Lítið lagðist fyrir drottninguna af Kviku

Hvar gerist það í raunhagkerfinu, að MISK 3 verði að MISK 104 á um 2 árum.  Það þarf líklega annaðhvort að fara í undirheimana eða á slóðir þess vafasama pappírs Samfylkingarinnar til að finna aðra eins ávöxtun.  Núverandi formaður Samfylkingarinnar gegndi áður stöðu aðalhagfræðings Kviku-banka og naut þá þessara vildarkjara þar.  Hún fór á flot með það í skattframtali sínu, að MISK 101, sem hún var allt í einu með í höndunum, væri ávöxtun og bæri þá 22 % skattheimtu.  Þessu trúði Skatturinn ekki, því að slíkt gerist ekki í raunheimum ofan jarðar.  Skatturinn taldi þetta einfaldlega launaumbun (bónus) til aðalhagfræðingsins frá Kviku og ætti því að bera jaðarskattheimtuna um 46 %. 

Þarna munar hárri upphæð, sem núverandi formaður Samfylkingarinnar ætlaði í græðgi sinni að sleppa við að borga til samfélagsþarfanna.  Það er nauðsynlegt fyrir kjósendur að gera sér grein fyrir innræti og gerð formanns Samfylkingarinnar áður en þeir ljá henni atkvæði.  Hún talar beint og óbeint fyrir vaxandi skattheimtu á fyrirtæki og almenning, en hún virðist nota hvert tækifæri, sem hún telur sig fá, til að að lækka skattheimtu af eigin ofurtekjum.  Þetta er sérlega skammarlegt fyrir hana og Samfylkinguna, sem verður tíðrætt um "að láta breiðu bökin borga".

Morgunblaðið gerði málinu skil 30. júní 2023 undir ósköp sakleysislegri fyrirsögn, þótt sú, sem í hlut á, sé ekki sakleysingi:

"Hagnaðurinn metinn sem laun".

Sú frétt hófst þannig:

"Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi aðalhagfræðingur Kviku banka, greiddi Skattinum tæpar MISK 25 í vor vegna hagnaðar af áskriftarréttindum bankans, sem hún hafði fjárfest í.  Kristrún sagði í samtali við mbl.is í gær, að málinu væri lokið af sinni hálfu, en þetta væri ekki endilega endanleg niðurstaða, þar sem fara má með mál af þessu tagi fyrir yfirskattanefnd."

 Ekki er víst, að allir átti sig á skattalagabroti formannsins af þessu orðalagi.  Nær er að segja hverja sögu, eins og hún er.  Formaður Samfylkingar gerðist brotleg við skattalög með því að vantelja fram launatekjur sínar og hugðist þannig halda MISK 25 í eigin vasa sínum í stað þess að láta þessa fjárhæð greiðlega af hendi rakna til samfélagsþarfanna. Þetta er hrikalegur vitnisburður um siðleysið og hræsnina, sem lekur af þessum nýja formanni Samfylkingarinnar, sem sótt var í fjármálaheiminn.  Það segir meira en mörg orð um það, hvar hjarta Samfylkingarinnar slær, og hvaða hagsmuni hún kann að setja á oddinn.  Hvort það samræmist hagsmunum alþýðunnar, sem Samfylkingin ber í orði kveðnu fyrir brjósti, er umdeilanlegt, en það er óumdeilanlega óheiðarlegt að koma ekki til dyranna, eins og maður er klæddur. 

Kristrún læðist með veggjum í þessu máli og er greinilega í vondum málum.  Hún rembist við að láta líta út fyrir, að hún hafi lagt fram MISK 3 sem áhættufé, sem hún hefði getað tapað.  Eru fordæmi fyrir því í sambærilegum málum ?  Ekki er svo, ef afstaða Skattsins er skoðuð, því að hann telur skýlaust um launaumbun til Kristrúnar að ræða:

 "Það fór þó ekki svo, því [að] hlutabréf Kviku hækkuðu mikið [eins og búizt var við - innsk. BJo] frá þeim tíma, sem Kristrún hóf þar störf.  Kristrún gat innleyst fjárfestinguna á 3 mismunandi dagsetningum fram í tímann, og var endanlegur hagnaður hennar um MISK 101."

Þarna lýsa blaðamenn Morgunblaðsins leikriti, sem Kvika setti á svið fyrir drottninguna af Kviku o.fl. starfsmenn fyrirtækisins til þess að fara í kringum orðið "bónus", sem hefði óhjákvæmilega þurft að fara í hæsta tekjuskattsþrepið. Með því að lýsa þessum vildargerningi sem "fjárfestingu", gátu óprúttnir spreytt sig á að reyna að borga ríflega helmingi lægri skatt, en Skatturinn sá við þeim, og var það vel.  Allt lyktar þetta ákaflega illa. 

Staksteinar Morgunblaðsins 30.06.2023 vitnuðu í pistilinn "Tilfallandi athugasemdir", sem ekki var gerð nánari grein fyrir:

""Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, segir fátt um Íslandsbankamálið, ólíkt formönnum allra annarra stjórnmálaflokka.  Ástæðan er Kvika, fjárfestingarbanki, sem hyggst ná eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka með samruna.

Kristrún var, þar til fyrir skemmstu, aðalhagfræðingur Kviku.  Hún hagnaðist um MISK 100 á kaupréttarsamningum.  Hún var lengi í vandræðum með að gefa skiljanlegar skýringar á því.""

   Það er út af því, að téð Kristrún er tvöföld í roðinu.  Hún ætlaði að komast upp með að telja Skattinum trú um, að ofangreind upphæð væri ávöxtun MISK 3 hennar, en Skatturinn sá við blekkingarstarfseminni.  Nú segir hún, að málinu sé lokið af sinni hálfu.  Það er út af því, að hún veit, að málstaður hennar er óverjandi gagnvart Yfirskattanefnd og að sú kynni að úrskurða 25 % sektarálag á skattstofninn.  Hitt er svo allt annað mál, hvort kjósendur, sem einnig eru skattborgarar í þessu landi, gera sér þessar "trakteringar" drottningarinnar af Kviku að góðu.  Þeir hafa enga ástæðu til þess.  Nú hafa þeir séð inn í kviku formanns Samfylkingarinnar, og ef allt er með felldu, munu þeir forðast að lyfta litla fingri til að lyfta drottningunni af Kviku til valda á Íslandi.  Hún er einskis trausts verð, og bezt fer á því að refsa henni með því að leiða Samfylkinguna á eyðimerkurgöngu hennar.

""En kom svo með þessa hagfræðilegu skýringu: "Ég datt í lukkupottinn", sagði Kristrún.  Íslandsbankamálið, sem nú er til umræðu, er aðeins undanfari að yfirtöku Kviku á Íslandsbanka.""

 Í þessu samhengi er vert að hafa í huga hið fornkveðna: "æ sér gjöf til gjalda".  MISK 100 eru ekkert annað en gjöf til Kristrúnar frá Kviku.  Með þetta veganesti fer hún í pólitíkina, og í fjármálageiranum hlýtur að vera ætlazt til, að þetta fé ávaxtist með afstöðu formanns Samfylkingarinnar.  Það er löngu þekkt, að ógerlegt er að þjóna tveimur herrum.  Aðeins þeir kjósendur Samfylkingarinnar, sem telja hagsmuni sína og Kviku-fjárfestingarbanka fara saman, geta með góðri samvizku kosið þennan stórundarlega stjórnmálaflokk. 

""Galdurinn, sem nú er í gangi, er oft nefndur: "Glitnir, taka tvö".  Samfylkingin hefur frá stofnun verið fimmta herdeild auðmanna.  Með formennsku Kristrúnar er innvígð og smurð auðkona í kjörstöðu til að hjálpa baklandi sínu að "detta í lukkupottinn".""

 Mun samsærið ganga upp ?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Gunnlaugur Bjarnason

Ég hefði í þínum sporum mun meiri áhyggjur af Bjarna Ben og Sjálfstæðisflokknum en Kristrúnu og Samfylkingu. 

Sjálfstæðisflokkurinn er/var miklu merkilegri flokkur en Samfylking en er að hverfa í blámóðu hagsmunatengsla auðmannadekurs og svindlgjörninga.

