Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
1.10.2009 | 21:14
Á galeiðu vinstri stjórnar
Nú hefur endurskoðuð þjóðhagsspá verið birt. Hún er miklu dekkri en væri, ef hér sætu stjórnarherrar með skynsamlegu viti. Núverandi stjórnvöld gera ekkert af skynsamlegu viti, heldur er anað áfram út á foraðið og sokkið dýpra og dýpra í nafni félagshyggju, sem í reynd er óskynsamleg, ófélagsleg, ólýðræðisleg og óþjóðleg.
Með forsendum og gjörðum vinstri stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur er í téðri spá gert ráð fyrir áframhaldandi samdrætti landsframleiðslu og auknu atvinnuleysi árið 2010. Hvort tveggja er óviðunandi, en bein afleiðing stjórnarstefnunnar, sem er að hækka skattheimtu á fyrirtæki og einstaklinga í stað þess að auka tekjur hins opinbera með því að örva fyrirtæki til fjárfestinga með vaxtalækkunum og með því að hvetja til beinna fjárfestinga erlendra fyrirtækja í atvinnulífi landsmanna, sem skipti hundruðum milljarða króna á ári næstu árin, því að á slíku er völ. Ríkisstjórn vinstri manna er fjandsamleg athafnalífinu og fjandsamleg þeim, sem spjara sig og eru tilbúnir til að leggja harðar að sér og greiða guði, það sem guðs er, og keisaranum, það sem keisarans er.
Sértrúarsöfnuður sótsvarts afturhalds í atvinnumálum og í ríkisfjármálum hangir við stjórnvöl landsins án þess að hafa nokkra burði til að stjórna. Ríkisstjórnin klúðraði gjörsamlega málstað Íslands gagnvart ríkisstjórnum Stóra-Bretlands og Hollands varðandi meðferð innistæðna í útibúum Landsbankans í þessum löndum. Undir handarjaðri vinstri-græningjans á stóli fjármálaráðherra var haldið verr á málstað Íslands gagnvart erlendu ríkisvaldi en nokkur dæmi eru til um í Íslandssögunni. Alþingi neitaði að veita ómyndinni blessun sína, og nú virðast fulltrúar ríkisvalds ofangreindra þjóða hafa hafnað skilmálum Alþingis. Þar með er vinstri stjórnin komin á byrjunarreit öðru sinni með hið alræmda "Icesave" vandamál. Lausn þess hefur reynzt vera henni gjörsamlega um megn, og nú hefur einn ráðherra vinstri grænna, heilbrigðisráðherrann, Ögmundur Jónasson, hrokkið úr skaptinu. Hann neitar að láta beita sér lengur fyrir Samfylkingar vagninn, sem er á leið til Brüssel. Samfylkingardrógin ætlar inn í ESB, hvað sem tautar og raular. Allt verður undan að láta.
Þetta mál verður vafalítið banabiti ríkisstjórnarinnar. Væntanlega spyr nú margur búsáhalda byltingarseggur og -drós, hvað þau hafi í raun haft upp úr krafsinu. Svarið er sviðið land undan vinstri stjórn, sem hefur lagt hverja fátæktargildruna á fætur annarri fyrir landslýð. Ekki hefur komið ein einasta tillaga frá ríkisstjórn, sem örvar fólk til að auka við löglegar tekjur sínar. Allt stefnir í öfuga átt, og efnahagskerfið norður og niður.
Kostnaður hvers skattgreiðanda landsins vegna þessa endemis samnings fjármálaráðherra hleypur á bilinu 1,5-4,5 milljónir kr. Það er ljóst, að niðurlæging ríkisvaldsins vegna þessa Icesave máls er svo svakaleg, að orðið hefði venjulegri ríkisstjórn að aldurtila strax í sumar. Þessi ríkisstjórn kann hins vegar ekki að skammast sín, og það er fyrst nú eftir ritstjóraskipti á Morgunblaðinu 24. september 2009, að einn fjölmiðill í landinu tekur til varna fyrir skattgreiðendur í þessu landi að nokkrum ágætum vefmiðlum undanskildum.
Á sama tíma og vinstri grænir kosta þjóðina hundruði milljarða króna með fljótfærni, úthaldsleysi og þekkingarleysi á lögfræði og sálfræði alþjóðlegra samninga, þá hlunnfara þeir þjóðina um aðra hundruði milljarða króna með því að þvælast fyrir og tefja ákvörðunartökur, sem leitt gætu til stærstu erlendu fjárfestinganna, sem atvinnulíf landsmanna á völ á um þessar mundir. Hér er um örlítinn hóp ofstækisfullra sérvitringa að ræða, sem standa í vegi sóknar til bættra lífskjara, sem langflestir landsmenn styðja og munu ljá atkvæði sitt í næstu kosningum. Hér er um að ræða sama ofstopaliðið og kveikti elda framan Alþingis í vetur. Þetta lið stundar nú hernað sinn gegn þjóðinni úr Stjórnarráðinu. Nú þarf hinn þögli meirihluti að grípa til sinna ráða við fyrsta lýðræðislega tækifæri, sem gefst.
Á Alþingi þarf að leggja fram vantraust á umhverfismálaráðherra. Hún hefur brotið stjórnsýslulög með ákvarðanafælni sinni, sem leiddi til dráttar á úrskurði um kæru Landverndar um hálft ár. Þá sneri hún við niðurstöðu Skipulagsstofnunar ríkisins og lýsti þar með vantrausti á fagleg vinnubrögð þar á bæ. Þingeyingar telja, að úrskurður Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þáverandi umhverfisráðherra, hafi tafið undirbúning virkjana og álvers við Húsavík um a.m.k. eitt ár. Þessi geðþóttaákvörðun vinstri græningjans mun ekki hafa minni tafir í för með sér fyrir iðnþróun Suðurnesja, fái hún að standa. Alþingi getur tekið í taumana og komið í veg fyrir hundraða milljarða króna tjón í atvinnumálum landsmanna, eins og Alþingi bjargaði skattborgurum framtíðarinnar undan miklum byrðum vegna Icesave ánauðar í erfiðu árferði.
Þessi hernaður vinstri grænna gegn afkomu almennings er ekkert grín. Hann er þjóðhættulegur. Vinstri stjórnir í landinu hafa aldrei getað neitt annað en aukið skattheimtu og skuldir landsins. Þegar kemur að sparnaði og/eða uppbyggingu atvinnulífs, m.ö.o. viðreisn efnahagskerfisins, gera þær illt verra. Ríkisstjórnin er ekki á vetur setjandi, enda mundi slíkt leiða til þjóðargjaldþrots og fullkominnar ringulreiðar strax á næsta ári.
25.9.2009 | 23:15
Tímasóun
Ríkisstjórnin sóar tímanum til einskis. Hún er eins og fjörulús á tjöruspæni og kemst hvorki lönd né strönd. Ríkisstjórnin er forystulaus, og hún veit ekki, hvað hún vill. Hið fáa, sem hún kemur í verk, er misheppnað. Allt gengur á hraða dýrsins, sem myndin er af hér að neðan.
Ekki vantaði grobbið í fyrrverandi iðnaðarráðherra Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson, sem kallaði sig fyrsta olíumálaráðherra Íslands um þær mundir, er tilraunaboranir voru boðnar út á Drekasvæðinu. Útboð hans var samt andvana fætt, eins og nú er komið í ljós, vegna þess að skattagríð hans tók út yfir öll þjófamörk. Í stað þess að velgja norsku ríkisstjórninni undir uggum með sanngjörnum skattaskilmálum, sem drægju að sér alvöru fyrirtæki til að takast á við erfitt verkefni, þá yfirtrompaði hann skattaáþján norsku ríkisstjórnarinnar, svo að nú fæst enginn til að taka að sér verkefnið. Ríkisstjórnin er skipuð amlóðum og klaufum.
Flestar ríkisstjórnir hafa beitt mótvægisaðgerðum gegn kreppunni og lækkað skatta til að örva hagvöxt. Íslenzka ríkisstjórnin gerir allt með öfugum klónum og hækkar skattana. Hún er með allt niður um sig, enda eru skattahækkanir hið eina, sem hún kemur sér saman um að framkvæma. Þessar aðgerðir og hið yfirgengilega aðgerðaleysi á öllum öðrum sviðum hefur leitt til þess, að Íslendingar ná sér seinna upp úr efnahagskreppunni en aðrar þjóðir í stað þess að verða enn sneggri en aðrir til að ná sér á strik. Ráðleysi Stjórnarráðsins linnir ekki fyrr en þessari ríkisstjórn verður varpað á öskuhauga sögunnar, og það verður að eiga sér stað sem fyrst. Þjóðin verður að hrista óværuna af sér.
Það, sem gera þarf, er að liðka fyrir samningum við alla, sem hingað vilja koma með beinar fjárfestingar í fyrirtækjum. Það þarf líka að ganga endanlega frá samningum um eignarhald lánadrottna föllnu bankanna, án ríkisstofnunar undir fjármálaráðuneyti, svo að þeir fari að smyrja hjól atvinnulífsins. Það á að afnema heimild til vísitölutenginga frá næstu áramótum til að létta byrðar skuldugra og afnema gjaldeyrishöftin frá sama tíma, sem gera meira ógagn en gagn. Frá þeim tíma ætti að breyta lögum um Seðlabanka þannig, að markmið hans verði hámörkun hagvaxtar, en ekki 2,5 % verðbólga í föllnu hagkerfi.
Miklar erlendar fjárfestingar og mikil útflutningsverðmæti munu reisa íslenzku krónuna úr öskustó, þrátt fyrir ofangreint og vaxtalækkanir í kjölfarið. Yfir þrettán þúsund launþegar munu þá fljótlega tínast af atvinnuleysisskrá og taka að greiða til samfélagsins. Það á að lækka á þeim skattana, svo að þeir stækki þjóðfélagskökuna enn meira og tekjur hins opinbera vaxi að sama skapi.
Þrátt fyrir fullkomna óstjórn vinstri flokkanna í Stjórnarráði Íslands, steinþegja fjölmiðlarnir um hneykslið. Þeir eru þý óhæfrar ríkisstjórnar. Það var ekki fyrr en ritstjóraskipti urðu á Morgunblaðinu, að þeir vöknuðu af Þyrnirósar svefni sinnar makráðugu vinstri slagsíðu. Sefasýkisleg viðbrögð "auðjöfra", blaðamanna og ýmissa annarra púkablístra eru með ólíkindum og fyrir neðan allar hellur. Árvakur berst í bökkum og meirihluti stjórnar hans söðlar um. Óánægðir áskrifendur geta sagt upp áskrift, en það geta hvorki áheyrendur RÚV né móttakendur Fréttablaðsins.
Það, sem í húfi er hér, er lýðræðisleg umræða á Íslandi, hvorki meira né minna. Nú mun fást betra jafnvægi í flóru ritstjórna fjölmiðlanna, sem var orðin leiðinlega dauf og einsleit. Nú verður brugðið bröndum, og sá vígfimasti mun sigra.
Það er ástæða til að árna hinum nýju ritstjórum Morgunblaðsins allra heilla og að óska Morgunblaðinu góðs gengis.
8.8.2009 | 14:36
Afturgöngur
Sú var tíðin, að þjónustugreinum, s.s. margvíslegu fjármálasýsli, var hampað ákaflega hérlendis og boðað, að draumaland fjármálageirans tæki við af framleiðslugreinunum, t.d. iðnaði, ekki sízt orkukræfum. Svo skall á heimskreppa haustið 2008 með ársaðdraganda, og reið hún hinu íslenzka draumalandi spákaupmanna bréfahagkerfisins að fullu, enda voru innviðir þess grautfúnir.
Þar sem bankablaðran var orðin svo hræðilega útþanin, þegar hún sprakk, lamaði Hrun fjármálakerfisins efnahagskerfið í kjölfarið. Rann þá upp fyrir mörgum, að draumalandið eru draumórar einir og að viðreist Ísland verður reist á framleiðsluatvinnuvegunum, þ.á.m. á stórfelldri raforkuvinnslu fyrir orkukræfan iðnað á Íslandi (ekki fyrir flutning um sæstreng, nema e.t.v. til velgjörðarmanna okkar í Færeyjum) ásamt móttöku erlendra ferðamanna. Varðandi síðasta þáttinn er þó mikið verk óunnið í mengunarvörnum og náttúruvernd, ef ekki á að stórsjá á landinu eftir 0,5-1,0 milljón erlenda ferðamenn á hverju ári.
Af fyrrgreindum sökum kom fréttatilkynning Fjármálaráðuneytisins nr 53/2009 um "Mat á arðsemi orkusölu til stóriðju: Fyrsta áfangaskýrsla" eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Alkunnug eru viðhorf Steingríms J. Sigfússonar, áður en hann gekk í björg ráðherradóms 1. febrúar 2009 með Samfylkingu, til erlendra fjárfestinga í aflfrekum iðjuverum og til virkjana þeim tengdum. Svipuð virðast vera viðhorf hagfræðinganna fjögurra, sem í nafni viss einkahlutafélags setja fram sjónarmið sín í téðri skýrslu.
Höfundur þessarar vefgreinar fann sig knúinn til að gagnrýna skýrslu þessa, og mun umsögnin birtast í hausthefti 2009 af Þjóðmálum - tímariti um stjórnmál og menningu, sem bókafélagið Ugla ehf. gefur út ársfjórðungslega. Þar er glímt við þessa drauga fortíðarinnar, draumalandsins, sem ganga ljósum logum aftur í téðri skýrslu. Hér verður spjótunum meir beint að hinum galvaska fjármálaráðherra og stefnu hans.
Það er ótrúlegt, að í apríl 2009 skyldi Steingrímur J. Sigfússon telja brýnt að verja fé skattborgaranna úr ríkissjóði, sem rekinn var með yfir 200 milljarða kr halla í fyrra og litlu minni í ár, til að kosta skýrslugerð til að skjóta stoðum undir skoðanir sínar um, að raforkusala til stóriðju og stóriðjan sjálf séu þjóðhagslega óhagkvæm.
Þá eins og nú var lánsfé til atvinnuuppbyggingar ófáanlegt og tæp 10 % vinnuaflans í landinu á atvinnuleysisskrá. Það var þess vegna í apríl, eins og nú, deginum ljósara, að fengjust nýjar erlendar fjárfestingar til landsins og þar með lánstraust til að hefja nýjar virkjanir, þá mundi sú starfsemi ekki ryðja neinu öðru úr vegi, en ein af rökleysum draumalandsins eru s.k. "ruðningsáhrif" stóriðju, sem talin eru veikja atvinnulífið. Séu þau fyrir hendi, gefur auga leið, að þau styrkja efnahagskerfið með því að bjóða betur.
Síðan fjármálaráðherra pantaði téða skýrslu fyrir hönd skattborgara landsins, hefur álverð risið hraðar en nokkur átti von á og er í ágústbyrjun 2009 um 2000 USD/t. Þetta þýðir, að eftirspurnin er meiri en framboðið. A.m.k. fjórðungur framleiðslugetu álvera heimsins var stöðvaður við Hrunið, og verðið hrapaði niður undir 1200 USD/t. Það tekur lengri tíma að endurræsa þessi álver en nemur eftirspurnaraukningunni, og þess vegna hækkar verðið, þó að 16 vikna birgðir af áli séu á markaðinum. Við þessar aðstæður mun vakna áhugi fjárfesta að binda mikið fé í álverum, og mun Ísland koma þar við sögu. Spáð er jafnaðarvexti álnotkunar í heiminum sem nemur 4 % á ári af framleiðslunni eða um 1,6 milljónum tonna um þessar mundir. Framleiðslugeta íslenzku álveranna er nú helmingur af þessu.
Það veltur á viðhorfum stjórnvaldanna við Lækjartorg, hvort áhugi fjárfesta í þessari grein verður að atvinnutækifærum á Íslandi eða annars staðar. Ný álver munu verða reist og önnur stækkuð; svo mikið er víst.
Nú er áhugaverð spurning, hvers vegna ekki var dregið neitt úr framleiðslu álveranna þriggja á Íslandi í vetur ? Svarið við henni varpar ljósi á það, hvers vegna sala raforku til álvera á Íslandi er þjóðhagslega hagkvæm sem og álverin sjálf.
Þannig er búið um hnúta í raforkusamningum íslenzkra orkuvinnslufyrirtækja við stórnotendur (iðjuverin), að kaupskylda hvílir á mjög háu hlutfalli af heild umsaminnar orku. Þetta leiðir m.a. tvennt af sér:
- Orkusalinn getur lagt fyrir lánveitendur samning um tryggar lágmarkstekjur yfir tímabil, sem er lengra en nemur uppgreiðslutíma lánanna. Eftir þann tíma munu virkjanirnar enn halda áfram að mala eigendum sínum gull áratugum saman, enda er tæknilegur afskriftartími virkjananna, a.m.k. vatnsaflsvirkjana, miklu lengri en fjárhagslegur afskriftartími þeirra og tímalengd samninganna við stóriðjufyrirtækin. Meðalending virkjana á Íslandi er mun lengri en kolakyntra, gaskyntra og kjarnorkuknúinna orkuvera, og þar af leiðandi unnt að gera samsvarandi lægri arðsemikröfu á hverju ári. Af þessu leiða hagstæðari lánakjör, lægri vextir að öðru jöfnu, þar sem áhætta lánveitanda er í lágmarki. Þetta er ein af ástæðum þess, að raforkuverð til almennings er einna lægst, sennilega lægst nú orðið, á Íslandi, enda kemur vinnslukostnaður virkjana að sjálfsögðu fram í verði almenningsveitna. Málið er, að hlutfall stóriðjuorku af heildarraforkuvinnslu á Íslandi er hærra en annars staðar þekkist eða um 70 %. Álag stóriðjunnar er mjög jafnt yfir hvern sólarhring og yfir árið, og þar af leiðandi fæst betri nýting á raforkukerfið og fjárveitingar þess en annars staðar þekkist. Þetta þýðir, að raforkuverð getur verið lægra til allra notenda með stóriðjuálagi og veitt þó sömu eða meiri arðsemi virkjana og flutningsmannvirkja en ella væri án stóriðju.
- Hinn þjóðhagslegi kosturinn við háa kaupskyldu stóriðjuveranna er sá, að álverðið þarf að lækka mjög mikið, svo að borgi sig fyrir eigendur að stöðva framleiðslu álveranna. Verðið lækkaði í vetur niður undir 1200 USD/t Al, sem er mjög lágt, en augljóslega ekki svo lágt, að eigendur álveranna á Íslandi teldu borga sig að draga þar úr framleiðslu. Þetta veitir miklum stöðugleika inn í atvinnu-og efnahagslífið á Íslandi, sem meira þarf af.
Afturgöngur fjármálaráðherra rembast í skýrslu sinni við að sýna fram á, að orkuverð til álveranna á Íslandi sé lægra en í Evrópu og í Bandaríkjum Norður Ameríku og arðsemi orkufyrirtækjanna íslenzku lægri en þar og lægri en íslenzkra fyrirtækja almennt. Í þeirri viðleitni sinni seilast þeir langt og fara út fyrir velsæmismörk fræðilegrar umræðu, þar sem þeir bera saman epli og appelsínur og draga af niðurstöðunni þá kolröngu ályktun, að virkjanir til stóriðju, og stóriðjan sjálf, séu þjóðhagslega óhagkvæmar.
Hér hefur verið bent á eitt atriði, sem mælir á móti niðurstöðu fjórmenninganna, sem fjármálaráðherra keypti skýrslur af, en í téðri umsögn í Þjóðmálum mun gefa að líta margar aðrar röksemdir, sem kveða ættu niður þennan draugagang.
Fjármálaráðherra hefur ritað greinar og haldið ræður um þjóðhagslega óhagkvæmni stóriðju og er nú, í krafti síns embættis og mitt í kreppunni, augljóslega að reyna að skipuleggja vörn fyrir það, að hann, umhverfisráðherra og ríkisstjórnin, dragi lappirnar við ákvarðanatöku um ný stóriðjuver og virkjanir fyrir þau.
Eitt af því, sem fjármálaráðherra tíndi til í greinum sínum og ræðum, var, að stóriðjan útheimti miklar fjárfestingar fyrir hvert starf, sem af þeim fjárfestingum leiddi. Í ljósi þess, að um erlendar fjárfestingar er að ræða í iðjuverunum, að stórum hluta úr sjóðflæði móðurfyrirtækjanna, eru miklar fjárfestingar á bak við hvert starf einvörðungu þjóðhagslegur kostur hér, því að hluti þessara miklu fjárfestinga flæðir um íslenzka efnahagskerfið og veitir ekki af nú um stundir. Þá gefur auga leið, að dýr vinnustaður er líklegri til að verða starfræktur, haldið við og þróaður, til langframa en ódýr, sem er þjóðhagslegur kostur. Þessi röksemd fjármálaráðherra, sem ýmsir hafa tuggið síðan, snýst þess vegna upp í að verða röksemd fyrir því að ýta undir slíkar fjárfestingar hérlendis.
Til að brjótast út úr núverandi kreppu eru viðhorf fjármálaráðherrans vonlaus. Lánsfé er ekki á lausu, og eitt af fáum úrræðum, sem eitthvað munar um, er að laða hingað að fjárfesta, sem sjá tækifæri í uppsveiflunni, sem koma mun eftir þessa harðsvíruðu heimskreppu. Þannig mætti rjúfa þann vítahring vantrausts, sem enn girðir fyrir lánveitingar til landsins.
Viðskipti og fjármál | Breytt 9.8.2009 kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.7.2009 | 20:54
Hýjalín
Seinna ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur minnir nú æ meira á keisarann klæðlausa. Nýjustu klæðskerar þessa hýjalíns nefna sig aðila vinnumarkaðarins, og fatið nefna þeir "Stöðugleikasáttmála". Ekki verður séð, að sáttmáli þessi verði í askana látinn, sé ávísun á ný störf eða breyti nokkru, sem máli skiptir í núverandi stöðu. Réttast væri að kalla þetta hýjalín Jóhönnu Sigurðardóttur stöðnunarsáttmála, því að í honum eru engin nýmæli, og launþegar og fólk án vinnu er nokkurn veginn jafnnær.
Þann 30. júní 2009 voru birtar fréttir af nýju lánshæfismati "Standard & Poors" á Landsvirkjun. Fyrirtækið hefur hrapað niður í svo kallaðan ruslflokk, sem mun torvelda því mjög lánsfjármögnun og gera allar stórfjárfestingar þess dýrar á meðan þetta mat varir. Þetta eru þess vegna mikil ótíðindi, sem munu draga dilk á eftir sér. Verður nú brýnt að leita nýrra leiða til fjármögnunar verkefna og ekki að undanskilja eignarhlut í fyrirtækinu í því sambandi. Komu þessi tíðindi sama dag og ríkisstjórnin lagði fram sitt "Icesave" mál. Ljóst er, að ekkert hald verður í ríkissjóði sem bakhjarli fyrir stórfyrirtæki á borð við Landsvirkjun næsta áratuginn, ef þrælasamningur þessi verður staðfestur af Alþingi. Brottfall ríkisábyrgðar í raun hefur sennilega haft sín áhrif til að rýra tiltrú Standard & Poor, en þeir þykjast jafnframt hafa breytt áherzlum í matsaðferðum sínum. Tekjugrunnur Landsvirkjunar er traustur og m.a. álverð á uppleið. Hér eru ekki öll kurl komin til grafar.
Athafnaleysi ríkisstjórnarinnar er að verða himinhrópandi. Nú er komið mitt ár 2009, og nánast ekkert farið að taka til hendinni. Flotið er sofandi að feigðarósi. Ef allt væri með felldu og starfsöm ríkisstjórn væri í landinu, væru stórfelldar sparnaðaraðgerðir hafnar, og ný atvinnutækifæri hefðu þegar séð dagsins ljós. Þess í stað lullar allt í sama farinu, og engin teikn eru á lofti um, að dragi úr geigvænlegu atvinnuleysi. Er óbjörgulegt fyrir launþega að horfa til næsta vetrar. Er ríkisstjórnin á vetur setjandi ?
Boðaðar aðgerðir vinstri stjórnarinnar bæta ekki stöðuna; þvert á móti, þær gera illt verra. Með því að þyngja álögur á fyrirtækin, fækkar ríkisstjórnin störfunum. Með skattahækkunum á almenning fjölgar þeim fjölskyldum, sem lenda í greiðsluþroti, peningamagn í umferð minnkar og kreppan dýpkar. Að fresta og skera arðsamar framkvæmdir niður við trog í núverandi árferði nær ekki nokkurri átt, enda er leitun að slíkum stjórnvaldsaðgerðum í löndum í efnahagskreppu. Þetta á t.d. við um samgöngumálin, en Vegagerðin hefur m.a. verið að stytta vegalengdir, klæða vegina bundnu slitlagi og fækka einbreiðum brúm. Með aðgerðum sínum eykur ríkisstjórnin atvinnuleysið og magnar kreppuna.
Ef hér væri nú ríkisstjórn, sem vissi, hvað hún vildi, kynni að forgangsraða og kynni til verka, þá væri öðru vísi umhorfs hér. Í stað hækkunar beinna og óbeinna skatta, væri búið að setja lög um innskatt á lífeyrissjóðina í stað útskatts í samræmi við efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokksins. Hún færir ríkissjóði mun hærri tekjur en kropp ríkisstjórnarinnar í það, sem ekkert er. Með góðri samvinnu við AGS væri endurfjármögnun bankakerfisins lokið, og bankarnir farnir að veita atvinnulífi og almenningi "súrefni". E.t.v. hefði tekizt með aðstoð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins AGS (IMF) eða jafnvel Alþjóða bankans, sem lánar til nýtingar endurnýjanlegrar orku, aðallega í þróunarlöndunum, að koma á samningum um stórframkvæmdir í landinu til nýtingar á náttúruauðlindum þess. Hér hefur aðeins fátt eitt verið talið af því, sem gæti hafa slegið umtalsvert á hrikalegt atvinnuleysisbölið.
Ríkisstjórnin á í sparnaðarskyni að færa þjónustustig ríkisins aftur um 7-10 ár reiknað í fjárframlögum til málaflokka í raunkrónum á mann. Ef einkaframtakið vill taka að sér þá þjónustu, sem ríkið ekki getur sinnt um sinn, þá er greinilega markaður fyrir hendi og á að semja fordómalaust um slíkt fyrirkomulag, svo að hver hafi fyrir sinn snúð nokkuð, neytendur, skattgreiðendur og verktakar. Að skera niður arðbærar fjárfestingar, t.d. í samgöngumálum, er skammsýnt og lýsir uppgjöf gagnvart ofvöxnum ríkisrekstri.
Ríkisstjórnin þykist hafa leyst svo kallað "Icesave" mál með þeim endemis samningi, sem Svavar Gestsson, sendiherra, kom heim með. Fyrrverandi hæstaréttardómari, Magnús Thoroddsen, kveður hann þó vera "hænufet frá landráðum". Hér er djúpt tekið í árinni, en slíkur maður, sem Magnús er, gerir slíkt vart, nema að vandlega athuguðum samningi, landslögum og Stjórnarskrá.
Hann telur ennfremur brjóta í bága við Stjórnarskrá, að Alþingi skuldbindi ríkissjóð til að greiða upphæðir, sem enginn veit, hversu háar verða. Magnús Thoroddsen telur, að breyta verði stjórnarskrá áður en Alþingi geti samþykkt ríkisábyrgð á skuldum Tryggingarsjóðs innistæðna skilmálalaust. Ef Alþingi samþykkir íþyngjandi gjörning, sem lögfróðir menn telja ganga á svig við Stjórnarskrá, kann ríkið þar með að eiga yfir höfði sér lögsóknir í kjölfarið.
Frá stjórnmálalegu sjónarmiði má ætla, m.v. skoðanir landsmanna á téðum samningi, að Alþingismenn fremji stjórnmálalega kviðristu á sjálfum sér ("harakiri") með því að samþykkja ríkisábyrgð skilmálalaust.
Jón Daníelsson, prófessor við "London School of Economics", birtir í Morgunblaðinu 30. júní 2009 greinina: "Þennan samning verður að fella". Birtir hann þar haldgóð hagfræðileg rök máli sínu til stuðnings. Hann telur forsendur í Evrópu hafa breytzt okkur Íslendingum í hag. Nú blási ekki jafnnaprir vindar til Reykjavíkur frá höfuðborgum Evrópu, af því að hættan á bankahruni þar sé liðin hjá. Af þessum ástæðum sé ekki áhorfsmál að freista nýrrar samningsgerðar með einvala liði okkar megin samningaborðs í þetta skiptið ekki síður en andspænis okkur. Er ekki að efa, að sjálfstæðir þingmenn í öllum flokkum munu íhuga þessa grein Jóns vandlega:
"Þegar íslensku bankarnir hrundu í október, var mikil óvissa um fjármálastöðugleika í Evrópu. Stórir bankar riðuðu til falls og annað var óhugsandi fyrir Evrópuþjóðir en láta Íslendinga gangast við tryggingaskuldbindingum sínum. Ella hefði almenn vantrú getað skapast á tryggleika evrópskra bankainnistæðna og bankaáhlaup siglt í kjölfarið. Af biturri reynslu þekkja menn hvernig allir bankar, góðir sem lélegir, geta hrunið líkt og spilaborg í einu vetfangi við slíkar aðstæður."
Hótanir landstjórnarinnar í nafni erlends valds í garð þings og þjóðar eru ósmekklegar, lítilsigldar og að engu hafandi, enda hafa þessar tvær erlendu ríkisstjórnir, sú brezka og hollenzka, ekki öll ráð Íslendinga í hendi sér, eins og t.d. Danakóngur hafði 1662, er hann var samþykktur einvaldur og honum voru svarnir trúnaðareiðar af tárfellandi höfðingjum Íslands í Kaupavogi undir fallbyssukjöftum Dana. Sýnir þessi hræðsluáróður vinstri stjórnarinnar svart á hvítu, hversu lágt er á henni risið, og að þar fer fólk lítilla sanda og lítilla sæva.
Samningurinn um greiðslutryggingu þessara erlendu innlánsreikninga (ólánsreikninga), sem ríkið skuldbatt sig aldrei til að standa skil á, leysir ekki úr vanda okkar Íslendinga í þessu máli, heldur ýtir honum 7 ár fram í tímann og magnar vandann um leið vegna hárra vaxta (5,55 %) á höfuðstólnum allan samningstímann (15 ár frá 1.1.2009).
Alþingi verður þess vegna að bregðast við með öðrum hætti en að láta stilla sér upp við vegg. Alþingi á að setja þrjá skilmála fyrir því að samþykkja ríkisábyrgð á skuldum Trygginarsjóðsins:
Niðurstaða viðræðnanna varð sú að setja skuldabréf að veði fyrir greiðslum Tryggingarsjóðs, sem byrjar að bera 5,55 % vexti þann 1.1.2009, en á ekki að greiða af fyrr en árið 2016. Lán núna vegna skuldbindingar, sem þarf að hefja greiðslur á að 7 árum liðnum, mun þá hafa hækkað um 45,5 %, þegar greiðslur eiga að hefjast. Vextir á ríkisskuldabréfum til 10 ára ("10 years´ governmental bond yields") á evru-svæðinu eru núna 3,69 %, 3,49 % í Svíþjóð, í Danmörku 4,10 % og í Bretlandi 4,11 %. 5,55 % er lægri tala en nemur meðaltali í Evrópu utan evru-lands, sem er 6,36 %. Þessar vaxtaprósentur endurspegla auðvitað lánshæfismat á viðkomandi ríkissjóðum og lítið við því að segja.
Hins vegar eiga fyrstu skilmálar Alþingis að vera þeir að neita um ríkisábyrgð á vaxtakostnaðinum.
Annað skilyrðið, sem Alþingi ætti að setja fyrir ríkisábyrgð, er þak á árlegar greiðslur úr ríkissjóði, reyni á ríkisábyrgðina.
Að öðrum kosti er hætta á greiðslufalli ríkissjóðs og lánshæfismati sambærilegu lánshæfismatinu á Landsvirkjun, þó að þar hafi aldrei orðið greiðslufall. Nefnt hefur verið hlutfallið 1,0 % af VLF, sem eru um ISK 14 mia um þessar mundir eða um 3,5 % af núverandi tekjum ríkissjóðs. Þetta mun verða mjög hátt hlutfall af greiðsluafgangi ríkissjóðs og mun verða svo íþyngjandi, að hér kann að þurfa að setja á innflutnings-og gjaldeyrishöft til að afla ríkissjóði gjaldeyris. Ábyrgð ríkissjóðs og vaxtaskeiðið standi aðeins yfir í umsamin 15 ár til 2024, en eftir það standi Tryggingarsjóðurinn óstuddur að greiðslum eftirstöðvanna.
Þriðja skilyrðið er, að dómur falli í málinu um það, hvort íslenzka ríkinu beri að ábyrgjast greiðslur Tryggingarsjóðs á "Icesave"-reikningunum.
Virtir lögspekingar hafa látið í ljós rökstuddar efasemdir um lögmæti þess að krefjast þessarar ríkisábyrgðar. Starfandi hæstaréttardómari telur, að stjórnvöldum á Íslandi beri skylda til þess gagnvart íslenzku þjóðinni að fá óvilhallan dómsúrskurð um þetta mikils verða deiluefni. Fyrrverandi hæstaréttardómari telur dómstólaleiðina færa, þó að gagnaðilarnir þráist við. Þeir munu hafa hafnað því að leggja ágreininginn fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag. Að skipa alþjóðlegan gerðardóm með t.d. Bandaríkjamann í forsæti kæmi til greina. EFTA-dómstóllinn hefur verið nefndur og einnig Mannréttindadómstóll Evrópu. Þá má minna á, að varnarþing íslenzka ríkisins er í Reykjavík, ef einhver vill sækja mál á hendur íslenzka ríkinu. Á því er ekki mikil hætta í þessu máli, því að íslenzka ríkið hefur ekkert af sér brotið í þessu máli að beztu manna yfirsýn.
Eftir höfnun Alþingis á beiðni ríkisstjórnarinnar um skilmálalausa ríkisábyrgð á samningi sínum mun vafalítið verða setzt að nýju við samningaborðið, og þá verðum við að tjalda því, sem til er. Okkar megin borðsins á þá að velja toppfólk af sviðum lögfræði, hagfræði og sálfræði. Prófessor Jón Daníelsson hefur líkt fyrri viðureigninni við kappleik Gróttu og Manchester United, en það er alger óþarfi af íslenzkum yfirvöldum að fara í hlutverk músarinnar á móti kettinum við samningaborðið. Trippin hafa verið afspyrnu illa rekin í þessu máli og tími til kominn að snúa taflinu við.
17.6.2009 | 18:41
Atgervi
Maður dagsins fæddist 17. júní 1811 á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Jón Sigurðsson, forseti Alþingis, var fræðimaður og stjórnmálamaður í fremstu röð. Hann greindi stöðu Íslands á sinni tíð í samfélagi þjóðanna með skarplegri hætti en aðrir menn fyrr og síðar. Ísland var þá fátækt jaðarsvæði Danaveldis, og glöggskyggni og framsýni Jóns einstæð.
Niðurstaða greiningar Jóns, forseta, var í stuttu máli sú, að Íslandi mundi þá bezt vegna, byggju landsmenn við frelsi í hvívetna, þ.e. atvinnufrelsi, þ.m.t. verzlunarfrelsi, og sjálfstæði frá öðrum ríkjum. Jón taldi Íslendingum, með öðrum orðum, mundi þá bezt farnast, ef þeir stjórnuðu sínum málum sjálfir, þ.e. valdstjórnin yrði færð frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur.
Sagan hefur rækilega sannað þessa kenningu. Þegar Íslendingar fengu Heimastjórn árið 1904, voru þeir ein fátækasta þjóð Evrópu. Öld síðar voru þeir á meðal ríkustu þjóða heims reiknað í VLF/íb (vergri landsframleiðslu á íbúa). Það eru óvéfengjanleg orsakatengsl þarna á milli.
Nú bregður hins vegar svo við, að upp er risinn allstór hópur í landinu, sem heldur því blákalt fram, að Íslendingum muni vegna betur, ef þeir "deili fullveldi sínu með öðrum Evrópuþjóðum", þ.e. flytji valdstjórnina að hluta til frá Reykjavík til Brüssel. Telja sumir þetta jafnvel mundu verða allra meina bót, enda hefur ríkisstjórnin nú lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um aðildarviðræður við ESB, að vísu í skötulíki. Ljóst er, að aðeins þeir, sem telja fullveldinu að einhverju leyti betur fyrir komið í Brüssel, kæra sig um að leggja nú í erfiðar aðildarviðræður við ESB. Hinir hafa auðvitað á því engan gáning og telja tíma og kröftum stjórnvalda vera betur varið á öðrum vettvangi. Það er nokkurn veginn vitað til hvers aðildarviðræður munu leiða. Þær munu leiða til aðildarsamnings á forsendum ESB, eins og niðurstaðan hefur verið í aðildarviðræðum annarra landa áður.
Ásókn hvaðanæva að hefur verið í aðild fram að þessu, fyrst af sögulegum ástæðum til að slíðra blóðrefil stórvelda Evrópu, en einkum seinni árin frá þjóðum, sem annaðhvort hafa viljað komast í hernaðarlegt skjól gagnvart rússneska birninum, eða efnahagslegt skjól í ölduróti heimsviðskiptanna. Átti hið síðar nefnda áður við um Suður-Evrópu, en þar er nú megn óánægja með aðildina og þá spennitreyju, sem evran er þessum þjóðum. Vitað er, að Þjóðverjar keyptu sameiningu lands síns við því verði af Frökkum 1989 að leggja niður þýzka markið. Það varð upphaf evrunnar.
Bæði öryggisleg og efnahagsleg rök hafa ýtt fyrrum austantjalds þjóðum í fang ESB.
Í flestum aðildarlöndunum er megn óánægja með aðildina, m.a. vegna ólýðræðislegra stjórnarhátta (lýðræðishalla), skrifræðis-og embættismannabákns, mikils kostnaðar og spillingar við meðferð fjármuna. Því má bæta við, að báknið í Brüssel og annars staðar á vegum ESB, sem telur yfir eitt hundrað þúsund manns, mun verða sífellt þyngra á fóðrum, því að Evrópa eldist nú hratt og stefnir í, að þriðjungur íbúanna verði yfir sextugu á tímabilinu 2030-2050.
Þessu er öðru vísi háttað á Íslandi. Þjóðin er ung (meðalaldur lágur) og töluverð viðkoma undanfarið. Nú hefur mannfjöldaþróunin hins vegar skipazt þannig á Íslandi í fyrsta skipti síðan 1880-1890, að fækkun hefur orðið á landinu. Í fyrri kreppum dró úr fjölgun. Er þetta afleiðing efnahagskreppunnar í kjölfar hruns fjármálakerfisins í október 2008, en segja má í þeim efnum, að vinstri stjórnin hafi bætt gráu ofan á svart. Má líkja aðgerðum og aðgerðarleysi núverandi ríkisstjórnar við skemmdarverkastarfsemi á atvinnulífinu, sem magnað hefur atgervisflótta úr landinu. Dæmi um þetta verða nú upp talin:
Afarkostir þeir, sem ríkisstjórnin hefur gengið að í "Icesave" málinu, virka á efnahagskerfið eins og fallöxi þjóðargjaldþrots, sem dregin hefur verið upp. Samkomulaginu hefur verið líkt við Versalasamningana, sem girtu fyrir endurreisn þýzka hagkerfisins eftir fyrri heimsstyrjöld. Krónan mun ekki ná sér á strik með þessa þjóðarskuld yfirvofandi, sem leiðir til mikils aukakostnaðar heimila og fyrirtækja. Með þessu verður girt fyrir möguleika landsins á að uppfylla skilyrðin um upptöku evru næstu 10-20 ár. Málflutningur ríkisstjórnar og samninganefndar um, að bezta mögulega samningi hafi verið landað, er ótrúverðugur, enda í samninganefndinni ekki mesta atgervisfólkið á sviði lögfræði og fjármála, sem Íslendingar eiga á að skipa.
Furðutiltektir ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálunum, en þó aðallega aðgerðarleysi hennar á því sviði, hefur sett samstarfið við AGS (Alþjóða gjaldeyrissjóðinn) í uppnám og gert Seðlabankanum ókleift að lækka vexti niður að 0 % raunvöxtum, sem atvinnulífinu ríður á núna, og þó fyrr hefði verið. Bið er þess vegna eftir lánum frá AGS til endurfjármögnunar bankanna og styrkingar krónunnar með eflingu gjaldeyrisvarasjóðs. Í stað skattaáþjánar, sem enn mun hægja á hjólum hagkerfisins, væri ríkisstjórninni nær að reyna að krækja í eitthvað af þeim 50 milljörðum króna, sem áætlað er, að skotið sé undan skatti árlega. Skattahækkanir gera illt verra. Þær dýpka kreppuna, því að viðskiptin í þjóðfélaginu dragst saman. Þetta fjölgar gjaldþrotum og eykur atvinnuleysið. Atgervisfólk erlendis frestar heimkomu, og atgervisfólk hérlendis flýr land m.a. vegna skattaáþjánar.
Seinlæti ríkisstjórnarinnar við endurreisn fjármálakerfisins hefur hneykslað erlenda ráðgjafa og aukið kvalræði atvinnulífsins með miklu meira atvinnuleysi í landinu en ella sem afleiðingu.
Stefna ríkisstjórnarinnar um "innköllun aflaheimilda" er hótun um þjóðnýtingu nýtingarréttar á auðlindum hafsins, sem flestir handhafarnir hafa fest kaup á. Sýnt hefur verið fram á það, m.a. í grein Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, Drápsklyfjum sjávarútvegsins, sumarútgáfu Þjóðmála 2009, að "fyrningarleiðin" rekur sjávarútvegsfyrirtækin beint í gjaldþrot. Þetta hefur þegar dregið úr fjárfestingum þeirra og fjárveitingum til viðhalds. Hið sama gerist alls staðar, þar sem hótanir um þjóðnýtingu vofa yfir, sbr í Venezúela undir sameignarsinnanum Hugo Chávez.
Úr því að olíuríki bar á góma má nefna, að iðnaðarráðuneytið, undir stjórn Samfylkingar, hefur samið reglur um svo þrælslegar skattaálögur á olíuvinnslu á Drekasvæðinu, að það hefur drepið niður áhuga olíufélaga á olíuleit þar. Dæmigert fyrir vinstri menn er að slátra gullhænunni áður en hún fer að verpa. Er þó brýnt að efla áhuga olíufélaganna á vinnslu þarna, svo að olían létti undir efnahag landsmanna og hækki lánshæfismat ríkisins þegar á næsta áratugi, ef hún finnst þarna í miklu magni (norska fyrirtækið Sagex gizkar á 10 milljarða tunna olíujafngildis af gasi og olíu).
Fjárfestingar í virkjunum og í nýrri stóriðju eru lífsnauðsynlegar núna til að koma hjólum atvinnulífsins strax í gang. Við þær aðstæður birtir ríkisstjórnin skjal, Lofslagsstefnu Íslands, þar sem íslenzka ákvæðinu, svo nefnda, úr Kyoto samkomulaginu, um 1600 t koltvíildis til viðbótar frá nýrri stóriðju, sem notar raforku frá sjálfbærum og afturkræfum orkuverum, er kastað fyrir róða, þó að það sé enn vannýtt. Þetta getur haft þær afleiðingar í för í með sér, að Ísland verði ekki jafnsamkeppnihæft um nýjar fjárfestingar og áður eða að gefa verði afslátt á orkuverði sem svarar til kostnaði við kaup á koltvíildiskvóta, nema allar þjóðir sitji við sama borð að þessu leyti. Einkennilegt er að kasta frá sér umsömdum réttindum til handa nýrri stóriðju. Það var alger óþarfi í núverandi efnahagsástandi, enda mun Ísland geta sýnt fram á mjög góðan árangur í loftslagsmálum árið 2020 með endurheimt votlendis, landgræðslu, skógrækt og rafvæðingu bílaflotans á næsta áratugi.
Þó að hér hafi verið rakin sláandi dæmi, sem líkja má við skemmdarverkastarfsemi á atvinnulífinu, er e.t.v. aðeins um að ræða birtingarmynd mikils atgervisleysis á vinstri væng stjórnmálanna. Vinstri mennskan er knúin áfram af öfund í garð þeirra, sem velgengni njóta. Gildir þá einu, hvort um er að ræða afrakstur mikillar vinnu langskólagengins fólks, góðs viðskiptaárangurs á grundvelli nýrra hugmynda eða annað. Dæmin í þessa veru hrannast nú upp. Boðaður er jaðarskattur á tekjur sérfræðinga, sem mikil spurn er eftir um allan heim, sem slagar upp í helming af hverri krónu, sem þeir vinna sér inn. Séu þeir svo óheppnir að vinna fyrir ríkið, er þeim nú hótað launalækkun niður fyrir laun forsætisráðherra. Það er furðulegt og órökstutt með öllu, að enginn ríkisstarfsmaður megi hafa hærri laun en forsætisráðherra.
Ef músarholusjónarmið vinstri mennskunnar halda áfram að tröllríða húsum í þessu landi, mun bresta hér á slíkur atgervisflótti, að allar "aðgerðir" stjórnvalda, sama hvaða nafni þær nefnast, verða unnar fyrir gýg. Þannig lenda landsmenn í vítahring atgervisleysis vinstri stefnunnar.
Í stað eymdar og volæðis vinstri stjórnarinnar þarf að taka stefnuna á hagvöxt. Fyrst þarf ríkisvaldið þó að greiða úr mörgum flækjum til að skapa hagvextinum nauðsynlegar forsendur. Til þess þarf mikið atgervi, og hagvöxtur verður einvörðungu knúinn áfram af einkaframtakinu. Ríkisrekstur er til þess ófær. Það verður þess vegna að einkavæða atvinnulífið, og til að það verði með sómasamlegum hætti þarf atgervi.
Viðskipti og fjármál | Breytt 21.6.2009 kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.6.2009 | 07:38
Afarkostir
Ríkisstjórnin ætlar að óska eftir því við Alþingi, að þingmenn samþykki samning, sem þeir fá enn ekki að sjá í heild sinni. Mun þessi furðulega málsmeðferð vera að kröfu gagnaðilanna í þessu máli, Breta og Hollendinga.
Það er slæmur vegvísir við lausn milliríkjadeilna að neita að leggja þær í dóm. Þess í stað tók ESB (Evrópusambandið) Ísland kverkataki með áróðursstríði, þar sem viðskiptabann lá í loftinu. Áttu íslenzk stjórnvöld e.t.v. ekki annarra kosta völ en að samþykkja hinn kostinn, sem var stjórnmálaleg lausn á milliríkjadeilu ? Stjórnvöld eiga enn eftir að gera þjóðinni grein fyrir þessu.
Utanríkisráðuneytið fór frá upphafi með forræði þessa máls fyrir Íslands hönd. Það virðist hafa verið óþarfi af ráðuneytinu að láta draga sig að samningaborðinu skilmálalaust og vitnar um lélegan málatilbúnað Samfylkingar, en ráðherrar hennar stjórnuðu utanríkisráðuneytinu. Í "viðskiptastríði" ESB gegn Íslandi varð eyríkið fámenna strax að lúta í lægra haldi. Við þessar aðstæður virðist dómstólaleiðin hafa verið gefin upp á bátinn, og spurningin er, hvort nauðsyn bar til að lyppast niður gagnvart ESB á þessari stundu. Stjórnvöld eiga eftir að útskýra þá ákvörðun sína fyrir Alþingi og fyrir kjósendum.
Þangað til betri skýring fæst verður að líta svo á, að ríkisstjórnin hafi verið þvinguð að samningaborðinu með hótunum um viðskiptastríð að hálfu ESB. Fordæmalaust er, að "stríðsskaðabætur" séu greiddar með vöxtum. Með Versalasamningunum lögðu Vesturveldin svo háar stríðsskaðabætur á Þýzkaland, að þýzka hagkerfið kiknaði undan þeim, og óðaverðbólga heltók efnahagskerfi Þjóðverja með þeim afleiðingum, að Weimar-lýðveldið hrundi. Verður Ísland ofurselt svipuðu ástandi undir drápsklyfjum ESB ? Markaðurinn virðist hallast að því m.v. viðbrögð gengisskráningar krónunnar, þegar fréttir bárust af undirritun "Svavars-samkomulagsins".
Ef lítið sem ekkert fæst fyrir "eignir" Landsbankans á Englandi, þá mun skuldafarganið nema þrefalt hærri upphæð á hvern Íslending að 7 árum liðnum en á hvern Þjóðverja árið 1920. Engir vextir voru þá lagðir á stríðsskaðabætur Þjóðverja.
Þessi aðför ESB að Íslendingum er fordæmalaus, samningurinn alger óhæfa og gefur slæma vísbendingu um framtíðina, þegar hagsmunaárekstrar munu reka Íslendinga til að andæfa Brüssel valdinu. Skessur Samfylkingar og Evrópusambandsins hafa kastað fjöreggi þjóðarinnar á milli sín. Enginn getur metið nú, hversu miklar líkur eru á, að allt fari á versta veg að 7 árum liðnum með þeim skelfilegu afleiðingum, að megnið af höfuðstólnum ásamt vöxtunum leggist á skattgreiðendur tímabilsins 2016-2024. Gizka má á, að líkurnar séu þó minni en 50 %, en að taknu tilliti til hrikalegra afleiðinga eru jafnvel 1 % líkindi óásættanleg.
Hins vegar er hægt að reikna, að á næstu 7 árum ("grace period") mun upphæðin vaxa um 46 % vegna 5,55 % árlegra vaxta og verða þá ISK 832 milljarðar, verði ekkert greitt á tímabilinu. Að 16 árum liðnum munu þessir sömu skattborgarar hafa greitt ISK 1012 milljarða með vöxtum eða alls ISK 394 milljarða í vexti, sem er 69 % viðbót við upphaflegan höfuðstól, ef landið hefur þá ekki áður komizt í greiðsluþrot.
Þetta jafngildir meðalgreiðslum ISK 104 milljörðum á 8 ára greiðslutímabili eða 8 % af núverandi VLF (vergri landsframleiðslu). Þessar upphæðir og hlutföll sýna, að algert ábyrgðarleysi felst í því að ganga að þessum samningum. Ekkert þjóðþing mundi samþykkja gjörning, þar sem nokkur líkindi stæðu til þess, að þjóðin yrði hneppt í slíka heljarfjötra, og engin þjóð lætur bjóða sér annað eins og þetta.
Ríkisstjórnin átti ekki að veita samninganefnd sinni umboð til að ganga að hverju sem var. Til þessara samninga var gengið undir nauðung sem hverra annarra uppgjafarsamninga, og fórnarlambið átti ekki að samþykkja neina vexti, enda fordæmi um það komið frá Englandsbanka (frysta inneignin) og Versalasamningunum. Engin löggjafarsamkoma getur verið þekkt fyrir að samþykkja hærri árlegar greiðslur af þessu tagi en 1 % af VLF, sem vaxtalaust mundi þýða greiðslur í um 30 ár. Vinstri stjórnin ætlar unga Íslandi að greiða átta sinnum hærri upphæð árlega.
Ámátlegt er að heyra þvælu utanríkisráðherra um, að minnisblað fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hafi stöðugt þvælzt fyrir samningamönnum. Minnisblað þetta var undirritað af samninganefnd, sem var undir stjórn utanríkisráðuneytisins, og viðskiptaráðuneytið átti þar fulltrúa einnig. Samfylkingin er furðu-fyrirbrigði, sem enga burði hefur til að stunda faglega og ábyrga stjórnsýslu.
Í Morgunblaðinu birtist föstudaginn 12. júní 2009 enn eitt lóðið á vogarskál þeirra, er enn vilja halda dómstólaleiðinni til streitu í þessu milliríkja deilumáli. Hér ræðir um "Áskorun til þingmanna", þar sem skýrum, réttmætum og mikilvægum spurningum er varpað fram til stjórnvalda og Alþingis auk þungvægra lögspekilegra röksemda í grein Lárusar Blöndal, hæstaréttarlögmanns, og Stefáns Más Stefánssonar, prófessors. Þingmenn ættu ekki að láta nein öfl, hvorki innlend né erlend, stilla sér upp við vegg gagnvart "fait accompli" (afgreiddum gjörningi), heldur hafna þessum gjörningi og hefja nýtt ferli í þessu ólánsmáli, þar sem eftirfarandi orði tilvitnaðra tvímenninga verði höfð að leiðarljósi:
"Við köllum eftir lögfræðilegum rökstuðningi fyrir þeim samningum sem búið er að undirrita. Ákvörðunin um undirritun samninganna er stór á alla mælikvarða. Hún er m.a. stór í því ljósi að ekki liggur fyrir hve mikill hluti heildarfjárhæðarinnar, 650 milljarða króna að viðbættum háum vöxtum, kemur í hlut Íslendinga að greiða eða hvort innistæður njóti forgangs fram yfir aðrar kröfur samkvæmt neyðarlögunum." ......
"Ef þetta forgangsákvæði laganna stenst ekki verður greiðslubyrði íslenska ríkisins margfalt meiri en ætla mætti samkvæmt kynningu á samningnum.
Samninganefnd Íslands hefur skilað sínu verki. Forsendan í starfi hennar virðist hafa verið sú að okkur bæri skylda til að greiða og því ekki annað að gera en að semja um greiðslukjör. Þessi nálgun er ekki í samræmi við þá þingsályktun sem samþykkt var þann 5. desember sl. á Alþingi né þá kynningu sem fram fór á hlutverki samninganefndarinnar þegar hún var skipuð." .....
"Í kynningu nefndarinnar á samningnum kemur ekki fram hvers vegna rökum, sem leiddu til þess að íslenska ríkinu bæri ekki að greiða, hafi verið hafnað í samningaviðræðunum. Ekki liggur heldur fyrir hvers vegna alþjóðlegir dómstólar voru ekki fengnir til að skera úr um deiluna svo sem eðlilegt hefði verið í samskiptum ríkja. Hafi þau sjónarmið ekki verið höfð að leiðarljósi í samningaviðræðunum að Ísland væri ekki greiðsluskylt var fyrirfram lítil von til þess að ná viðunandi samningum."
Með tilvitnaðri grein téðra lögfróðu manna er verk 6 manna samninganefndar Svavars Gestssonar, sendiherra, gagnrýnt málefnalega frá mörgum hliðum, svo að við lok greinarinnar má segja, að samningurinn hafi verið skotinn í kaf. Hann er illa rökstuddur, afdrifaríkur og getur orðið íslenzku þjóðinni dýrkeyptur. Til að kóróna óskapnaðinn virðist nefndin alls ekki hafa haft umboð frá Alþingi til að semja um svo veigamiklar skuldbindingar og að afsala okkur dómstólaleiðinni.
Nú blasir við, hvað gera þarf. Fella hortittinn, sem undirritaður var að skipun ríkisstjórnarinnar með fyrirvara um samþykki Alþingis, og skipa nýja samninganefnd, sem kann til verka á þeim sviðum, sem henni verður veitt umboð til, þ.e.a.s. að semja um skilmála, sem þjóðin hefur tök á að ráða við, þó að allt fari á versta veg. Til þess þarf að beita beztu lögfræðilegu og fjármálalegu rökum, sem hæfustu mönnum á þessum tveimur sviðum eru tiltæk fyrir Íslands hönd.
6.6.2009 | 08:46
Heljarslóðarorusta
Annað ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur er heillum horfið. Það skipar nú málum með þeim hætti, að leitt getur til stjórnmálaástands hér með haustinu (2009), þar sem "búsáhaldabyltingin" gæti virzt hreinn barnaleikur í samanburði. Gróin og fyrrum öflug verktakafyrirtæki í orkugeiranum hafa sagt upp öllum sínum mannskap frá og með haustinu.
Við þessar aðstæður kemur umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, tal-og heyrnarmeinafræðingur, fram í fréttatíma RÚV þann 4. júní 2009 og boðar nýja "Loftslagsstefnu Íslands", þar sem íslenzka ákvæðið í Kyoto samninginum verði lagt fyrir róða, af því að það "er blettur á Íslandi". Hér er á ferðinni sleggjudómur um starf umhverfisráðuneytisins og samningamanna Íslands í Kyoto, svo að nokkrir skotspænir ráðherrans séu nefndir.
Aðalsamningamaður vinstri stjórnarinnar um flókna fjármálagjörninga, Svavar Gestsson, sendiherra, fyrrverandi innsti koppur í búri Alþýðubandalagsins (Alþýjasleifarlagið í Útvarpi Matthildar) og ritstjóri Þjóðviljans, er kominn heim frá Lundúnum með uppkast að samningi um uppgjör "Icesave" reikninganna.
Þar er um að ræða fallöxi fyrir fjárhagslegt sjálfstæði Íslands. Pétur Blöndal, Alþingismaður, sem er tryggingastærðfræðingur að mennt, hefur upplýst, að um sé að ræða þrefalt þyngri byrði á hvern Íslending en lögð var á hvern ríkisborgara Weimar-lýðveldisins með Versalasamningunum eftir uppgjöf Vilhjálms 2. í desember árið 1918.
Í þessar skuldaviðjar ætlar ríkisstjórn Samfylkingar og vinstri-græningja að reyra þjóðina algerlega að þarflausu, eins og sýnt hefur verið fram á með skýrum, lögfræðilegum rökum, m.a. með greinum í Morgunblaðinu.
Krafan hljóðar upp á GBP 2,2 milljarða og EUR 1,1 milljarð, en til frádráttar koma um GBP 0,3 milljarðar, sem enska fjármálaeftirlitið handlagði og hafa legið vaxtalausir á Englandsbanka síðan í október 2008. Greiðsla á allt að 570 milljörðum króna með 5,5 % vöxtum á 15 árum mun nema ISK 852 milljörðum og yrði rothögg á íslenzkt efnahagslíf, þannig að það gæti ekki keppt við efnahagslíf annarra landa um vinnuafl. Af þessari upphæð eru ISK 284 milljarðar vextir eða ISK 19 milljarðar á ári. Íslendingum væri þannig gert að greiða ISK 53 milljarða á ári eða tæp 4 % af VLF.
Ef þessar greiðslur í 15 ár eru núvirtar, fæst upphæðin ISK 420 milljarðar, sem jafngilda árstekjum ríkisins. Af þessu sést, að hér er um algera óhæfu að ræða, sem landið getur ekki risið undir, ef skuldin fellur öll á það.
Forsætisráðherra múlbindur þingið til að reka óáreitt þjóðhættulegan áróður um afrakstur "snilldarsamningatækni" Svavars Gestssonar í útlöndum. Hvers vegna eiga Íslendingar að greiða 5,5 % vexti, þegar millibankavextir á Bretlandi og á evru-svæðinu eru um 1 %, og Englandsbanki greiðir enga vexti af hinni frystu innistæðu Landsbankans ?
Ísland hefur ekki efni á mannvitsbrekkum af þessu tagi. Samningsdrög Svavars Gestssonar eru lakari fyrir Íslendinga en sú 7,0 % vaxtakrafa, sem Bretar gerðu í vetur og hafnað var, þegar tekið er tillit til um 3 % vaxtalækkunar á evru- og pundsvæðunum síðan þá. Borgaraleg öfl á Íslandi munu berjast gegn uppkasti Svavars Gestssonar með oddi og egg.
Bretar hafa gefið fordæmi um vextina. Það á að heimta, að þeir losi um hina frystu innistæðu, svo að hægt sé að ávaxta hana. Skuldbindingar ríkissjóðs vegna falls einkabankans Landsbanka mega aldrei fara yfir 1,0 % af VLF á ári (afborganir og vextir).
Vinstri-græningjar eru gengnir í björg. Fjármálaráðherrann, Steingrímur Jóhann og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, kasta fjöreggi þjóðarinnar til "kommissaranna" í Brüssel. Nú getur að líta verðmiða inngöngunnar í ESB (Evrópusambandið). Hann er ISK 852 milljarðar. Kostnaður landsins af vinstri glæfrabrögðunum hrúgast upp.
Ríkisstjórn vinstri flokkanna hefur unnið til vanhelgi, er óhæf og verðskuldar vantrauststillögu á Alþingi.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2009 | 14:56
Sleifarlag
"Ég óttast það mest, að jörðin kunni að vera vitlausra spítali alheimsins". Þannig komst að orði Francois-Marie Arouet, d. 30. maí 1778, franskur heimsspekingur og rithöfundur, sem tók sér höfundarnafnið Voltaire, og reit undir því nafni undir merkjum Upplýsingastefnunnar, en hún varð undanfari lýðveldisstofnunar í Bandaríkjum Norður Ameríku (BNA) og valdatöku borgarastéttarinnar í Evrópu af aðlinum.
Þeim, sem eru hagvanir á Íslandi árið 2009, dettur óneitanlega í hug, að Ísland gegni ekki sízt þessu hlutverki í alheiminum, og þá alveg sérstaklega Stjórnarráðið við Lækjartorg og Arnarhól og þinghúsið við Austurvöll.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að bankakerfið íslenzka hrundi eins og spilaborg, þegar allar lánalínur til landsins lokuðust, er tortryggni fjármálastofnana náði hámarki í kjölfar falls "Lehman Brothers". Bankakerfið hafði vaxið út yfir allan þjófabálk vegna gáleysis bankastjórnenda og bankaeigenda, sem rekja má til vanþekkingar þeirra á hefðbundinni fjármálastarfsemi og almenns agaleysis hérlendis í fjármálum.
Enn, um 8 mánuðum síðar, hefur valdhöfum ríkisins og embættismönnum þeirra ekki tekizt að endurreisa bankakerfið. Það er þeim mikill áfellisdómur vegna þess, að atvinnulíf landsins er lítt starfhæft án bankakerfis. Þess vegna tærast fyrirtækin upp og atvinnulausum fjölgar. Fyrstu sjánlegu viðbrögð ríkisstjórnarinnar, sem til valda kom 10. maí 2009, eru að leggja á "Öreigaskatt", sem svo hefur verið nefndur, á nautnalyf og eldsneyti. Þessi gjörningur er vanhugsaður að hálfu ríkisstjórnarinnar, sem minnir helzt á stefnulaust rekald.
Lagt hefur verið til, að færa vísitöluna aftur til þess, sem hún var í ársbyrjun 2008. Slíkar aðgerðir aftur í tímann orka tvímælis, en ríkisstjórn og Alþingi hafa hins vegar í hendi sér að afnema vísitölutengingu inn-og útlána frá ákveðnum tíma í framtíðinni. Það er róttæk aðgerð, en bæði möguleg og nauðsynleg við núverandi efnahagsaðstæður.
Síðan þarf að stokka upp rekstur hins opinbera og spara fé, sem svarar til raunaukningar á mann síðan um aldamótin síðustu. Þegar krónan tekur að hækka í kjölfar endurreisnar bankakerfis og uppstokkunar ríkiskerfis, og þar með verðlag að lækka, er hægt að huga að skattahækkunum, ef þær eru taldar bæta úr skák. Skattabreytingar eiga hins vegar að verða almenns eðlis, hvort sem um er að ræða beina eða óbeina skatta. Skattahækkun sú, sem landsmenn urðu vitni að nú í aðfararviku hvítasunnu, er hins vegar eins og snýtt út úr nös vinstri manna, hún er tekin beint úr vopnabúri sameignarsinna, sem boða forræðishyggju, t.d. á formi skefjalausrar neyzlustýringar. Stuðningsmenn vinstri aflanna og aðrir sjá nú skelfilega birtingarmynd vinstri stefnunnar.
Endurreisn íslenzks efnahagslífs hefur dregizt úr hömlu. Ástæðan er forystuleysi ríkisstjórnar og agaleysi embættismanna. Hrunið var svo alvarlegt, að ljóst mátti vera í upphafi, að stjórn ríkisins gæti ekki orðið með hefðbundnum hætti ("business as usual"). Það átti að endurskipuleggja forystuna, eins og landið ætti í stríði. Beint undir forsætisráðherra átti að búa til "endurreisnarráð", þar sem í forystu væri erlendur eða innlendur maður með bein í nefinu úr atvinnulífinu og með skýrt valdsvið, sem sagt gæti m.a. ráðuneytisstjórum, bankaráðum og bankastjórum fyrir verkum. Þetta ráð þurfti að vera tvíþætt, með varnarvæng og sóknarvæng. Varnarvængurinn hefði þá það hlutverk að koma bankakerfinu á legg á ný og að skera niður ríkisútgjöld, en sóknarvængurinn hefði það hlutverk að laða að erlent fjárfestingarfé til uppbyggingar íslenzks atvinnulífs, að hleypa nýju lífi í efnahagskerfið til að stækka kökuna, færa fólki uppbyggjandi viðfangsefni, sem reist yrðu á framleiðslu handfastra verðmæta, helzt til að afla erlends gjaldeyris.
Sú vinstri stjórn, sem nú er við völd að nafninu til, er á algerum villigötum. Hún hefur enga burði til frumkvæðis, er veigur sé í. Dæmi um þetta er framlagning tillögu á Alþingi um umsókn að ESB (Evrópusambandinu). Frumkvæðið var umsvifalaust hrifsað úr höndum ríkisstjórnarinnar. Hún hefur nú þegar gefizt upp á sinni vanhugsuðu tillögu um hraðferð inn í ESB, og líklega verður betur ígrunduð tillaga stjórnarandstöðunnar í þessum efnum samþykkt. Hitt er svo annað mál, að það er kolrangt af ríkisstjórninni að dreifa kröftunum á þessari stundu með undirbúningi að aðildarviðræðum. Stjórnmálamenn og embættiskerfið hafa ekki bolmagn til endurreisnar og umsóknar á sama tíma. Fyrst á að reisa efnahagslífið úr rústunum, og síðan að taka slaginn við ESB, því að í aðildarviðræðum munum við þurfa á öllum okkar kröftum að halda. Betur fallið til árangurs er og að semja við ESB með endurreist efnahagskerfi en allt enn í rjúkandi rúst.
Vinstri stjórnin er of andlaus og getulaus til að veita landinu þá forystu, sem er því lífsnauðsyn nú. Borin von er, að andinn komi yfir hana nú um hvítasunnuna, eins og yfir lærisveinana forðum. Líklega er þjóðstjórn skársti kosturinn í stöðunni, en Samfylkingin hefur enn ekki léð máls á slíku, af því að þá yrði aðalmál hennar, aðild að ESB, sett aftarlega í röðina, þar sem það á heima.
Hér að ofan hefur höfundi orðið nokkuð tíðrætt um agaleysi Íslendinga. Nýlega var hann á ferð í Sviss. Mættu landsmenn taka sér Alpaþjóðirnar til fyrirmyndar að þessu leyti í mörgum efnum. Hér að neðan getur að líta höfund á sviði í Luzern iðka blástur í hið fræga Alpahorn. Svisslendingar halda það, ásamt fornum hefðum sínum og búningum, í miklum heiðri. Með sama hætti eigum við Íslendingar að rækta okkar menningararf eða eins og sagði í Birtingi: "Un fault cultiver son Jardin" (maður á að rækta garðinn sinn).
21.5.2009 | 12:36
Janusarhöfuð
Þeir, sem nenntu að fylgjast að einhverju leyti með sjónvörpuðum ræðuhöldum af Alþingi Íslendinga mánudagskvöldið 18. maí 2009, hafa e.t.v. sumir hverjir orðið slegnir yfir því, að allt virðist reka á reiðanum hjá ráðherrunum; engin stefna birtist í "stefnuræðu forsætisráðherra", nema ein: að senda umsókn til Brüssel um inngöngu í ESB með þeim skilmálum, sem Alþingi kann að setja.
Það er ekki einleikið, að á þessum tímum gjaldþrota og atvinnuleysis, þegar efnahagskerfið stefnir norður og niður, sitji hér ríkisstjórn án framtíðarsýnar, en með þá tálsýn, að við það eitt að senda inn umsókn til Brüssel muni hér allt breytast til batnaðar. Þessi málefnafátækt og firring er þyngri en tárum taki á tímum, þegar þjóðin þarf raunhæfa og sameinandi framtíðarsýn og landsforystu, sem blæs almenningi von í brjóst á þrautastund. Það þarf hugsjónaeld aldamótakynslóðarinnar í upphafi heimastjórnar til að rífa landið upp úr þeirri eymd og volæði, sem það er að sökkva í undir ráðalausri ráðstjórn.
Samfylkingin situr í klofinni ríkisstjórn með VG og ætlar nú að kljúfa þjóðina með því að setja ESB á oddinn. Við því er aðeins eitt svar á Alþingi; að láta sverfa þar til stáls um þetta umsóknarmál. Hvað sem öðru líður, er klofin ríkisstjórn afar óheillavænleg til að leiða samningaviðræður um aðild að ESB, enda eru drög ríkisstjórnarinnar að þingsályktun um umsókn feigðarflan, sem ekki er unnt að reisa erfiðar og viðurhlutamiklar samningaviðræður á. Vegna innbyrðis sundurþykkju er ríkisstjórn vinstri flokkanna ófær um að leiða það í ljós, hvað Íslandi kann að bjóðast. Tvíhöfða ríkisstjórn (Janusarhöfuð) getur engum árangri náð í erfiðum málum. Þess vegna er ver farið en heima setið.
Athyglivert var, nú í uppstigningarvikunni, að hlýða á Norðmennina tvo frá "Nei til EU" samtökunum norsku. Þeir sögðu, að Norðmenn hefðu engar varanlegar ívilnanir fengið frá sjávarútvegsstefnu ESB, þegar þeir sömdu árið 1994, og sömu sögu hefði verið að segja um aðrar fiskveiðiþjóðir, sem sömdu um aðild einum áratugi síðar. Allt tal um, að Íslendingar geti í samningaviðræðum við framkvæmdastjórn ESB fengið varanlegar undanþágur, er óráðshjal. Tálsýnin er kórónuð með blaðri um, að Íslendingar muni að líkindum móta stefnu ESB sér í hag á hagsmunasviðum sínum. Fólk, sem þannig talar, er annaðhvort allsendis fáfrótt um innviði og sögu ESB, eða það telur tilganginn helga meðalið í óprúttnum áróðrinum fyrir því að flytja völdin frá Reykjavík til Brüssel.
Það ætti að fylgja ráðleggingum Norðmannanna frá "Nei til EU" um að bíða með aðildarumsókn þar til búið verður að komast að því, hvort til auðlinda Íslands megi telja um 10 milljarða tunna af olíu og gasi undir hafsbotni Drekasvæðisins, hverra verðmæti má ætla, að jafnist á við 100-falda núverandi árlega landsframleiðslu (VLF) Íslands hið minnsta m.v. meðalverð á myndinni hér að neðan. Téð magnáætlun er frá norska olíuleitar fyrirtækinu Sagex Petroleum - Terje Hagevang, á grundvelli fyrstu hljóðbylgjumælinga og botnrannsókna á Drekasvæðinu. Norðmennirnir kváðu skýrt að orði um, að Íslendingum væri vissast að halda sig utan ESB, ef þeir vildu halda í auðlindir sínar. Þeir hafa í tvígang staðið í samningaviðræðum í Brüssel um inngöngu Noregs.
Það, sem landsfeður og-mæður þurfa nú að gera, er, að afleggja draumóra um ESB, sem annars gætu hæglega breytzt í martröð, og einhenda sér í að framfylgja samkomulaginu við AGS (IMF), en vinstri stjórnin virðist vera að klúðra því samstarfi. AGS hefur svo mikla vantrú á getu ríkisstjórnarinnar til að fást við fjárlagahallann, að hann telur nauðsynlegt að halda uppi svimandi háum vöxtum til að halda aftur af verðbólgu og gengissigi. Úr þessu verður að bæta og skapa strax forsendur fyrir vaxtalækkun. Í nánu samstarfi við AGS þarf einnig að gera allt, sem nauðsynlegt er til að laða erlendar fjárfestingar til landsins. Á því veltur algerlega, hvort tekst að vinnna bug á kreppunni árið 2011 eða ekki. Olíupeningarnir, sem enn eru vonarpeningur, munu ekki taka að streyma inn fyrr en um 2020.
Margir hafa horn í síðu AGS, en okkur er hollt að minnast þess, að haustið 2008 neituðu allar þjóðir, nema e.t.v. Rússar og Kínverjar, að okkar góðu frændum Færeyingum undanskildum, að hlaupa undir bagga og opna hingað lánalínur, nema slíkt færi fram undir handarjaðri AGS. Nýta þarf AGS til að skapa hér aðlaðandi umhverfi erlendra fjárfestinga. Ef ríkisstjórnin klúðrar algerlega samstarfinu við AGS, mun það hafa í för með sér hrikalegar afleiðingar fyrir traust útlendinga á Íslandi sem landi til fjárfestinga og sömuleiðis fyrir lánstraust okkar og í reynd skipa Íslandi á bekk með Norður-Kóreu um sinn.
Sá er galli á gjöf Njarðar, með hliðsjón af þröngsýni og fordómum vinstri flokkanna í garð atvinnulífsins, að hætt er við, að ríkisstjórnin glutri niður stærstu fjárfestingartækifærunum af eftirfarandi tveimur ástæðum:
- Innan beggja ríkisstjórnarflokkanna er hatrömm andstaða gegn erlendum fjárfestingum, sérstaklega í virkjunum og í orkukræfum iðnaði. Ríkisstjórnin mun þess vegna þvælast fyrir sköpun atvinnutækifæra í stórum stíl, sem hljótast mundu af innstreymi erlends fjár vegna fjárfestinga í orkuverum og iðnfyrirtækjum upp á t.d. um þrjá milljarða bandaríkjadala eða um 30 % af VLF á þremur árum. Ríkisstjórnin er því miður ekki upptekin af því að stækka kökuna, heldur að jafna út fátæktinni.
- Stefna ríkisstjórnarinnar er að bíða með ákvarðanir um nýjar virkjanir eftir lúkningu á gerð svo nefndrar Rammaáætlunar, þar sem m.a. er reynt að leggja mat á umhverfisáhrif framkvæmda. Þetta er stefna ríkisstjórnarinnar þrátt fyrir neyðarástand í atvinnumálum landsmanna og þrátt fyrir það, að hvergi mun hlutfallslega jafnstór hluti lands hafa verið friðlýstur sem hérlendis. Varðandi rask á hálendinu og umhverfisáhrif virkjana er rétt að benda á fróðlega grein Jakobs Björnssonar, fyrrverandi orkumálastjóra, í Morgunblaðinu 20. maí 2009, - Martraðarland - draumaland - veruleikaland. Þá er og nauðsynlegt að hafa í huga við mat á þessari biðstefnu ríkisstjórnarinnar, að samkvæmt alþjóðlegum viðmiðunum eru allar núverandi virkjanir á Íslandi afturkræfar. Niðurstaðan er þess vegna sú, að í ljósi aðstæðna sé biðin eftir Rammaáætlun skálkaskjól eitt, ótæk og óferjandi.
Af ofansögðu er ljóst, að ríkisstjórnin gengur með böggum hildar í atvinnumálum og virðast allar bjargir bannaðar vegna sundurþykkju stjórnarflokkanna í meginmálum. Ekkert blasir þess vegna annað við en yfir 10 % samdráttur landsframleiðslu á þessu ári án viðsnúnings á árinu 2010 með um eða yfir 20 þúsund manns atvinnulausa. Til samanburðar er samdráttur Eystrasaltsríkjanna 13 % - 18 % af VLF þar, og gengið fasttengt evru. Ríkisstjórnin ætti að leita fyrirmynda til Eistlands hjá Andrus Ansip, forsætisráðherra, um það, hvernig 12 % halla á fjárlögum er eytt á 1-2 árum.
Í einu máli virðist þó ríkja samhljómur stjórnarflokkanna, þ.e. um að þjóðnýta sjávarútveginn með því að hrifsa aflaheimildir frá einkaframtakinu og í hendur stjórnmálamanna. Hér er um aðför að undirstöðu atvinnulífsins að ræða, sem eyðileggja mun framlegð fyrirtækja, sem lagt hafa í miklar fjárfestingar og gera þeim ókleift að þjóna erlendum mörkuðum með nútímalegum hætti. Fræðilega ristir þessi þjóðnýting ekki dýpra en hver önnur töfluæfing í Háskóla Íslands, sem lýsir vel ábyrgðarleysi vinstri flokkanna gagnvart atvinnulífinu. Óvissan, sem ríkisstjórnin hefur nú þegar skapað á þessu sviði, er tekin að hamla starfseminni og draga úr fjárfestingum. Hvernig ætla stjórnmálamenn að endurúthluta feiknar verðmætum án spillingarásakana og logandi illdeilna um allt land ? Um þetta ritaði Þorsteinn Pálsson, ritstjóri, í leiðara Fréttablaðsins, 20. maí 2009, "Holur hljómur":
"Sjávarútvegsmálin eru gott dæmi um þessa óskýru hugsun. Fiskveiðistjórnunarkerfið er skotið í kaf með einni ákvörðun. Rekstur smábáta og annarra sjávarútvegsfyrirtækja er settur í uppnám með veiðileyfasviptingum. Frá þessu má ekki víkja. Það er flokkslína. Ríkisstjórnin hefur hins vegar enga hugmynd um hvað við eigi að taka. Það ráðleysi er fært í þann búning að kalla eigi eftir þjóðarsamstöðu um lausnir. Það er heldur holur hljómur í ákalli eftir þjóðarsamstöðu á þessum forsendum."
Allt er á sömu bókina lært hjá vinstri flokkunum. Fár og fum einkenna orð og gerðir. Fræðilega undirstöðu og traustan röksemdagrundvöll vantar fyrir allar hugmyndir og gerðir ráðstjórnarinnar. Þetta kallast vond stjórnsýsla. Ef svo fer fram sem horfir, mun ríkisstjórnin sigla hverju málinu í strand á fætur öðru. Hver verður dómur sögunnar yfir óvönduðum vinnubrögðum af því tagi, sem hér hefur orðið að umfjöllunarefni ? Ruslahaugar sögunnar voru nefndir af minna tilefni.
Viðskipti og fjármál | Breytt 23.5.2009 kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2009 | 14:32
Verkstjórnin
Um áramótin 2008/2009 tóku að heyrast umvandanir um verkstjórn þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins á ríkisstjórnarheimilinu frá forystu Samfylkingar. Þetta kom flatt upp á suma, því að ekki var þá vitað til, að sú sama forysta hefði úr háum söðli að detta í stjórnunarlegum efnum. Þegar þetta var svo kannað nánar, kom í ljós, að margur heldur mig sig. Þingflokkur Samfylkingar hélt þingmálum í gíslingu, og seinagangur var við ákvarðanatöku að hálfu Samfylkingar m.a. vegna veikindafjarveru formannsins.
Nú hefur þjóðin fengið smjörþefinn af verkstjórn Samfylkingar. Er skemmst frá því að segja, að hún er öll í skötulíki. Forgangsröðun verkefna, sem er mikilsvert stjórnunaratriði, þjónar engan veginn hagsmunum heildarinnar, heldur virðist vera reist á kreddum og fordómum "nomenklatúru" ráðstjórnarinnar. Á meðan reka mikilvægustu málin á reiðanum. Nefna má tafir á endurskipulagningu fjármálakerfisins og hnökra á samstarfinu við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn (AGS). Afleiðingin af þessu er fjármagnsskortur, áframhaldandi gjaldþrot og vaxandi atvinnuleysi.
Ráðherra sendir AGS tóninn fyrir að mæla gegn lækkun stýrivaxta. Engin peningaleg rök hamla stýrivaxtalækkun. Af þessum sökum er augljóst, hvað AGS gengur til. AGS treystir ekki ríkisstjórninni og meirihluta hennar á Alþingi til að fást við ríkisfjármálin. Ríkisstjórnin er að heykjast á samningnum við AGS um ríkisfjármálin, sem áttu að verða meginviðfangsefni nýkjörins Alþingis og ríkisstjórnar. Allir viti bornir menn átta sig á, að hinn feiknarlegi halli á ríkissjóði Íslands, sem er með því hæsta, sem þekkist, mun sliga peningakerfið og allt efnahagslíf landsins, ef ekki verður þegar í stað ráðizt að honum.
Þess í stað er verkstjórnin nú með þeim hætti, að athyglinni og kröftunum er beint að umsókn um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Stafar ljóma af þessari nýjustu flóttaleið ráðstjórnarinnar ? Nei, öðru nær. Drög þau að þingsályktun um umsókn að ESB, sem kynnt voru til sögunnar skömmu eftir að forsætisráðherra batt þingmenn trúnaði um skjalið, eru örverpi, sem benda til, að ríkisstjórnin viti ekki, hvað hún vill. Svo ólánlega er lagt upp í þessa ferð til Brüssel, að ríkisstjórnin virðist ætla þangað á annarri löppinni og styðjast við hækju "búsáhaldabyltingarinnar" á leið sinni. Ófélegri málatilbúnaður í örlagaþrungnu máli hefur aldrei sézt síðan landið hlaut heimastjórn árið 1904. Svo er að sjá sem haltur leiði blindan, og engin heil brú sé í málatilbúnaði vinstri flokkanna, sem nú fara með landstjórnina.
Viðræður um inngöngu í ESB munu ekki snúast um annað en það, hvernig landið lagar sig að sáttmálum, lögum og tilskipunum ESB. Það virðist engin stefnumörkun hafa átt sér stað um neinn hinna 35 (eða svo) málaflokka, sem samningamenn ESB munu leggja á borðið og krefjast samþykktar á. Það er engrar miskunnar að vænta frá samningamönnum ESB. Vingulsháttur ríkisstjórnar Íslands í þessu stórmáli er með þeim hætti, að Alþingi verður að taka í taumana og kæfa málið í fæðingu áður en ríkisstjórnin verður landinu til stórskammar í Brüssel.
Nú þegar er ljóst, það sem margir töldu sig vita, að vinstri stjórn ræður engan veginn við þann vanda, sem við er að etja í íslenzku samfélagi árið 2009. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar er þegar farið að valda hærra vaxtastigi í landinu en nokkur þörf væri á, ef hún tæki snarborulega á ríkisfjármulunum og setti ekki samstarfið við AGS í uppnám með ráðleysi sínu. Jafnvel forseti lýðveldisins er tekinn að óttast barnalegar hugmyndir Samfylkingarinnar um inngöngu landsins í ESB, eins og fram kom við setningu Alþingis nú í vikunni, þar sem hann í raun gagnrýndi verkstjórnina, sem kann ekki að forgangsraða, en hleypur út undan sér frá einu máli til annars.