30.8.2016 | 11:08
Vakna þú mín Þyrnirós
"Sofa forystumenn flugþjóðar af sér flugið ?", er heiti forystugreinar Morgunblaðsins 29. ágúst 2016. Hún hefst þannig:
"Á dögunum gerðist sá undarlegi atburður, að undirritað var afsal um sölu á landi við Reykjavíkurflugvöll til Reykjavíkurborgar. Seljandinn var ríkið, og er málið þeim mun sérkennilegra, þegar haft er í huga, að málið tengist lokun neyðarbrautarinnar og framtíð flugvallarins í Vatnsmýrinni, sem nú er mjög til umræðu; m.a. sá möguleiki, að þingið grípi inn í og tryggi framtíð flugvallarins."
Fjármála- og efnahagsráðherra birti þann 26. ágúst 2016 yfirlýsingu "vegna sölu á landi í Skerjafirði". Af henni er ljóst, að ráðherrann telur ráðuneyti sitt vera bundið af samkomulagi fyrirrennara síns frá í marz 2013 og dómi Hæstaréttar þann 9. júní 2016 í máli nr 268/2016, þar sem "fallizt var á kröfu Reykjavíkurborgar um, að íslenzka ríkinu væri gert skylt að loka NA/SV flugbraut Reykjavíkurflugvallar. Í kjölfar niðurstöðunnar var Isavia ohf falið að hálfu innanríkisráðuneytisins að loka flugbrautinni og taka hana úr notkun. .... Samkvæmt ákvæðum samningsins kom fram, að þegar brautinni yrði formlega lokað, myndi ríkið afsala Reykjavíkurborg rúmlega 11 ha svæði undir suðurhluta brautarinnar."
Ljóst er, að spyrna þarf við fótum, og getur rokið úr, þegar það er gert. Það hvílir sú lagaskylda á ríkisstjórninni að leita heimildar Alþingis fyrir sölu á hvers konar eigum ríkisins. Samkvæmt grein í Morgunblaðinu í viku 34/2016, síðustu viku, eftir fyrrverandi Hæstaréttardómara, Jón Steinar Gunnlaugsson, dugar ákvæði í fjárlögum ekki eitt og sér til þess, og vísaði hann til samdóma álits fræðimanna á sviði lögfræði í þessum efnum.
Í dag, 30. ágúst 2016, birtist ítarlegri grein í Morgunblaðinu um þetta efni, þar sem hann ítrekar, að hefð framkvæmdavaldsins um að láta ákvæði fjárlaga duga, þegar kemur að sölu fasteigna ríkisins, dragi ekki úr gildi 40. greinar Stjórnarskrárinnar, heldur sé áfellisdómur yfir stjórnsýslunni, sem sniðgangi Stjórnarskrána. Nú skal vitna í grein Jóns, 30.08.2016:
"Minnisblað fjármálaráðherra um afsal lands":
"Fráleitt er að halda því fram, að í þessum orðum [Hæstaréttar] hafi falizt dómur um, að ekki þyrfti að uppfylla kröfuna í 40. gr. stjórnarskrár, þegar slíkur samningur yrði gerður [um afsal lands]. .... Í slíkri skuldbindingu felst þá fyrirheit um, að þess verði freistað að uppfylla lagaskilyrði fyrir afsali fasteignar á þann veg, sem stjórnarskrá mælir fyrir um.
Það fær því ekki staðizt, að í dómi Hæstaréttar 9. júní sl. hafi falizt þau stórtíðindi, að 40. gr. stjórnarskrár hafi verið breytt á þann veg, sem fjármálaráðherra nú heldur fram."
Þarna var augljós viðspyrnumöguleiki fyrir ráðherrann, ef hann vildi halda í heiðri stuðningsyfirlýsingu Landsfundar Sjálfstæðisflokksins við Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýrinni með þremur flugbrautum. Hann gat lagt fram frumvarp til laga fyrir Alþingi um að banna sölu á umræddu landi. Það hefði að líkindum verið samþykkt, og þar með hefði samsærið gegn Vatnsmýrarvelli fallið, eins og spilaborg.
40. gr. Stjórnarskrár hljóðar svo:
"Engan skatt má á leggja né breyta né af taka, nema með lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra, nema samkvæmt lagaheimild."
Nú verða þingmenn, sem óska endurkjörs, að draga af sér slyðruna og gera þær ráðstafanir strax, sem þeir telja duga til að tryggja starfsemi flugs og flugtengdrar þjónustu í Vatnsmýrinni á þremur flugbrautum. Þar kemur til greina að taka af öll tvímæli um heimildarleysi til landsölunnar í Skerjafirði með því að leggja fram frumvarp til laga, sem bannar alla landsölu ríkislands við flugvelli landsins án sérstakrar lagasetningar til viðbótar við fjárlög. Slík lagasetning mundi styrkja málflutning fyrir dómstólum um riftun hins alræmda afsals á þeim grundvelli, að gjörninginn skorti lagastoð. Þeir þingmenn, sem nú bíta í skjaldarrendurnar, auka líkur sínar á endurkjöri, en hinir mega biðja Guð um að gleypa sig.
Það eru fleiri en þingmenn eins og fljótandi að feigðarósi í þessu flugvallarmáli. Þorkell Ásgeir Jóhannsson, flugstjóri hjá Mýflugi, sem sér um sjúkraflutninga í lofti, nefnir Samband íslenzkra sveitarfélaga í því sambandi, sem ekki virðist hafa lyft litla fingri til stuðnings baráttunnar gegn skertri nothæfni Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni.
Hann ber kvíðboga fyrir vetrinum vegna sjúkraflugs, sem skilið getur á milli lífs og dauða. Vegna slæmra lendingarskilyrða í Reykjavík á tveimur brautum, sem eftir standa í rekstri, kann svo að fara, að ekki verði flogið í tæka tíð, þó að lendingarhæft sé á Neyðarbrautinni. Hann sér fyrir sér mikinn háska í sumum þeim 100-200 flugferðum að vetri, sem flokkaðar eru sem forgangsflugferðir. Tæplega 20 % fjölgun er á sjúkraflugum þessi misserin frá ári til árs.
Að búið skuli vera að stefna öryggismálum landsmanna allra í þvílíkt uppnám með "salami-aðferðinni" og bandalagi vinstri flokkanna, bæði í borgarstjórn og á Alþingi, við byggingarverktaka í Reykjavík, er þyngra en tárum taki. Við svo búið má ekki standa.
Í lok téðrar forystugreinar stendur:
"Það er löngu tímabært, að Alþingi taki í taumana og komi í veg fyrir, að innanlandsflugið renni landsmönnum úr greipum fyrir einhvern óskiljanlegan sofandahátt gagnvart hatrammri baráttu fámenns en útsmogins hóps andstæðinga flugsins."
Fyrir tilstilli slæmrar lögfræðilegrar ráðgjafar hefur fjármála- og efnahagsráðherra orðið á í messunni varðandi landsölu í Skerjafirði til Reykjavíkurborgar. Það er enn hægt að bæta fyrir það. Vilji er allt, sem þarf. Óhjákvæmilegt virðist að höfða mál gegn ríkinu fyrir brot gegn 40. gr. Stjórnarskrár í téðu afsalsmáli.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Heilbrigðismál, Samgöngur | Facebook
Athugasemdir
Það verður aldrei frá honum Bjarna Ben tekið að hann er klaufi og að stökkva til á fyrsta degi til að samþykkja rugglið í sérfræðingi í vitleysisgangi og leiðindum sem og konukjána sem lét svartan dólg hrekja sig úr embætti okkur öllum til háðungar, er ekki til frama fallið.
En Dagur kemur að kvöldi.
Hrólfur Þ Hraundal, 30.8.2016 kl. 12:22
Ég er ósammála mati þínu, Hrólfur Hraundal, á störfum núverandi fjármála- og efnahagsráðherra. Miklu fremur tel ég téðan fingurbrjót vera undantekninguna, sem sanni regluna um vönduð vinnubrögð og farsælan feril hans á þessu kjörtímabili. Fyrir þennan fingurbrjót var ég þeirrar skoðunar, að hann væri sá bezti í stóli fjármálaráðherra lýðveldistímans. Hann getur enn bætt úr skák. Mey skal að morgni lofa, segir karlrembulegt máltæki.
Bjarni Jónsson, 30.8.2016 kl. 13:37
Margt gott hjá þér Bjarni Jónsson og þökk fyrir það. En hef ekki haldi öðru fram en að Bjarni Ben væri góður fjármála ráðherra, en leiðtogi er hann eigin.
Hrólfur Þ Hraundal, 30.8.2016 kl. 14:41
Þú ert nokkuð dómharður, Hrólfur. Það er engin einhlít mælistika til á leiðtoga stjórnmálaflokks. Einu sinni var þessu hlutverki líkt við hlutverk skipstjóra á fiskiskipi. Karlinn í brúnni verður að fiska, annars lætur útgerðin hann róa. BB tók við formennskunni á mjög erfiðum tíma í sögu Sjálfstæðisflokksins. Honum verður ekki kennt um það, að flokkurinn nýtur nú minna fylgis en oft áður. Ef við lítum til útlanda, getum við sagt, að miðað við hina sögulegu þróun svipaðra stjórnmálaflokka standi flokkurinn bærilega.
Á mælikvarða stjórnunarfræðinnar er BB góður leiðtogi. Hann er "Primus inter Pares", eins og Oktavianus áður en hann varð Augustus, keisari. Ef þú lítur yfir sviðið, þá sérð þú algera flatneskju hjá hinum stjórnmálaflokkunum. BB ber af öðrum í þeim samanburði; hann skín sem gull hjá eiri.
Bjarni Jónsson, 30.8.2016 kl. 21:05
Takk Bjarni jónsson.
Hrólfur Þ Hraundal, 30.8.2016 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.