Umsjón formannsins með sölu á eignum ríkisins hefur verið ansi langt frá því að vera til fyrirmyndar. 

En þögn almennra Sjálfstæðismanna er ærandi miðað við gasprið út í Kristrúnu greyið.   Nema jú þeirra sem eru að drepast úr meðvirkni og verja alla Lindarhvolsvitleysuna og hvað þetta allt heitir,  út í rauðan dauðann!    Þar gildir væntanlega hið forkveðna eins og þú segir: "æ sér gjöf til gjalda"!

Sókn Sjálfstæðisflokksins til fyrra mikilvægis í Íslenskri pólitík getur ekki falist í að ásaka aðra um það sama og menn réttlæta í eigin flokki, heldur miklu frekar að hreinsa almennilega til í eigin ranni og fara í alvöru eftir eigin hugsjónum!

Bjarni Gunnlaugur Bjarnason, 10.7.2023 kl. 10:38

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Er Kristrún Frostadóttir grey ?  Hún gerði tilraun til að smeygja sér undan hæsta tekjuskattsþrepinu og slapp við 25 % álag á skattstofninn í refsingarskyni.  Þannig var tekið á henni með Silkihönzkum.  Hvers vegna ?  Er ekki sama Jón og séra Jón.  Það verður að vekja athygli á persónuleikabresti manneskju, sem siglir upp til æðstu valda hér.  

Helztu kjaftaskar landsins eru búnir að þenja sig út í eitt út af vinnuplaggi fyrrverandi Ríkisendurskoðanda um Arnarhvolsfyrirbærið.  Þáverandi Ríkisendurskoðandi, Skúli Eggert, gerði lítið sem ekkert með bægslagang vinnuplaggsins og fann mér vitanlega ekkert að málum Arnarhvols.  Hvers vegna á ekki að taka mark á Skúla Eggerti ?

Bjarni Jónsson, 10.7.2023 kl. 17:32

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Bjarni

Að formaður flokks sem kennir sig við jöfnuð, skuli geta aukið fé sitt úr þrem milljónum upp í yfir hundrað, á stuttum tíma, samrýmist vart jafnaðarstefnu. 

Að formaður flokks sem kennir sig við jöfnuð, skuli reyna að komast hjá að greiða til samfélagsins sem honum ber, samrýmist vart jafnaðarstefnu.

Verst er þó að þessi formaður heldur því fram að um áhættufjárfestingu hafi verið að ræða, að hún hafi lagt allt sitt sparifè að veði. Áhættufíklar eiga ekki heima í pólitík, allra síst flokki sem kennir sig við jöfnuð. 

Það er skelfileg tilhugsun að líklegt geti verið að svo siðlaus persóna, sem felur sig undir fölsku flaggi, geti orðið valdamest á Íslandi.

Áhættufíkill sem skirrist ekki við að sniðganga skattalög.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 11.7.2023 kl. 07:27

4 Smámynd: Bjarni Jónsson

Þakka þér fyrir þessa athugasemd, Gunnar.  Ég er algerlega sammála þér, og á þessum persónuleikabresti verður að vekja rækilega athygli, því að Kristrún þessi siglir undir fölsku flaggi, nema framkoma hennar sýni jafnaðarstefnuna í hnotskurn: "Allt þitt er mitt".  

Víða leynist ágirndin, maður.  Nú hefur verið upplýst, að Sigurður Þórðarson fékk yfir MISK 40 fyrir eftirlit með Lindarhvoli og skýrsludrög, sem virðist hafa verið uppfull af sleggjudómum, en bíðum og sjáum.  Mér finnst vinna hans lítils virði og hefði látið duga að henda í hann 1/10 af því, sem hann gerði reikning fyrir.  Nú hefur Lindarhvolsmálið verið sent Héraðssaksóknara.  Verða kjaftaskarnir ánægðir með það, sem þaðan kemur.  Mér segir svo hugur um, eftir öll svigurmælin, að vonbrigðin verði mikil.

Bjarni Jónsson, 11.7.2023 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband