Mikið unnið fyrir gýg

Nýlega bárust af því tíðindi, að "umframdauðsföll" (fjöldi dauðsfalla á tilteknu tímabili umfram meðaltal viðmiðunarára) árið 2022 hefðu verið fleiri á Íslandi en annars staðar í Evrópu.  Tölfræðin var evrópsk og var borin til baka af innlendum yfirvöldum. Engu að síður var um umframdauðsföll að ræða, og þá vaknar spurningin hvers vegna.  Það er óhjákvæmilegt að tengja þessa stöðu við ofvaxnar sóttvarnaraðgerðir hérlendis gegn C-19 faraldrinum, en óvíða munu bólusetningar hafa verið jafnalmennar og hér. Bóluefnin voru og eru á bráðabirgða leyfi, vegna þess að langtíma áhrif þeirra voru óþekkt.  Hins vegar hafa verið óvenju margar tilkynningar um neikvæð áhrif á heilsuna skömmu eftir sprautun.  Varnaráhrifin á líkamann gegn C-19 smitun eru lítil og dala hratt.  Af þessum sökum er furðulegt, að heilbrigðisyfirvöld skuli halda áfram bólusetningum með þessum vafasömu bóluefnum, sem þó kosta sitt, og lyfjafyrirtækin maka krókinn fyrir eitthvað, sem kalla má misheppnaða tilraunavöru. 

Það var varað við því, að frelsissviptingar og mikil inngrip í rekstur fyrirtækja og líf almennings mundu hafa neikvæðari afleiðingar á heilsu fólks og lífslíkur en smitun af SARS-CoV-2 veirunni hefði í för með sér. Það er nú komið á daginn með fleiri umframdauðsföllum hérlendis en numið hefur fjölda dauðsfalla af völdum veikinda vegna veirunnar. Þetta gefur til kynna, að sóttvarnarráðstafanirnar hafi verið úr hófi fram m.v. tilefnið og að frelsissviptingar hafi verið læknisfræðilega illa ígrundaðar, svo að ekki sé nú minnzt á lagalegt heimildarleysi.

 Arnar Þór Jónsson, lögmaður, hefur ritað mikið um varhugaverða tilhneigingu lýðræðisríkja til gerræðislegra ráðstafana gagnvart borgurunum.  Eina slíka ágæta grein gat að líta í Morgunblaðinu 21. febrúar 2023 undir fyrirsögninni:

     "Hvað sameinar ?".

Í kaflanum "Hver er lærdómurinn ?" gat þetta m.a. að líta:

"Þegar þetta er ritað, hrannast upp rannsóknir, sjá t.d. https://mbl.is/go/jamanet , sem benda til, að bóluefnin hafi ekki verið eins örugg og yfirvöld vildu vera láta.  Sömuleiðis er komið í ljós, að áhrif þeirra voru mun minni en boðað var í upphafi https://mbl.is/go/cell .  Falsfréttir gærdagsins geta verið viðurkenndar staðreyndir í dag https://mbl.is/go/lancet .  Hver er lærdómurinn af öllu þessu ?  Gæti hann verið sá, að við ættum ekki að treysta fyrirvaralaust því, sem okkur er sagt ?"

Þegar um lyfjaiðnaðinn er að ræða og einkum hið vanheilaga samband hans og heilbrigðisyfirvalda er svarið já.  Rannsóknir, sem lyfjafyrirtækin gera á eigin framleiðslu, eru tortryggilegar vegna hagsmunaárekstra, eins og sannaðist með bóluefnin gegn C-19.  Þessi bóluefni stóðu engan veginn undir væntingum, og reynslan af þeim var allt önnur og lakari en viðkomandi lyfjafyrirtæki gáfu til kynna.  Iðulega hafa embættismenn í samskiptum við lyfjafyrirtækin orðið uppvísir að fúski og óheiðarleika, þar sem þeir hafa metið eiginn fjárhag mikilvægari en velferð þeirra, sem þeir þó eiga að vinna fyrir af heilindum og þiggja laun hjá. Kaup íslenzkra yfirvalda á dýrum bóluefnum, sem eru í raun svikin vara, eru gagnrýniverð. Enn er haldið áfram að dæla óþverranum í fólk, einkum þá, sem eru með veiklað ónæmiskerfi fyrir.  Þetta ónæmiskerfi fer þó á hliðina í kjölfar bólusetningar.  Þetta er óhugnanleg  tilraunastarfsemi á almenningi, sem sumir telja vera ósiðlega hegðun. 

"Aðgerðir stjórnvalda vegna kórónuveirunnar hafa valdið víðtækum samfélagslegum og einstaklingsbundnum skaða.  Sumir hafa skaðazt vegna sprautanna https://mbl.is/go/science  .  Aðrir hafa skaðazt vegna aðgerða, sem yfirstigu allt stjórnskipulegt meðalhóf.  Aðgerðirnar skertu sjálfræði fólks og rufu líkamleg mörk, sem fram að þessu höfðu verið virt, sbr "minn líkami, mitt val".

Aðgerðirnar leiddu ekki aðeins til mismununar, heldur einnig til útskúfunar þess minnihluta, sem neitaði að hlýða í blindni, gerði fyrirvara, vildi viðhafa gagnrýna, sjálfstæða hugsun, vildi ekki undirgangast sprautumeðferð af persónulegum, heilsufarslegum ástæðum." 

Þetta er gríðarlega harður dómur um störf þríeykisins og störf þess ráðherra, sem gaf út flestar reglugerðirnar til að hlaupa eftir duttlungum téðs þríeykis.  Ef dómurinn er réttur, sem hann sennilega er að mestu leyti, þá hefur þetta sama þríeyki og téður ráðherra ekki haft hugmynd um, hvað þau voru að gera og áttu að gera.  Aðgerðir þeirra voru á jaðri hins löglega og sennilega stundum handan lagaheimilda.  Samt bólar enn ekkert á lagafrumvarpi, sem skilgreinir valdmörk heilbrigðisráðherra og ráðgjafa hans, þegar upp gýs sjúkdómsfaraldur hérlendis. Þá er embætti landlæknis og sóttvarnalæknis ekki treystandi fyrir ráðgjöfinni til ráðherra.  Þar þurfa fleiri að koma að málum, m.a. mismunandi hagsmunaaðilar í þjóðfélaginu.

Allar þessar fórnir voru færðar til einskis, eins og tölurnar um dauðsföll 2020-2022 sýna.  Dauðsföllum var lítillega frestað 2020-2021, og tíðni þeirra jókst síðan umfram frestunina, m.a. vegna sálarlegra afleiðinga vanhugsaðra geðþóttaákvarðana stjórnvalda, sem störfuðu í myrkri. 

"Heilbrigt fólk var lokað inni á heimilum sínum, skipað að klæðast grímum án viðunandi vísindalegra röksemda, látið undirgangast ítrekuð, niðurlægjandi og nærgöngul próf og sprautað án viðunandi upplýsts samþykkis.  Allt var þetta gert vegna sjúkdóms, sem snemma var vitað https://mbl.is/go/biomech , að fæstum stafaði nokkur veruleg hætta af.  Þetta hefði ekki gerzt, ef læknar hefðu rækt siðferðilegar skyldur sínar og upplýst fólk með viðunandi hætti.  Nú eru afleiðingarnar að koma fram, m.a. í hærri dánartíðni https://mbl.is/go/daudsfoll en dæmi eru um í lýðveldissögunni."

Þarna fóru 3 embættismenn ríkisins offari og ráku skefjalausan hræðsluáróður til að fá hljómgrunn fyrir öfgakenndar aðgerðir sínar, sem reyndust vera fálm eitt í myrkri.  Vísindum var sópað út í horn og allt leikið af fingrum fram á tilfinninganótunum.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég klippti hluta af eftirfarandi frétt úr DV, því hún sýnir svo ágætlega hvernig kaupin gerast á eyrinni, en sú rekna ærulausa sagði víst einfaldlega frá því að hún hafi orðið vitni að því að útvöldum var hlíft við COVID-bólusetningum.

Í stað þess að rannsaka ástæðurnar nánar, þá var heimildamanninum fórnað - líkt og vanalega:

Landsréttur staðfesti á föstudag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2022 þar sem hafnað er 8 milljóna kröfu konu sem rekin var úr starfi frá hjúkrunarheimili. Brottrekstrarsökin var sú að hjúkrunarheimilið taldi konuna hafa deilt upplýsingum úr sjúkraskrám heimilisins til óviðkomandi aðila. Konan neitaði þessu fyrir dómi.

RÚV upplýsir í gær að hjúkrunarheimilið sem hér átti í hlut sé Sóltún og að sjúklingurinn sem lekið var upplýsingum um tengist Ölmu Möller, landlækni, fjölskylduböndum. Umræðurnar á samfélagsmiðlum endurspegluðu meðal annars neikvæða afstöðu til bólusetninga gegn Covid-19. Sóltún hrinti af stað rannsókn meðal starfsfólks heimilisins og kom í ljós að umræddur starfsmaður tengdist tveimur konum sem höfðu rætt upplýsingarnar á samfélagsmiðlum. Var hún þá kölluð til fundar hjá framkvæmdastjóra hjúkrunar, hjúkrunarstjóra og persónuverndarfulltrúa.

Jónatan Karlsson, 29.3.2023 kl. 07:22

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Mér finnst þetta mjög góð grein skrifuð um þetta málefni, með þeim betri sem ég hef lesið. Yfirvegun en þó ekki verið að draga undan þann skaða sem faraldurinn hefur valdið en ekki síður umdeild viðbrögð við honum. 

Kominn tími til að opinber sóttvarnaryfirvöld á landinu taki mark á þessu og útskýri möguleikana á því að ekki aðeins faraldurinn hafi verið óvenjulegur, heldur ekki síður það sem gerðist í kjölfarið. 

Yfirvöldin í landinu verða að viðurkenna að þau geta gert mistök líka. Talið er að Jacinda Arden í Nýja Sjálandi hafi sagt af sér útaf þessu.

Ingólfur Sigurðsson, 29.3.2023 kl. 18:24

3 Smámynd: Bjarni Jónsson

Það eru stöðugt að koma fram ný dæmi um aukna tíðni heilablóðfalla og hjartaáfalla hjá tiltölulega ungu fólki án annarra áhættuþátta en bólusetninga við C-19.  Ég sleppti þessum bólusetningum alfarið, af því að ég sá strax, að verndin var mjög léleg.  Síðar fóru að koma fram grafalvarlegar aukaverkanir af þessum tilraunaefnum, reyndar mest hjá fólki, sem er yngra en ég.  Á hverju ári deyja fleiri af völdum berkla í heiminum en dáið hafa sannanlega af völdum SARS-CoV-2.  Það er enn á huldu um uppruna þeirrar veiru.  Nú tala Kínverjar ekki lengur um stökk úr leðurblöku í mann, heldur úr marðarhundi, sem þeir væntanlega éta líka.  Lyfjaiðnaðurinn græddi á bóluefnum á tá og fingri og fríjaði sig allri ábyrgð af virkni og aukaverkunum.  Yfirvöldin spiluðu með, eins og þægir rakkar.  

Viðbrögðin voru gjörsamlega úr hófi fram og einkenndust af drottnunarsýki og móðursýki.  Ráðherra heilbrigðismála þáverandi var einkennilega auðsveip og gagnrýnislaus gagnvart flumbruhætti embættismanna.  Lögvarin einstaklingsréttindi og lýðræðisleg ákvarðanataka voru fótum troðin í atganginum.

Það er maðkur í mysunni.

Bjarni Jónsson, 30.3.2023 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband