Færsluflokkur: Bloggar
8.9.2023 | 15:02
Flett ofan af vindorkusamningi
Vindorkufélög eru ekki aðeins farin að bera víurnar í bændur og aðra landeigendur, heldur þegar farnir að gera samninga við þá. Frosti Sigurjónsson, hagfræðingur, hefur flett ofan af einum þeirra án þess þó að nafngreina samningsaðila. Þessi samningur er illur forboði um það, sem koma skal við beizlun vindorkunnar hérlendis. Sú beizlun er allsendis ótímabær á Íslandi, á meðan landsmenn eiga enn nóg af óvirkjuðum kostum vatnsafls og jarðgufu.
Ástæður þess, að þessi afstaða er tekin, eru einkum 3:
1) Inngrip í íslenzka náttúru á orkueiningu (MWh) eru einni stærðargráðu meiri í ferkm talið en inngripin vegna hefðbundinna íslenzkra virkjana, og lýtin í náttúrunni, hávaðinn og mengunin eru óþolandi mikil fyrir flesta þá, sem nærri koma.
2) Framleiðslukostnaður rafmagns með vindi er hár og vindknúnir rafalar, sem eru tengdir íslenzka raforkukerfinu, munu vafalaust valda hækkun á rafmagnsverði til almennings, a.m.k. ef hér verður innleitt markaðskerfi fyrir raforku að forskrift ESB-löggjafar, sem hefur verið leidd í íslenzk lög vegna aðildar landsins að EES-samninginum frá 1994.
3) Raforkuvinnsla með vindorku er tilviljanakennd og slitrótt. Ef markaðurinn leyfir, verður vindorkuverum leyft að framleiða, eins og þau geta, en vatnshverflar reglaðir á móti, sem aftur mun draga úr nýtni vatnsorkuveranna, sem þar koma við sögu. Mun áreiðanlegra og þjóðhagslega hagkvæmara er að halda áfram að virkja jarðgufu og vatnsafl, en samleikur þeirra í raforkukerfinu hefur þróazt með jákvæðum hætti út frá áreiðanleika orkuafhendingar og kjörnýtni á frumorkunni.
Samkvæmt Frosta fær leigutakinn 15 ár til rannsókna, leyfisöflunar og undirbúnings framkvæmda á hluta af landi landeiganda og fær óskoraðan rétt til framlengingar um 5 ár. Landeigandinn fær fastar leigutekjur á meðan á rannsóknum og undirbúningi stendur. Ársleigan er 170 ISK/ha fyrstu 5 árin og tvöföldun eftir 5 ár og aftur eftir 10 ár. Þetta leigugjald er smánarlega lágt, þegar tekið er tillit til þess ágangs, sem vænta má af hendi leigutakans við slóðagerð og við að reisa vindorkuver í tilraunaskyni. Einnig má taka mið af væntum tekjum af viðkomandi landi með öðrum hætti en orkuvinnslu, t.d. með skógrækt og sölu koltvíildiskvóta með bindingu koltvíildis. Frosti tekur mið af Bandaríkjunum, þar sem ársleigugjaldið jafngildir 1200 ISK/ha að hans sögn. Það er of lágt m.v. tekjur, sem hafa má nú orðið af sölu losunarheimilda koltvíildis. 2000 ISK/ha virðist vera lágmarks leiguverð á ári, ef hægt er að koma skógrækt við á landinu.
Þá er komið að þóknuninni fyrir að fá að umbylta landinu fyrir vegi, skurði og undirstöður burðarsúlna vindknúnu rafalanna. Leigugjaldið ætti að standa áfram, árlega verðbættar 2000 ISK/ha, og að auki ætti að koma framleiðslugjald, sem þarf að vera 3 % af söluandvirði raforkunnar, til að geta keppt við annars konar not af landinu, t.d. skógrækt til að binda koltvíildi og selja það á markaði.
Frosti skrifar í téðri Bændablaðsgrein, "að landeigandi fái 1,5 % af brúttóverði seldrar orku, sem að 10 árum liðnum hækkar í 2,0 %". Hann ber þetta saman við framleiðslugjald af vindorkuverum til landeigenda á Bretlandi, sem sé 5 %-6 % af andvirði orkusölunnar. Hér verður að hafa í huga, að jarðaverð er mun hærra á Bretlandi en á Íslandi og að í sumum tilvikum er um ágætis landbúnaðarland að ræða, sem fer undir vindorkuver á Bretlandi.
Eftir langan samningsgildistíma, 15-20 ár, fyrir undirbúning að framleiðslu tekur við 60 ára samningstími fyrir raforkuframleiðsluna. Í ljósi þess, að tæknilegur afskriftatími mannvirkjanna er um 25 ár, nema undirstaðanna, sem geta endst í öld, og að fjárhagslegur afskriftatími er enn skemmri, er samningstíminn 60 ár óeðlilega langur. Hann ætti að vera 20 ár með gagnkvæmum endurskoðunarákvæðum að 15 árum liðnum. Leigutakinn ætlar sér greinilega að endurnýja búnaðinn og halda áfram rekstri. Þá eru komnar nýjar rekstrarforsendur, og þar af leiðandi þarf endurskoðunarákvæði í samninginn, sem opni á nýjan samning að 15 árum liðnum frá upphafi rekstrartímabils, og verði nýr samningur að hafa náðst áður en hinn rennur út eftir 20 ára rekstrartíma.
Þá þarf að semja um geymslufé til að standa straum af hreinsun lands við lok rekstrartíma og að koma landinu í sem upprunalegast horf í samráði við landeiganda, eftir að rekstrartíma lýkur. Í sjóðinn gætu runnið um 2 % af árlegum sölutekjum vindorkuversins. Sjóður þessi verður að vera óaðfararhæfur (við gjaldþrot) og gæti verið í vörzlu viðkomandi sveitarfélags.
Grundvallaratriði fyrir landeigendur, sem vilja fórna landi sínu undir vindorkuver, er að gera sér grein fyrir verðmætunum, og hvaða kjör standa "vindorkuspekúlöntum" til boða erlendis. Yfirvöld verða að taka tillit til hagsmuna allra annarra, sem málið snertir, við útgáfu framkvæmdaleyfis og virkjunarleyfis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2023 | 11:24
Binda verður enda á kukl og fúsk matvælaráðherra
Matvælaráðherra er í pólitískri herferð gegn núverandi markaðskerfi í sjávarútvegi og ætlar að festa klær ríkisvaldsins á þessum grunnatvinnuvegi landsins, þótt enginn skilningur eða þekking sé fyrir hendi hjá hinu opinbera um rekstur og eignarhald útgerða. Ráðherrann beitir nú kafbátahernaði til að draga dul á ólögmætar aðferðir sínar við leit að upplýsingum um "stjórnunar- og eignatengsl" í sjávarútvegi, sem hún ætlar að nota til að koma höggi á atvinnugreinina. Sannleikurinn er sá, að ráðuneytið beitir fyrir sig Samkeppniseftirlitinu (SKE) með sínum víðtæku rannsóknarheimildum í nafni varðstöðu um samkeppni með ólögmætum hætti, og forstjóri SKE hefur látið þennan ósvífna og óvandaða ráðherra draga sig ofan í svað óheilinda og blekkinga. Fyrir þessar sakir eru bæði brottræk, og hefur áður farið fé betra.
