifina og lækkaði tekjuskatt á almenning.  Þetta eru mótvægisaðgerðir, sem skipta máli. Evrópski seðlabankinn (ECB) er aftur á móti nýbúinn að hækka stýrivexti í harðri baráttu sinni gegn verðbólgu á evrusvæðinu.  Ekki bólar á neinum skattalækkunum í Evrópu til að létta undir með almenningi.  Jaðarskatturinn er þó víða 50 % og þar yfir innan ESB, og samkeppni landanna á skattasviði er eitur í beinum framkvæmdastjórnarinnar í Brussel.  Evrópa er hávaxtasvæði og háskattasvæði, og efnahagskerfi hennar er niðurnjörvað af stjórnmálamönnum og verkalýðsfélögum.  Hvaða erindi á Ísland inn í þetta stjórnkerfi ?  Heilbrigð skynsemi talar ekki fyrir því að hengja smáhagkerfi aftan í risahagkerfi með öllum þessum sjúkdómseinkennum. Íslenzka hagkerfið hlyti að draga dám af hinu evrópska við inngöngu.  Slíkt mundi leiða til lítils hagvaxtar, ef nokkurs, og verulegs viðvarandi atvinnuleysis á okkar mælikvarða.  Við mundum fljótlega lenda í stórvandræðum með viðskiptin við útlönd vegna stífs gengis, sem aldrei hefur gefizt vel hér. 

Flóð ódýrra evrópskra matvæla hingað til lands er ekki tilhlökkunarefni, því að gæði þeirra ná ekki máli í samanburði við íslenzk matvæli.  Þess er von, því að loftið er þar mengað og almennilegt vatn af skornum skammti.  Vöxtur jurta og dýra er knúinn áfram með ónáttúrulegum hætti í samanburði við hefðina í okkar hreina landbúnaði, hvers afurðir taka öllu öðru fram að hollustu. 

Ekki þarf að orðlengja, að fullveldisafsal til Brussel merkir t.d., að síðasta orðið um stjórnun á nýtingu auðlinda hafsins verður í Brussel, hvað sem óábyrgu tali um "staðbundna stjórnun" líður.  Það er ómótmælanleg staðreynd, hvort sem aðlögunartíminn verður 5 eða 10 ár.  Fiskveiðiflota ESB-landanna skortir verkefni um leið og ESB matvælamarkaðinn skortir tilfinnanlega ferskan fisk.

Eitt af því, sem Írar óttuðust, þegar þeir höfnuðu stjórnarskrá ESB í sumar, var herkvaðning í Evrópuherinn, en Írar eru sem kunnugt er hlutlausir.  Við mundum væntanlega ekki þurfa að óttast slíkt, þar sem við erum herlausir, en gætum þurft að leggja til lögreglusveitir til friðargæzlu á vegum ESB.  Kærum við okkur um slíkt ?  Heppilegra verður að telja, að Alþingi eigi lokaorðið um slíkt, sem og um öll önnur hagsmunamál Íslendinga.   

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sæll Bjarni

Ég er nú kannski ekki að öllu leyti sammála þér, þar sem ég vil hefja aðildarviðræður við ESB. Sérstaklega finnst mér varhugavert að slengja öllum ESB ríkjum í einn pott. Um er að ræða 26 ríki, sem eru mjög ólík að þjóðfélagsuppbyggingu, þjóðartekjum, atvinnuleysi, skattprósentu o.s.frv.

Reglugerðafarganið má finna víða og ekkert síður í BNA en en ESB. Það er hins vegar rétt hjá þér að reglugerða- og lagafarganið hér er minna en margir halda.

Margir þeirra fyrirvara, sem þú setur við ESB aðild, eru hins vegar alveg hárréttir og því þyrfti að skoða sérstaklega vel hvað kæmi út úr viðræðum við ESB, t.d. varðandi sjálfstjórn okkar á fiskimiðunum og verndun íslensk landbúnaðar. Ég held að við munum upplifa enn meiri hækkanir á landbúnaðarafurðum í heiminum í framtíðinni auk þess sem skilyrði til landbúnaðar munu batna hér á landi. Hvorutveggja leiðir af sér að mjög óskynsamlegt væri að leggja landbúnað meira og minna á hillunum hér á landi, þótt auðvitað megi hagræða enn frekar og leyfa markaðsöflunum að ráða meira en þau gera í dag.

Satt best að segja er ég ekki viss um að niðurstöður aðildarviðræðna yrðu ásættanlega hvað tvö ofangreind atriði varðar. Það sem við hins vegar hefðum út úr slíkum viðræðum er að þá væri þetta mál afgreidd fyrir næstu 20 árin og við gætum einbeitt okkur að því sem þú varst að tala um.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 16.8.2008 kl. 13:28

2 Smámynd: Loopman

Þessi pistill þinn er stórmerkilegur. Í kynningu á sjálfum þér efst í vinstra horinu segistu verið fylgjandi markaðsbúskap, en þú villt ekki að við förum í EU.... Þú villt sem sagt frelsi, en bara frelsi sem þú getur stjórnað. Það er ekki frelsi, það er íhald, afturhald, einokun, stalínismi og almenn hræsni.

Ef vörur sem búnar til eru í evrópu er nægilega góðar til að fólk í milljónavís étur þær, hvers vegna ekki við líka? Eru íslendingar æðri en útlendingar? Næstu villtu líklega banna svart fólk, og þessa skáeygðu líka, þeir lifa á einhverju rusli sem framleitt er við ónátturulegar aðstæður og þessvega eru þeir eitraðir....

Kommon maður. Þú átt að vera vel menntaður, og af vel menntuðum manni þá virðist sú menntun ekki hafa skilað sér alla leið. Það er reyndar auðveldara að vera einn útí horni heldur en að taka þátt í veröldinni..

Loopman, 17.8.2008 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband