2.10.2024 | 09:41
Skólar Vesturlanda víđa á villigötum
Hvergi á Vesturlöndum hefur grunnskólanum hrakađ meira en á Íslandi, ef marka má PISA-niđurstöđur. Samt skellir kennaraforystan og menntamálayfirvöld skollaeyrum, og engin viđleitni er sjáanleg til úrbóta. Af PISA-niđurstöđum er ţó ljóst, ađ versnandi árangur grunnskólanema er ţó vandamál víđar en hér, og kann einhvers konar tízkubylgju um breytta og slakari kennsluhćtti ađ vera um ađ kenna.
Í leiđara The Economist um menntamál, 13. júlí 2024, mátti m.a. lesa ţetta í ţýđingu ritara (ekki gervigreindar):
Ţađ er vel ţekkt, ađ C-19 faraldurinn truflađi skólastarfiđ mjög. Á tímabilinu 2018-2022 tafđist međaltáningur í ríku löndunum um u.ţ.b. 6 mánuđi m.v. áćtlađa framvindu í lestri og um 9 mánuđi í stćrđfrćđi samkvćmt OECD. Ţađ, sem er á vitorđi fćrri, er, ađ vandinn hófst löngu fyrir C-19. Dćmigerđur nemandi í OECD-landi stóđ jafnaldra sínum 15 árum fyrr ekki á sporđi í lestri og reikningi, ţegar C-19 hófst.
Í Bandaríkjunum sýna próf til margra ára í stćrđfrćđi og lestri, ađ árangur náđi hámarki snemma á 2. áratugi 21. aldarinnar. Síđan ţá hefur međalárangur ţar annađhvort stađiđ í stađ eđa honum hefur hrakađ. Í Finnlandi, Frakklandi, Ţýzkalandi og Hollandi o.fl. löndum sýna alţjóđleg próf, ađ árangri hefur lengi hrakađ. Hvađ hefur fariđ úrskeiđis ?
Ytri áföll hafa haft áhrif. Margir hafa viljađ flytja til Bretlands, og ţeir tala fćstir ensku. Farsímar trufla nemendur, svo ađ ţeir lesa ekki heima. C-19 faraldurinn setti allt á annan endann. Margar hérađsstjórnir lokuđu skólum of lengi, hvattar af stéttarfélögum kennara, og börn glutruđu niđur vananum ađ lćra. Mćtingar á mörgum stöđum eru lakari en fyrir C-19. Bekkjardeildir hafa orđiđ hávađasamari.
Engu ađ síđur bera menntayfirvöld mikla sök á stöđnuninni. Í Bandaríkjunum t.d. voru umbćtur í skólum einu sinni sameiginlegt málefni beggja stóru stjórnmálaflokkanna. Núna er hćgriđ heltekiđ af menningarstríđs málflutningi, en margir vinstra megin stunda, ţađ sem George W. Bush nefndi "hiđ mjúka ofstćki lítilla vćntinga" og halda ţví fram, ađ skólastofurnar séu međ slagsíđu í átt ađ minnihlutahópum og ađ ţađ sé ómögulegt og siđlaust ađ gera sömu kröfur til allra nemenda. Ađrir vilja heimavinnu og próf léttari eđa sleppt vegna geđheilsu nemenda.
Tízkuhugsun er andstađa festunnar. Ein kenning er um ţađ, ađ gervigreind muni gera hefđbundinn lćrdóm minna gagnlegan, svo ađ skólar ćttu ađ leggja áherzlu á "ađ leysa viđfangsefni", "gagnrýna hugsun" og nemendur, sem gengur vel ađ vinna í teymi. Á grundvelli ţessa hafa lönd tekiđ upp námsskrár, sem einblína á óljósa "ţekkingu" og gera lítiđ úr stađreyndalćrdómi sem gamaldags. Nokkrir, m.a. Skotar, hafa séđ nemendum hraka í reikningi sem afleiđingu. Ţeim, sem stađiđ hafa gegn ţessari nýtízku, s.s. Englendingum, hefur gengiđ betur.
Stjórnvöld ćttu ađ einbeita sér ađ grundvallar atriđunum. Ţau ćttu ađ verja ströng próf, vinna gegn einkunnabólgu og skapa svigrúm fyrir einkaskóla til ađ auka valfrelsi. Ţau ćttu ađ greiđa kennurum samkeppnihćf laun til ađ geta ráđiđ góđa kennara og reka slaka kennara, ţótt ţađ stríđi gegn vilja stéttarfélaga. Ţetta ţarf ekki ađ hćkka kostnađ, ţví ađ fámennar bekkjardeildir eru minna mikilvćgar en foreldrar ímynda sér. Fćrri og betri kennarar geta náđ betri árangri en margir slakir kennarar. Japanskir nemendur slá bandarískum jafnöldrum sínum viđ á prófum, ţótt međalskólastofan í grunnskóla í Japan sé međ 10 fleiri borđ en sambćrileg í Bandaríkjunum.
Annađ verkefni er ađ safna saman og dreifa upplýsingum um, hvers konar kennslustundir gagnast bezt - verkefni, sem margar skólastjórnir hunza. Stéttarfélög kunna ađ láta sér lynda, ađ litiđ sé á góđa kennslu sem of dularfulla til ađ mćla, en börn líđa fyrir ţađ. Skólakerfi á heimsmćlikvarđa, eins og í Singapúr, eru međ stöđugar tilraunir í ţessum efnum, misheppnast fljótt og halda áfram. Önnur halda áfram međ ţađ, sem ekki virkar.
Mikiđ er undir. Í ríkum löndum fćkkar starfsfólki, ţegar međalaldur ţjóđar hćkkar. Framleiđni verđur ađ vaxa til ađ viđhalda lífskjörum. Ţörf verđur á vel ţjálfum hugum til ađ fást viđ ný erfiđ viđfangsefni af viti, frá ójöfnuđi til loftslagsbreytinga. H.G. Wells, smásagnahöfundur og framtíđarspámađur, skrifađi, ađ saga mannkyns vćri "kapphlaup á milli menntunar og hruns". Ţađ er kapphlaup, sem mannkyniđ hefur ekki ráđ á ađ tapa. Ţetta var leiđari úr The Economist.
Ađ gera lítiđ úr vandanum, sem íslenzki grunnskólinn stendur frammi fyrir, eru grundvallar mistök yfirvalda menntamála á Íslandi og ađ setjast á sundurgreindar upplýsingar um PISA-prófin er uppgjöf. Međ óbreyttri stefnu menntamálaráđuneytisins bregđast íslenzk yfirvöld ćskunni og gera sig sek um vanrćkslu, sem mun óhjákvćmilega leiđa til hnignunar á flestum sviđum samfélagsins, minni framleiđniaukningar en nauđsynleg er, og lakari lífsgćđa.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Menntun og skóli, Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alţjóđamál | Facebook
Athugasemdir
Ţađ er í reynd sorglegt ađ sjá hvernig Kennarasamtökin rćđa málin. Ţeir virđast taka slöku gengi nemenda sem persónulegri árás. Margir kennarar upplifa ţađ ţannig líka, ţó ég skilji ţađ ekki. Sé ekki rćtt um vandann verđur hann ekki leystur. Kennarasamtökin slá sér á brjóst og minna á ađ skólar voru opnir á svokallađa covid-tímabili og segja önnur kennarasamtök líta á íslenska kerfiđ ađdáunaraugum. Ţrátt fyrir opnun skóla hér á landi skilađi ţađ sér ekki í námsárangri og kom ekki í veg fyrir verđbólgu í einkunnargjöf grunnskólakennara.
Viđ megum heldur ekki gleyma, nóg er til af stefnum, áćtlunum og markmiđssetningum í hverjum skóla. Hvort ţađ dugi skal ósagt látiđ.
Helga Dögg Sverrisdóttir, 3.10.2024 kl. 21:44
Skólakerfiđ, sem kennarasamtökin hafa stutt og kannski átt ţátt í ađ móta, er komiđ á endastöđ árangursleysis. Ţetta er auđvitađ viđkvćmt og grafalvarlegt mál fyrir kennara, sem nú starfa í umhverfi, sem gengur ekki upp, ţegar árangur er borinn saman viđ ađrar ţjóđir. Sá samanburđur er ţó ekki heilagur sannleikur, en bendir ţó eindregiđ til afturfarar í grundvallarţekkingu barna og unglinga. Ţađ er varla hćgt ađ hanga lengur á andstöđu viđ samrćmd, skrifleg próf í lok grunnskóla og andstöđu viđ ađ rađa nemendum í deildir eftir getu og námsáhuga. Núverandi kerfi felur í sér sóun á hćfileikum nemenda og kennara.
Bjarni Jónsson, 4.10.2024 kl. 09:25
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.