Andrea Sigurðardóttir á Morgunblaðinu hefur gert þessu máli rækileg skil í Morgunblaðinu í frétt í blaðinu 19. ágúst 2023 undir fyrirsögninni, "Frumkvæðið var ráðuneytisins", og í Baksviðsfrétt 22. ágúst 2023 undir fyrirsögninni, "Aðilar að samþykki án samþykkis". Ritstjórar Morgunblaðsins hafa síðan lagt út af þessari vönduðu vinnu blaðamannsins og dregið sínar ályktanir í einarðri og vel rökstuddri forystugrein 25. ágúst 2023, þar sem ráðherrann og handbendi hennar, forstjóri SKE, eru fundin sek um svo alvarlegan trúnaðarbrest gagnvart Alþingi og fólkinu í landinu, að hollast er fyrir þau að taka pokann sinn. Siðferðisvitund hvorugs þeirra er þó með þeim hætti, að þau muni nokkru sinni taka það upp hjá sjálfum sér. Nú er spurning, hvort sjálfhreinsigeta stjórnkerfisins er næg til að losa sig við þessi skemmdu epli, eða er valdhrokinn slíkur og spillt hugarfar slíkt, að stjórnmálamanni og embættismanni leyfist að blekkja þing og þjóð með samanteknum ráðum ? Það væri einsdæmi í hinum þróaða, vestræna heimi.
Téð forystugrein bar skuggalega fyrirsögn, enda er málið ískyggilegt:
"Undirferli í æðstu stjórnsýslu".
Þar gat þetta að líta:
"Það er grafalvarlegt mál, að sjálfstæð eftirlitsstofnun hins opinbera fari svo gersamlega út af sporinu, en það er þó ekki síður undirferlið - um stórt og smátt, gagnvart bæði Alþingi og almenningi - sem mestar áhyggjur vekur.
Markmiðið með athuguninni kemur skýrt fram í 1. grein samningsins: "Á grunni stjórnarsáttmála og annarra áherzlna matvælaráðherra vinnur matvælaráðuneytið nú að heildarstefnumótun í sjávarútvegi undir yfirskriftinni Auðlindin okkar. Liður í því starfi er kortlagning stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi."
Þessi stefnumótunarrembingur matvælaráðherra um málefni sjávarútvegsins er algerlega óþarfur og beinlínis hlálegur, því að íslenzkur sjávarútvegur gengur ágætlega og þarf enga aðstoð ríkisvaldsins við að segja sér stöðuna og hvert stefna skal, því að hjá ráðuneytum og ríkisstofnunum ríkir algert þekkingarleysi á þörfum og viðfangsefnum sjávarútvegsins. Stefnumörkun sósíalistans Svandísar Svarsdóttur fyrir sjávarútveg verður óskapnaður og afturhvarf til fortíðar, þegar pólitískir kjánar höfðu ráð sjávarútvegsins í hendi sér. Bezta hugsanlega útkoman úr brölti Svandísar verður gjörsamlega gagnslaust plagg, montplagg í anda mótaðrar heilbrigðisstefnu ráðherrans. Þessi stefnumótunarárátta ráðherrans Svandísar er afleiðing sjúklegrar og fáránlegrar forræðishyggju hennar. Þetta sama fyrirbrigði með áætlanagerð og framleiðslufyrirskipanir ráðuneytanna gekk af Ráðstjórnarríkjunum dauðum. Engum heilvita manni dettur lengur í hug, að nokkurt minnsta vit geti lengur verið í því að láta ráðuneyti segja atvinnulífinu fyrir verkum. Svandís Svavarsdóttir er gjörsamlega óhæfur stjórnandi og stefnumótandi, nema e.t.v. fyrir sitt eigið heimili.
"Í 2. gr. samningsins segir svo, að með þessum fjárhagslega fyrirvara "hefur Samkeppniseftirlitið í samstarfi við Fiskistofu, Skattinn og Seðlabanka Íslands ákveðið að ráðast í athugun á stjórnunar- og eignatengslum í sjávarútvegi."
Í kynningu samningsins tveimur vikum síðar var skautað framhjá því og sagt, að stefnt yrði að samstarfi í þá veru. Eftirgrennslan Morgunblaðsins og upplýsingabeiðnir hafa leitt í ljós, að samningurinn var fals að þessu leyti, umræddar stofnanir áttu hvorki frumkvæði að né voru þær aðilar að samningnum. Seðlabankinn hefur svarið það allt af sér, Skatturinn hefur enn ekki svarað fyrirspurnum rúmum mánuði síðar, en Fiskistofa vísar á ráðuneytið um svör við fyrirspurnum og hefur ekki orðið við beiðni blaðsins um gögn málsins."
Í seinni tíma sögu lýðveldisins eru ekki dæmi um annað eins svínarí í æðstu stjórnsýslu landsins, þar sem ráðherra og forstjóri ríkisstofnunar leggja á ráðin um fádæma óheilindi og beinar lygar. Þessa starfsemi verður að stöðva. Hún er grútmorkin og ekki til nokkurs nýt. Það verður að refsa forstjóra SKE með því að leysa hann frá störfum, því að hann er uppvís að þýlyndi við ofstækisfullan ráðherra og að ósannindum út á við, og verði ráðherra ekki leystur frá störfum líka, verður a.m.k. að stöðva það, að hún beiti stofnunum ríkisins fyrir sinn pólitíska vagn með fjárframlögum frá ráðuneytinu. Þetta er misbeiting á pólitísku valdi.
"Vinnugögn og samskipti benda öll til þess, að frumkvæðið hafi legið hjá matvælaráðherra. Það er ekki fyrr en á seinni stigum, sem farið er að ræða um frumkvæði SKE, en um það segir Páll Gunnar, að með því sé verið að verja "trúverðugleika ráðuneytisins", svo [að] yfirvarpið verður öllum ljóst.
Eru þá alls órædd brögðin varðandi fjárheimildirnar, þar sem matvælaráðherra og Samkeppniseftirlit sniðganga fjárveitingarvald Alþingis.
Vélar Svandísar koma ekki alls kostar á óvart; hún hefur áður orðið ber að ólögmætri og vondri stjórnsýslu. Það sást nýverið af fyrirvaralausu hvalveiðibanni hennar, hæstaréttardómi yfir henni sem umhverfisráðherra árið 2011, og aftur fékk hún dóm, þá sem heilbrigðisráðherra, árið 2021 fyrir frelsisskerðingar, brot á meðalhófi, stjórnarskrá og mannréttindasáttmálum."
Það liggur skítaslóðin eftir Svandísi Svavarsdóttur í ráðherrastóli. Það sýnir óstýrilæti og dómgreindarleysi hennar að geta alls ekki haldið sig innan valdmarka neins þeirra ráðherraembætta, sem hún hefur gegnt. Nú er nóg komið. Eðlilegt væri, að vantraust kæmi fram á hana á Alþingi, úr því að formaður vinstri-grænna er ófær um að losa ríkisstjórnina við hana. Sýnir það vel morknun og siðleysi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs að gera ekki meiri kröfur til ráðherra sinna en raun ber vitni um. Vonandi eru kjósendur VG ekki sömu gerðar að samþykkja hvaða óhæfu sem er í stjórnsýslunni og sjá, að VG á ekkert erindi við nútímann.
Morgunblaðið hefur rökstudda afstöðu í þessu máli:
"Ráðherra, sem segir þinginu ósatt, verður að láta af embætti. Embættismaður, sem verður uppvís að rangfærslum, hlýtur að hugleiða stöðu sína alvarlega. Ella verður einhver annar að gera það fyrir hann."
SKE væri nær að vinna að hagsmunum íslenzkra neytenda en að eltast við atvinnugrein, sem selur 95 % af afurðum sínum á erlendum mörkuðum í samkeppni við risafyrirtæki á íslenzkan mælikvarða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.9.2023 | 17:31
Orkumálastjóri og hlýindin
Í stað þess að greina lesendum Morgunblaðsins frá stöðu og horfum raforkumálanna, og hvaða úrræða væri helzt að grípa til í úrbótaskyni, þá lagðist Orkumálastjóri í svartnætti loftslagskirkjunnar í grein sinni 18.08.2023. Hún gat þess, að júní 2023 hefði verið sá hlýjasti, síðan hitastigsskráningar hófust, og hún kennir koltvíildisstyrk lofthjúpsins um það. Þá má spyrja hana, hvernig standi á því, að meðalhitiastig á jörðunni hefur verið hærra en núna, svo að munar nokkrum °C, þótt koltvíildisstyrkur andrúmsloftsins hafi þá verið mun lægri en nú er samkvæmt rannsóknum. Er ekki rétt að reyna að átta sig aðeins á eðlisfræðinni, þætti H20 og CO2, og áhrifum El Nino-straumsins, sem flytur gríðarlega varmaorku og er sterkur um þessar mundir, áður en farið er að velta vöngum um heimsendi vegna koltvíildisstyrks í andrúmslofti ?
Téð Grein Orkumálastjóra bar firnalanga fyrirsögn, en ekki að sama skapi hnitmiðaða:
"Átta ár frá Parísarsamkomulagi - loftslagsmálin, stóra samhengið og tækifæri Íslands.
Hún hófst þannig:
"Fréttir af flóðum, aurskriðum, skógareldum og öðrum afleiðingum hækkandi hita á jörðinni hafa borizt frá öllum heimshornum í sumar, en júní í ár var heitasti mánuður, sem mælzt hefur á jörðinni. Átta ár eru liðin frá því, að Parísarsamkomulagið var undirritað, sem fól í sér yfirlýsingu ríkja um, að þau myndu gera allt, sem í þeirra valdi stæði til að draga úr losun lofttegunda til að halda hækkun á hitastigi innan við 1,5°C."
Þarna leggst Orkumálastjóri á árar loftslagskirkjunnar og fer að stunda hreinræktaðan hræðsluáróður. Það er ómálefnalegt að benda á hátt meðalhitastig í júní 2023 án þess að drepa á El Nino hafstrauminn, sem var afar mikill áhrifavaldur á veðurfar í sumar. Það er sleggjudómur að fullyrða, að skógereldar stafi af hlýnun jarðar. Í mörgum tilvikum er um íkveikju að ræða, eins og frétt frá Grikklandi 25.08.2023 ber með sér, og tjónið er tilfinnanlegra en oft áður, af því að byggðin hefur teygzt að skógunum. Þessi Orkumálastjóri rökstyður mál sitt sínu verr en áður hefur tíðkazt hjá þessu embætti.
Hafði téð Parísarsamkomulag einhver áhrif ? Losun gróðurhúsalofttegunda (Orkumálastjóri verður að gá að því, að ekki eru allar lofttegundir gróðurhúsalofttegundir !) á heimsvísu hefur aukizt síðan 2015, og miklir losunarvaldar virðast alls ekki hafa tekið þennan gerning í desember 2015 alvarlega. Þar með er loku skotið fyrir nokkurn árangur, sem um munar, enda hefur útblástur gróðurhúsalofttegunda aukizt frá 2015. Í þessu verkefni pólitíkusanna er allt unnið með öfugum klónum, mikið talað, en lítið gert til bóta, enda er hver afleikurinn leikinn af öðrum.
Að ætla sér að leysa jarðefnaeldsneyti af hólmi í raforkugeiranum með vindknúnum rafölum og sólarhlöðum er tæknilega eins fráleitt og hugsazt getur. Umtalsverður árangur víðast erlendis er útilokaður án beizlunar kjarnorkunnar.
Á Íslandi var fyrir löngu farin allt önnur leið. Hér virkjuðu menn af miklu viti og framsýni vatnsföll og jarðhita til að leysa jarðefnaeldsneytið að miklu leyti af hólmi, enda er nú svo komið, að það stendur aðeins undir rúmlega 15 % af heildarorkunotkun þjóðarinnar. Víða erlendis er þetta hlutfall nálægt 75 %. Það er þess vegna hið versta níð, að landsmönnum skuli hafa verið gert að greiða að jafnvirði allt að MISK 400 fyrir heimskulega markmiðssetningu á síðasta áratug til Evrópusambandsins, sem ekki gat náðst hér, nema hægja á hjólum atvinnulífsins og skapa hér atvinnuleysi. Vill villta vinstrið það, eða meinar það ekkert með öllu loftslagsprumpinu ?
"Tragikómískt" er að sjá loftslagsráðherrann bísperrtan gorta af, að landið skulu ekki hafa þurft að greiða skussunum hærri upphæð, eins og Umhverfisstofnun var sennilega búin að áætla (MISK 800) og rataði inn í fjárlögin. Það er meinloka að láta Ísland taka þátt í þessu ETS-kerfi (Emission Trade System), sem er fyrir lönd á allt öðrum stað á jörðunni en við og á allt öðru róli. Stórundarleg markmiðasetning íslenzkra stjórnvalda á þessum áratug og skortur á tæknilausnum fyrir skip og flugvélar mun valda gríðarlegum refsiskatti til ESB við uppgjör þessa áratugar. Pólitískir vinglar hafa vélað um þessi mál innanlands og á erlendum vettvangi með þeim afleiðingum, að búið er að flækja þjóðina í skuldbindingar um að draga úr losun, sem ekki er hægt að standa við, nema hægja á öllum hjólum atvinnulífsins. Það er aftur á móti sérvitringaviðhorf, sem stór meirihluti þjóðarinnar fellir sig ekki við, og sízt af öllu verkalýðshreyfingin né ábyrgðaraðilar ríkissjóðs, sveitarfélaga og lífeyrissjóða.
"Þó að uppbygging endurnýjanlegrar orkuvinnslu sé lykilatriði fyrir orkuskiptin, er hægt að ná miklum árangri með því að nýta betur þá orku, sem við eigum nú þegar, með bættri orkunýtni.
Alþjóða orkumálastofnunin hefur bent á, að hægt sé að ná sem nemur 40 % af markmiðum Parísarsáttmálans, er tengist losun frá orku, með þeim hætti."
Hætt er við, að Orkumálastjóri sé hér algerlega úti á þekju. Þótt hún telji orkuskipti brýn, tók það Orkustofnun þrefaldan eðlilegan tíma að fjalla um umsókn Landsvirkjunar um virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Ef á að taka Orkumálastjóra alvarlega, verða að fara saman orð og gerðir.
Þar sem jarðefnaeldsneyti er notað við raforkuvinnslu, er orkunýtnin léleg eða e.t.v. 40 %, ef ekki er um samtvinnun við hitaveitu að ræða, en með slíkri samtvinnun má tvöfalda nýtnina. Líklega er Alþjóða orkumálastofnunin að vekja athygli á þessari lélegu orkunýtni, sem æskilegt er að komast frá. Það á hins vegar alls ekki við á Íslandi, þar sem vatnsorkuverin eru rekin með um 90 % heildarnýtni. Það er hægt að sækja fáein % þar með nýjum búnaði í stað gamals, en það borgar sig aðeins, ef endurnýjunarþörf er komin upp vegna slits hverfla og öldrunar einangrunar.
Á Íslandi eru vissulega varmaorkuver, en þau eru gjörólík flestum erlendum varmaorkuverum, því að þau eru knúin jarðgufu, og þau helztu eru einnig tengd hitaveitu, sem hækkar nýtni þeirra upp í ákjósanlega stærð.
Einnig er hægt að draga úr töpum í flutningskerfinu um fáein %, og það gerist um leið og spennuhækkað er vegna aukinnar flutningsþarfar.
Orkunýtni á Íslandi batnar með innleiðingu rafgeymaknúinna bíla, og sú þróun er í gangi, en hún batnar ekki við að knýja farartæki með vetni vegna mikilla orkutapa, sem því er samfara.
Hvert er Orkumálastjóri að fara með þessu klisjukennda mali sínu um nauðsyn þess að bæta orkunýtni á Íslandi ? Orkumálastjóri verður að temja sér að tala skýrt og að vel athuguðu máli, eins og fyrirrennarar hennar hafa gert.
Að lokum skrifaði Orkumálastjóri:
"Þrátt fyrir fjölbreyttar orkuauðlindir verður Ísland aldrei rafhlaða til að knýja alla raforkuþörf heimsins; það má sjá í heildarsamhengi mála. [Furðulegt orðalag um einfalt reikningsdæmi - innsk. BJo.]
Stærsta tækifæri okkar er einfaldlega að styðja við jákvæða þróun annars staðar, með því að flytja út okkar þekkingu um leið og við vinnum að því að klára orkuskiptin hér í takti við áherzlur stjórnvalda.
Þannig á Ísland möguleika á að vera fyrsta ríkið, sem sýnir, að hægt sé að reka heilt samfélag með grænni orku, og verða þar með dæmið, sem heimurinn þarf.
Slík niðurstaða skapar Íslandi sérstöðu og fjölbreytt sóknarfæri á sviði viðskipta, utanríkis- og umhverfismála. Spyrja má: ef Ísland getur það ekki, hver getur það þá ?"
Þetta er fullkomlega gagnslaust froðusnakk og draumórar einir án nokkurrar jarðtengingar. Verkfræðingar Landsnets hafa bæði næga jarðtengingu og einurð til að reikna út á grundvelli líklegustu framvindu framboðs og eftirspurnar rafmagns á Íslandi, að ekki standi steinn yfir steini í tilkynningum stjórnmálamanna og embættismanna (markmið eru þetta ekki fyrir 5 aura) um stöðu á losun koltvíildis frá athöfnum Íslendinga árin 2030 og 2040. Kolefnishlutleysi náist fyrst árið 2050, en það er sá tími, sem ýmsar aðrar þjóðir á vesturhveli jarðar ætla sér. Rándýrar montyfirlýsingar stjórnmálamanna í þessum skrýtnu málum eru alveg út í loftið og lýsa ábyrgðarleysi þeirra vel.
Verkfræðingar Landsnets hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að tvöfalda þurfi raforkuvinnslu landsins frá árinu 2023, sem merkir, að virkja þarf með einum eða öðrum hætti 20 TWh/ár, til að Íslendingar verði sjálfum sér nógir með orku. Með svipaðri framvindu og hér hefur verið í virkjanamálum frá gangsetningu Búðarhálsvirkjunar 2013 verður þessum áfanga náð á síðasta fjórðungi þessarar aldar, og gætu Íslendingar þá hæglega rekið lestina.
Til að forða meiri háttar umhverfisslysi, sem hlytist af uppsetningu risastórra súlna undir óskilvirka, vindknúna rafala í íslenzkri náttúru, þarf að stokka Rammaáætlun upp og færa vatnsaflsverkefni og jarðgufuverkefni úr biðflokki og yfir í nýtingarflokk (framkvæmdaflokk). Ef snefill af umhverfisverndartilfinningu leynist í dyggðaskrautfjöðrum stjórnmála- og þrýstihópa ýmissa, ætti slík uppstokkun að ganga hljóðalítið fyrir sig. Ætlar loftslagsráðherrann að gera Íslendinga að Júmbóum orkuskiptanna vegna algers framtaksleysis í virkjanamálum ? Hvað ætlar Orkustofnun að taka sér langan tíma í þetta skiptið til að sýna fram á, að vatnalög ESB/EES séu ekki brotin með núverandi áformum um tilhögun Hvammsvirkjunar. Stundum er eins og stjórnsýslan sé stungin líkþorni, þegar hæst á að hóa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2023 | 18:13
Sjálfhelda orkumálanna
Það er búið að afvegaleiða umræðuna um hefðbundna íslenzka virkjanakosti með glópagullsrausi um vindknúna smárafala á himinháum súlum. Nýr orkumálastjóri hefur lagt ruglandanum lið með innantómu sífri um nauðsyn vandvirkni við útgáfu virkjanaleyfa til vatnsaflsvirkjana. Undir hennar stjórn gerðist það þó í fyrsta skipti í sögu Orkustofnunar, að virkjunarleyfi hennar var fellt úr gildi (Hvammsvirkjun) vegna ófullnægjandi umfjöllunar stofnunarinnar um umsókn Landsvirkjunar um virkjunarleyfi. Samt tók stofnunin sér lengri tíma en nokkru sinni áður (18 mánuði) til að gefa út þetta leyfi og braut þannig setta tímafresti í lögum. Samt klifar þessi Orkumálastjóri á nauðsyn vandvirkni. Allt leiðir þetta til falleinkunnar þessa Orkumálastjóra, enda vita þeir, sem vita vilja, að innan Orkumálastofnunar er nú hlutfallslega takmörkuð fagleg geta til að rýna umsókn um verkefni á borð við Hvammsvirkjun í samnburði við viðkomandi verkfræðistofur landsins og Landsvirkjun sjálfa. Það er þess vegna borin von, að rýni Orkustofnunar geti bætt einhverju verðmætu við hönnunaráformin. Ef pulsusjóðari fer að rýna verk Michelin-kokks, er vart mikils að vænta, eða hvað ?
Ábyrgir aðilar samfélagsins vita, hvernig í pottinn er búið í orkumálum landsins og tengsl þeirrar ömurlegu stöðu við montplaggið með háleita nafninu: "Loftslagsstefna Íslands". Sem betur fer skiptir engu máli fyrir loftslag jarðarinnar, hvernig mál skipast með þessa loftslagsstefnu, en það skiptir mjög miklu máli fyrir efnahag landsins, hvernig gengur að uppfylla raforkuþörf þjóðarinnar á hverjum tíma. Í þeim málum er mikið raupað, en ekkert gert, sem sköpum skiptir við að höggva á hnútinn að hætti Alexanders, mikla, forðum.
Morgunblaðið hefur eðlilega miklar áhyggjur af því, hvernig stjórnmálamönnum hefur tekizt að leiða þessi mál í slíkt öngstræti, að ekki sér til lands. Löggjöfin kemur að utan, og hentar einfaldlega ekki aðstæðum hér. Þá var öldin önnur, er Gaukur bjó á Stöng. Forystugrein Morgunblaðsins 12. ágúst 2023 bar einfalt og sláandi heiti:
"Orkuleysi".
Hún hófst þannig:
"Orkumál hafa lengst af verið í góðu horfi hér á landi, eftir að menn báru gæfu til að hefja miklar virkjanir, jafnt vatnsaflsvirkjanir sem jarðhitavirkjanir. Það var hvort tveggja mikið framfaraskref, og þurfti bæði framsýni og áræði til að ráðast í ýmis stórvirki á þessum sviðum, einkum í upphafi, þegar þetta var algerlega nýtt hér á landi, þekking afar takmörkuð og fjármagn af skornum skammti.
Með dugnaði hafðist þetta, jarðhitinn var nýttur til húshitunar og síðar raforkuframleiðslu, og vatnsaflið var virkjað til raforkuframleiðslu og orkan flutt til stóriðjuvera, smærri fyrirtækja og heimila. Þessu fylgdu stórkostlegar breytingar, hvort sem litið er til heimila landsins, atvinnulífs eða efnahags í heild. Enginn getur efazt um, að hefði ekki verið ráðizt í þær virkjanir, sem gert hefur verið, væru lífsgæði hér allt önnur og lakari en við þekkjum."
Þeir, sem séð hafa ljósmyndir af Reykjavík frá um 1930, þar sem kolamökkinn lagði yfir bæinn, átta sig vel á, hvað höfundur forystugreinarinnar á við. Að setja núlifandi menn inn í aldargamalt umhverfi er alltaf hæpið, en menn geta ímyndað sér, hvernig gengið hefði að losna við kol og olíu úr eldstónni, til ljósmetis og upphitunar, ef ládeyður núverandi ríkisstjórnar væru við völd, og allt það óskilvirka og að mörgu leyti óþarfa skriffinnskubákn, sem nú er við lýði, hefði þá haft tækifæri til að kasta skít í tannhjólin.
Á öllum tímum hafa nefnilega úrtöluraddir verið við lýði. Munurinn er bara sá, að þá var ríkisbáknið minna og bremsustofnanir ekki fyrir hendi. Þegar við nú horfum á framkvæmdir fyrri tíma, hvort sem er í Elliðaánum, Soginu, á Þjórsár/Tungnaársvæðinu eða annars staðar á landinu, verður ekki annað sagt en frábærlega hafi til tekizt án Skipulagsstofnunar, Umhverfisstofnunar, úrskurðarnefnda eða Orkustofnunar í sinni núverandi mynd. Þingmönnum hefur tekizt, sumpart með tilstyrk Brüsselvaldsins eftir 1993, að flækja lagaumhverfi orkumálanna meira en góðu hófi gegnir, þannig að þar gerist nú lítið yfir 10 MW, nema endurbætur og stækkanir eldri virkjana, sem eru góðra gjalda verðar til að bæta úr aflskorti (toppafl).
"Hvað svo sem segja má um þau markmið [um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda - innsk. BJo], raunsæi þeirra eða, hvernig þátttöku Íslands í þeim er háttað, þrátt fyrir að hér sé allt með allra hreinasta móti, þá er undarlegt, að á sama tíma og ofuráherzla er lögð á þessi markmið, virðist varla nokkur vegur að koma nýjum íslenzkum virkjunum af stað."
Þetta er ein mesta þversögn íslenzkra stjórnmála um þessar mundir og stafar af óheilindum stjórnmálamanna, sem sífellt eru með umhverfisvernd og "hamfarahlýnun" á vörunum. Þau meina ljóslega ekkert með því tali, enda skiptir miklu meira máli fyrir veðurfar og loftslag á jörðunni, hversu mikil jarðeldavirkni er hér en hvað þær hræður, sem á landinu búa, taka sér fyrir hendur. Öll er loftslagsumræðan blásin út yfir öll eðlileg mörk og koltvíildisstyrk andrúmslofts kennt um skógarelda, flóð og allt þar á milli, þótt um atburð með 50 ára tíðni sé að ræða, eldar hafi verið kveiktir og byggð þanizt út.
Loftslagspostularnir trúa greinilega ekki tuggunni úr sjálfum sér, því að afturhaldssjónarmið um að koma í veg fyrir verulega aukningu raforkuvinnslu ræður ferðinni. Þeim er alveg sama, þótt sveimhugar séu búnir að skuldbinda landsmenn til að borga nokkra mrdISK 2031 til ESB, ef ekki tekst að leysa jarðefnaeldsneyti af hólmi með innlendu rafmagni. Þetta ástand mála er geggjun og getur ekki viðgengizt lengur, en mun gera það, á meðan fígúran Katrín Jakobsdóttir situr í forsætisráðuneytinu.
"Ýmsir hafa varað við því um nokkurra ára skeið, að í óefni stefni [sé þegar komið - innsk. BJo] að óbreyttu, og hafa þær áhyggjur farið vaxandi. Þær áhyggjur snúast ekki aðeins um stórnotendur, heldur [aðallega] um heimilin í landinu, en hætta er orðin á, að þar komi til skerðingar á næstunni, sem er með miklum ólíkindum og sýnir, hve óhönduglega hefur verið á þessum málið haldið á undanförnum árum."
Þetta er hverju orði sannara og er falleinkunn fyrir stjórnmálin og viðkomandi stjórnsýslu. Þegar heimildir orkufyrirtækjanna til skerðinga stóriðjunnar, en á hverju 5 ára tímabili er yfirleitt aðeins heimilað að skerða 5 % umsaminnar orku, þótt meira megi skerða innan hvers árs, þá kemur að fyrirtækjum án langtímasamninga við sinn orkubirgi og að heimilunum að gefa eftir nokkuð af sínu hefðbundna afli til að forða kerfishruni. Ástandið fer að minna á skelfilegt ástand rafmagnsmála í Suður-Afríku og leiðir auðvitað beint af hreinni vanrækslu við að sinna grunnþörf þjóðfélagsins.
"Og að nokkru leyti má segja, að athugasemdir Samtaka iðnaðarins hafi fengizt staðfestar í samtali Morgunblaðsins við orkumálastjóra í blaðinu í gær [11.08.2023], þar sem fram kom, að orkumálastjóri hefur ekki miklar áhyggjur af töfum við leyfisveitingar, enda sé mest um vert, að leyfisveitingin sé vönduð.
Um það er varla ágreiningur, en hitt er verra, að orkumálastjóri virðist ekki telja ástæðu til að liðka til í stjórnkerfinu vegna orkuframleiðslu og vísar í því sambandi til vandvirkninnar."
Þessi Orkumálastjóri er hluti af orkuvanda landsmanna, eins og sumir óttuðust við skipun hennar. Hana sjálfa skortir alla þekkingu til að leggja gæðamat á fyrirhugaða verkfræðilega tilhögun virkjunar, og það er "tragíkómískt" að sjá og heyra hana klifa á nauðsyn vandvirkni við leyfisveitingu. Það er sorglegt, því að 18 mánaða meðgöngutími Orkustofnunar fyrir leyfisveitingu fyrir fyrstu virkjun Neðri-Þjórsár verður þjóðinni óhemju dýrkeyptur vagna yfirvofandi orku- og aflskorts. Það er hlægilegt, því að rýni Orkustofnunar á virkjunargögnum Landsvirkjunar fyrir Hvammsvirkjun hefur engar forsendur til að bæta nokkru vitrænu við hönnun virkjunarinnar; ekki frekar en pulsusjóðari getur bætt einhverju vitrænu við matseld Michelin-kokks.
Grein Orkumálastjóra í Morgunblaðinu 18.08.2023 er eins og fréttayfirlit um orkumálin, sem sæmilegur blaðamaður hefði getað skrifað. Það vantar djúpa greiningu á kreppu íslenzkra orkumála, eins og búazt hefði mátt við frá öllum gengnum Orkumálastjórum landsins. Á grundvelli greiningarinnar hefði síðan mátt vænta traustra ráðlegginga til þjóðarinnar og stjórnvalda til að lágmarka tjónið, en hið eina, sem kom, var yfirborðslegt hjal um nauðsyn bættrar orkunýtni. Þessi aðferðarfræði getur enga leiðsögn veitt.
"Með þeim rökum [um nauðsyn vandvirkni - innsk. BJo] getur ríkið jafnan tekið sér drjúgan tíma í afgreiðslu mála, því að flest það, sem fengizt er við, og ekki aðeins á sviði orkumála, krefst vandvirkni.
En þegar vandvirknin er orðin slík, að mál velkjast árum saman án niðurstöðu eða verður til þess, að ekkert er virkjað og orkuskortur er yfirvofandi innan skamms, þá hlýtur að þurfa að grípa til aðgerða. Og þá þurfa t.d. talsmennirnir að setjast í ráðherrastólana og gera þær breytingar, sem duga. Annars hafa þeir ekkert við stólana að gera."
Þetta óskilgreinda tal Orkumálastjóra um vandvirkni sem réttlætingu á mjög seinni afgreiðslu mikilvægustu mála Orkustofnunar, er hreinn fyrirsláttur, eins og bezt sést á því, að síðbúið virkjunarleyfi stofnunarinnar í Neðri-Þjórsá var nokkru síðar fellt úr gildi vegna annmarka á yfirferðinni, og hefur slíkt aldrei áður gerzt í sögu Orkustofnunar.
Orkumálastjóri, sem skilur ekki þá bráðu nauðsyn, sem er á að fá öflugar virkjanir sem allra fyrst í notkun, er verri en enginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2023 | 17:05
Vinnubrögð matvælaráðherra eru afleit
Núverandi matvælaráðherra fer ekki eftir öðru en eigin dyntum við ráðherrastörf sín. Hún hagar sér eins og agalaus krakki og gefur einfaldlega skít í stjórnarsáttmálann, þegar hún forgangsraðar vinnu sinni. Vinnubrögð, eins og hennar, mundu ekki líðast í nokkru fyrirtæki, og það er fyllilega tímabært að reka skussa eins og þennan úr ráðherraembætti. Viðhlæjandi hennar, formður flokks matvælaráðherra og forsætisráðherra, hefur ekki burði til að láta til skarar skríða gegn óhæfum "starfsmanni" sínum, heldur brosir sínu breiðasta og dreymir um að hanga með flokk sinn við völd út kjörtímabilið. Ef höfð er hliðsjón af úrslitum þingkosninga annars staðar í Evrópu um þessar mundir, þá gæti þessa flokksónefnu vinstri jaðarsins dagað uppi í næstu kosningum. Hefur hann þegar valdið miklu þjóðhagslegu tjóni, aðallega með setu pótintáta sinna í ríkisstjórn, og valdið heilabrotum í varnarsamstarfi vestrænna þjóða, sem hann er á móti, en formaðurinn smjaðrar fyrir á fundum með útlendingum. Þar hefur tvískinnungur flokksins keyrt um þverbak.
Axarsköpt sín í embætti réttlætir lufsan í matvælaráðuneytinu með því, að hún sé í pólitík. Þetta er þó þunnur þrettándi fyrir atvinnulífið og almenning í landinu. Sósíalistinn er í hernaði gegn atvinnulífinu á sínu sviði. Hún er ábyrg fyrir ómannúðlegri meðferð bænda í Miðfirði vegna örfárra riðutilvika, sem komu þar upp í vetur. Þar var ofstækisfullum og óþörfum vinnubrögðum beitt í ljósi þess, að handan við hornið er að gera íslenzka fjárstofninn ónæman fyrir riðuveiki með erfðafræðilegri ræktun.
Alræmd er aðförin að Hval hf og starfsmönnum hans í sumar með bjánarökum um, að ráðherrann verði að halda hlífiskildi yfir langreyðum sem eini umboðsmaður þeirra. Fyrirtækið Hvalur hefur hins vegar haldið hlífiskildi yfir starfsmönnum sínum og borið af þeim högg sósialistans í allt sumar með alls konar viðhalds- og endurbótaverkefnum. Fyrir þetta á forstjóri Hvals mikinn heiður skilinn, og birtist þarna enn gjáin, sem skilur að auðvaldið og sósíalismann, þegar kemur að meðferðinni á fólki. Í löngu máli væri hægt að fara ítarlega út í þá sálma.
Nú þjónar matvælaráðherra lund sinni með því að siga Samkeppniseftirlitinu á nokkur sjávarútvegsfyrirtæki. Þá þykist hún vinna eftir stjórnarsáttmálanum um rýni á sjávarútveginum, en útkoman er að verða heimskulegar lýðskrums upphrópanir gegn honum. Um þetta skrifaði Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, afar fróðlega og vel samda grein í Morgunblaðið 12. ágúst 2023:
"Unnið í andstöðu við stjórnarsáttmála".
Hún hófst þannig:
"Við myndun þeirrar ríkisstjórnar, sem enn situr, þegar þetta er ritað, var gerður sáttmáli, líkt og hefðbundið er, þar sem m.a. var fjallað um áherzlur tengdar sjávarútvegsmálum. Var þar um samið á meðal ríkisstjórnarflokkanna þriggja, að meta skyldi þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins. Sérstök nefnd skyldi í þessum tilgangi skipuð, og henni m.a. falið að bera saman stöðuna hér á landi og erlendis. Að svo búnu ætti að leggja fram tillögur til að hámarka möguleika Íslendinga til frekari árangurs og samfélagslegrar sáttar."
Þetta hafa formenn stjórnarflokkanna komið sér saman um. Þeir hafa ætlazt til, að farið yrði í faglega vinnu, sem af stjórnmálanna hálfu væri ætlað að auka enn við þjóðhagslega hagkvæmni sjávarútvegsins íslenzka, sem sennileg er hvergi meiri.
Sósíalistakjáninn, sem vermir sæti matvælaráðherra, hafði hins vegar engan áhuga á þessu, enda er hún stækt niðurrifsafl, sem trúir því ekki, að auðvaldið geti verið þjóðhagslega hagkvæmt. Í heilastarfsemi matvælaráðherra hafa aldrei komizt að nein fagleg vinnubrögð, enda snýst þar allt um pólitík sósíalismans; að klekkja á auðvaldinu og að auka stjórnun ríkisins á atvinnuvegunum sem mest, þótt ekki sé í því hin minnsta glóra.
"Þrátt fyrir nokkuð skýr fyrirmæli um verkefnið í stjórnarsáttmála hefur því miður ekki verið eftir þeim unnið. Hvergi má finna því stað, að þjóðhagslegur ávinningur hafi verið metinn, og enginn samanburður hafur verið gerður á stöðunni hér á landi og erlendis. Þessi atriði hafa aldrei komið til umræðu á vettvangi þeirrar samráðsnefndar, sem ráðherra skipaði í tengslum við vinnuna, og hvergi er um þetta fjallað á umfangsmikilli upplýsingasíðu verkefnisins."
Þessar upplýsingar Heiðrúnar Lindar sýna svart á hvítu, að ráðherranefnan í Matvælaráðuneytinu stjórnast af annarlegum hvötum og viðhefur enn einu sinni algert fúsk, enda stendur hvorki geta hennar né áhugi til nokkurs annars. Hún ætlar að misbeita aðstöðu sinni sem ráðherra til að koma höggi á bezt rekna sjávarútveg í heimi. Þessi vinnubrögð eru forkastanleg. Ráðherrann grefur undan þjóðarhagsmunum, eins og hún gróf undan lýðheilsunni með alræmdum samningum við lyfjaiðnaðinn og hörðum áróðri til að búa til tilraunadýr úr heilli þjóð fyrir Bill Gates og kóna hans með erfðafræðilegum efnum á tilraunastigi, sem reyndust vera meingölluð í alla staði, eins og skýr grein var gerð fyrir í aðsendri grein fróðra þremenninga í Morgunblaðinu 15.08.2023.
"Í þessu samhengi er líka merkilegt að lesa nýlega grein matvælaráðherra, sem virðist líta svo á, að það mikilvægasta sé, að "upplifun" almennings af grunnatvinnuvegi þjóðarinnar sé betri. Í heilli grein um þessar bráðabirgða tillögur [nefndar ráðherra - innsk. BJo] er hvergi talað um miklar tekjur, sem sjávarútvegur hefur skapað íslenzku þjóðinni og íslenzkum stjórnvöldum í formi skatttekna, sem hafa lagt grunn að þeim lífsgæðum, sem við búum við. Það er eins og það skipti engu máli í hinni pólitísku mynd. Óljós upplifun virðist einfaldlega skipta meira máli en verðmætasköpun og sá hagur, sem vel rekinn sjávarútvegur færir þjóðinni."
Núverandi matvælaráðherra er bara lýðskrums bullustampur. Hún hefur engan áhuga á að bæta opinbera umgjörð sjávarútvegsins með það í huga að efla hann enn frekar til langs tíma, svo að hann geti fært enn meiri björg í bú. Hana dreymir um að setja klær ríkisins með einum eða öðrum hætti dýpra í hold atvinnugreinarinnar en nú er. Þessi mælikvarðalausa "upplifun" ráðherrans er að fálma eitthvað út í loftið á mjög hæpnum forsendum, eins og í hvalamálinu í sumar, til að þóknast svartasta afturhaldi landsins, sem að töluverðu leyti fyllir flokkinn hennar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2023 | 10:26
Ofstæki loftslagskirkjunnar
Illvígum loftslagsáróðri er beint að almenningi til að fá hann til að breyta um lifnaðarhætti og til að ryðja brautina fyrir stjórnmálamenn til að auka skattheimtuna í nafni meintrar loftslagsvár. Þetta er oft á tíðum svívirðilega falskur málflutningur. Það verður að hafa í huga í þessu sambandi, að verstu mengunarþrjótarnir eru í Austur-Asíu, og þeir gera ekkert með þessar áhyggjur, t.d. Kína og Indland, og á meðan svo er, mun ekki nást mikill árangur í að draga úr losun koltvíildis á heimsvísu. Meðal annarra orða: hvenær varð styrkur koltvíildis í andrúmsloftinu svo mikill, að mikilvægi vatnsgufunnar við að skerma endurkast hitageisla frá jörðu hyrfi algerlega í skuggann ?
Þessi staða mála ógnar samkeppnisstöðu Vesturlanda í heimsviðskiptunum og er þess vegna viðsjárverð. Síðasta fálm búrókrata í Brüssel út í loftið í þessari skattheimtu er væntanlegt kolefnisgjald í skip. Það er fálm út í loftið af þeirri einföldu ástæðu, að það er enn engin staðkvæmdarvara í sjónmáli fyrir jarðefnaolíu til að knýja skipin, og þess vegna er enginn raunhæfur hvati fólginn í þessari gjaldtöku. Þar af leiðandi er þetta skattheimta. Hvernig ætla stjórnmálamenn að verja þessu skattfé ? Hvaða gæluverkefi skyldu verða fyrir valinu ?
Utanríkisráðuneytið hefur enn einu sinni opinberað áhugaleysi sitt og/eða getuleysi við að greina íslenzka hagsmuni og rýna reglusetningu Evrópusambandsins (ESB) m.t.t. að virkja undanþágur með röksemdafærslu um séraðstæður Íslendinga. Þegar uppgjafartónninn berst úr þessu ráðuneyti, er stundum eins og ráðuneytið sé orðið handgengið bákninu í Brüssel.
Flutningskostnaður til og frá Íslandi er hærra hlutfall af vöruverði til viðskiptavina en tilvikið er fyrir nokkurt annað EES-land. Af hverju hringir sú staða mála engum viðvörunarbjöllum í utanríkisráðuneytinu og viðskiptaráðuneytinu ? Þessi staða máls er til þess fallin að rýra lífskjör fólks á Íslandi meira en í nokkru öðru Evrópulandi. Það getur enginn alvöru stjórnmálamaður skellt skollaeyrum við því, en það mun stjórnarandstaðan á Alþingi þó gera með heiðarlegum undantekningum, af því að vinstrið þar er gengið ESB á hönd.
Þá að hræðsluáróðrinum. Angi hans snýst reyndar um hamfarakólnun á Íslandi, sem reyndar er raunveruleg hætta á til lengri tíma litið, þegar út úr núverandi hlýskeiði kemur, en áróðurinn snýst hins vegar um það, að núverandi hlýskeið, sem er alls ekki enn það hlýjasta í seinni tíma jarðsögu, muni valda svo mikilli jökulbráðnun á norðurhveli, að Norður-Atlantshafið muni kólna svo mikið, að stórlega dragi úr styrk Golfstraumsins hlýja norður á bóginn. Mælingar gefa þó alls engar vísbendingar um þetta.
Morgunblaðið átti viðtal við Halldór Björnsson, veður- og haffræðing á Veðurstofu Íslands, um þessi mál 27. júlí 2023 undir fyrirsögninni:
"Stöðvun hafstrauma boðuð við Ísland"
"Tilefni spjallsins er grein í vísindatímaritinu "Nature", sem boðar stöðvun hafstraums, sem þar gengur undir nafninu AMOC, "The Atlantic meridional overturning circulation", á 21. öldinni, straums, sem er töluvert víðförulli en Golfstraumurinn og flytur hlýjan sjó til norðurhvels jarðar, en kaldan suður á bóginn."
""Mjög lengi hafa vangaveltur verið uppi á borðinu [svo ?!] um, hvort veltihringrásin sé óstöðug, þ.e.a.s. ef það hlýnar of mikið eða vatnið norðan við verði of ferskt, t.d. við mikla rigningu eða hressilega bráðnun Grænlandsjökuls, geti þessi straumur ekki lengur myndað djúpsjó, þá væri í raun búið að slökkva á honum", heldur Halldór áfram."
Óskýrar greinar af þessu tagi um viðurhlutamiklar breytingar í náttúrunni geta hæglega vakið upp óþarfa ótta almennings, ef hvorki höfundarnir né útgefandinn gera grein fyrir samhenginu og raunstöðunni. Aðalatriðið er, að engar mælar gefa enn vísbendingar um þessa þróun, svo að hér er aðeins um fræðilegar vangaveltur að ræða. Halldór gerir grein fyrir samhenginu:
""Þótt AMOC hyrfi alveg, er eftir sem áður mikill varmaflutningur inn á svæðið frá hafinu og reyndar einning frá lofthjúpinum; það er mikilvægt að hafa í huga, að lofthjúpurinn flytur meiri varma inn á þetta svæði en hafið gerir", segir haffræðingurinn. Þar með segir hann, að aldrei kæmi til þess, þótt AMOC straumurinn stöðvaðist, að hitaflutningur inn á hafsvæðið við Ísland legðist af með öllu; hann mundi einfaldlega minnka."
Þannig varð 1 fjöður að 10 hænum. Það eru svona mál, sem Loftslagsráð grípur á lofti án merkilegrar greiningar og kastar fram sem hrollvekju. Nú hefur formaður þessa einkennilega ráðs lýst því yfir við fjölmiðla (11.08.2023), að nauðsynlegt sé, að Íslendingar verði leiðandi í að setja kolefnisfría orkugjafa í skip sín til að knýja þau. Hvers konar bolaskítur er þetta nú ? Hvers vegna og hvernig á smáþjóð norður í Atlantshafi að gefa tóninn fyrir risaútgerðir heimsins, sem enn hafa enga lausn á reiðum höndum. Þessi furðuformaður talar hins vegar eins og álfur út úr hól um, að skattlagning ESB sé nauðsynlegur hvati, svo að útgerðirnar teygi sig í þessa lausn. Það er von, að losun landsmanna á koltvíildi aukist fremur en hitt, þegar ráðgjafarnir eru af þessari hlaupvídd.
Halldór skýtur síðan hræðsluáróðurinn um stöðvun varmaflutnings með hafstraumum á kaf:
""Loftslagslíkön ná ekki öll að herma þetta; þarna erum við á jaðri vísindalegra rannsókna, og menn vita ekki alveg, hvernig á að takast á við þetta. En í loftslagslíkönum, þar sem dregur úr styrk AMOC, sem er reyndar í mjög mörgum líkönum, er það yfirleitt þannig, að maður sér einhverja kalda bletti í Norður-Atlantshafi, en þeir ná ekkert endilega til Íslands, ekki allir, og yfirleitt eru þeir tímabundnir, taka kannski 10-50 ár", segir Halldór."
Það er auðvelt að hrapa að vitlausri niðurstöðu, og það er einkenni flautaþyrla. Áður en þeir fara að hvetja íslenzkar skipaútgerðir til að draga úr losun sinni, ættu þeir að reikna út, hver sú losun er í samanburði við meðaltalslosun íslenzkra eldfjalla á ári. Það er nefnilega þannig, að losun íslenzkra skipafélaga hefur engin merkjanleg áhrif á hlýnun jarðar, en það hafa eldfjöllin, þegar þau eru í stuði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2023 | 17:08
Pólitískar kreddur standa þróun sjúkraþjónustu fyrir þrifum
Í viðtali Morgunblaðsins 28.07.2023 vakti Hjálmar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Klíníkinni, athygli á því, hvernig tréhestar ríkisins í sjúkrakerfinu hafa, meðvitað eða ómeðvitað vegna meðfædds doða, tafið framkvæmd nýlegs samnings heilbrigðisráðherra við einkaframtak á sviði lækninga upp á mrdISK 1,0 átak til að draga úr hörmungum fólks á biðlista ríkisins eftir aðgerð.
Hvers vegna var fyrirtækjunum, sem ráðherrann samdi við, meinaður aðgangur að þessum biðlistum, og hvers vegna er fyrirtækjum í þessum einkageira athafnalífsins meinað að kynna almenningi þjónustu sína ? Þetta vitnar um gaddfreðið hugarfar tréhesta ríkisins, sem setja gamlar og forstokkaðar pólitískar kreddur ofar hagsmunum sjúklinganna. Staðreynd er, að ríkisbáknið ræður ekkert við að einoka þessa þjónustu og ætti að viðurkenna það, ekki aðeins í orði, heldur og í verki. Einkaframtakið veitir í þeim tilvikum, sem hér um ræðir, jafngóða þjónustu og Landsspítalinn með kostnaði fyrir ríkissjóð og sjúklinga, sem er helmingur af kostnaði Landsspítalans. Það er óskiljanlegt, að einhverjir ríkisstarfsmenn skuli enn halda dauðahaldi í "einokun" ríkisins. Hvers vegna fá stjórnmálakreddur frá frumstæðu Rússlandi Stalíns svona miklu ráðið um framkvæmd lækningamála á Íslandi 2023 ? Þetta er einsdæmi á Norðurlöndunum og þótt víðar væri leitað.
Téð viðtal við Hjálmar bar fyrirsögnina:
"Fjöldi liðskiptaaðgerða tvöfaldast".
Þar gat m.a. að líta eftirfarandi:
"Hjálmar segist vera undrandi á því, að þetta tækifæri til að auka skilvirkni og útrýma biðlistum eftir liðskiptaaðgerðum, eins fljótt og hægt er, skuli ekki vera nýtt. Vel hafi gengið hjá fyrirtækinu að bæta líf fólks.
"Ég er ótrúlega stoltur af starfsfólki Klíníkurinnar, því [að] á þessu ári erum við búin að meira en tvöfalda fjölda aðgerða, sem voru gerðar á sama tíma í fyrra, sem var langstærsta árið okkar. Við erum búin með rúmlega þriðjung af samningnum á þriðjungi af samningstímanum", segir Hjálmar."
Læknirinn furðar sig á tregðu ríkisins við að koma til móts við þarfir sjúklinga. Þar á bæ eru kreddurnar alls ráðandi. Kostnaður skiptir engu máli þar á bæ, líðan sjúklinga ekki heldur. Öllu máli skiptir, hver gerir aðgeðina. Verri verða moldvörpuviðhorf vinstrisins ekki. Þetta er meinlokan við ríkisrekstur í hnotskurn, sem hvorki Karl Marx né Jósef Stalín létu sig nokkru skipta. Er ekki kominn tími til að hreinsa flórinn og lofta út, svo að heilbrigð skynsemi um rekstur og þjónustugæði fari að mega sín nokkurs í stjórnun ríkisins á þjónustu við sjúka, sem nú étur upp um þriðjung fjárlaganna ?
Mogganum blöskrar framkvæmdin á þessu eins milljarðs ISK átaki ríkisins, eins og sjá mátti á forystugrein blaðsins, 31.07.2023, undir fyrirsögninni:
"Lærum af mistökunum".
Hún hófst þannig:
"Ótrúleg handvömm hefur orðið við framkvæmd á átaki, sem heilbrigðisráðherra kynnti fyrr á árinu í því skyni að stytta biðlista eftir liðskiptaaðgerðum. Margir hafa þjáðst allt of lengi vegna langrar biðar eftir aðgerðum á mjöðm eða hné, og voru um 2000 á biðlistum, þegar átak ráðherra fór af stað fyrir um 4 mánuðum. Þetta átak átti að standa til áramóta [2023/2024], og með því átti að framkvæma um 700 aðgerðir fyrir um mrdISK 1,0."
Það er ekki víst, að "handvömm" lýsi bezt því, sem átt hefur sér stað. Sé svo, eru ýmsir stjórnendur, sem í raun eru þröskuldar, óhæfir. Líklegra er, að meðvitað hafi skít verið kastað í tannhjólin til að draga úr árangri einkaframtaksins við að leysa uppsafnaðan vanda ríkisrekstrarins. Það var í þessu tilviki gert með því að halda þjáningarfólki biðlistans í myrkri um þjónustu einkaframtaksins. Hvaða hlutverki gegndi Landlæknirinn í þessum hráskinnaleik ?
"Þetta [dræm aðsókn-innsk. BJo] hefði auðvitað strax átt að hringja öllum viðvörunar bjöllum, og óþarfi [var] að bíða í marga mánuði eftir að grípa til þeirra aðgerða, sem duga til að ná til sjúklinganna. [Ekki er víst, að það sé búið enn - innsk. BJo.]
Framkvæmdastjóri lækninga hjá Klíníkinni benti á í samtali við Morgunblaðið, að þau fyrirtæki, sem samið hefði verið við, hefðu aðeins fengið leyfi til að framkvæma aðgerðir á þeim, sem hefðu verið á biðlistum í 9 mánuði eða lengur, sem strax dregur úr virkni átaksins, enda eru þeir líklegastir til að vera komnir með dagsetta aðgerð annars staðar. Hann sagði, að bent hefði verið á þetta, en á það ver bersýnilega ekki hlustað."
Það, sem heilbrigðisráðherra kallar átak, er framkvæmt með hangandi hendi af hálfu ríkisins. Það eru meinvörp í stjórnsýslunni, sem verður að fjarlægja strax, ef kerfið á ekki sífellt að hökta eins og ræfill. Frumskilyrði árangurs hjá ráðherra er, að hann geri sér grein fyrir þessu og vakti náið verkefni, sem hann hleypir af stokkunum með fjaðraþyt og söng, en treysti ekki kerfissnötum fyrir horn.
Að lokum stóð í þessari forystugrein:
"Þær aðgerðir, sem verið er að framkvæma á einkareknu stofunum tveimur, sem ráðherra samdi við í vor, kosta ríkið aðeins um helming þess, sem sambærilegar aðgerðir kosta á Landsspítalanum. Augljóst er, að ríkið verður að nýta slíka þjónustu einkaaðila, eins og mögulegt er, til að halda niðri kostnaði í heilbrigðiskerfinu.
Til að það takist, verður hið opinbera kerfi að vera tilbúið til að vinna með einkaaðilum og auðvelda þátttöku þeirra. Vonandi tekst það m.a. með því, að lærdómur verði dreginn af því, hvernig yfirstandandi átak fór af stað."
Allt er satt og rétt, sem ofan greinaskilanna stendur, en þegar að úrbótum kemur, duga hvorki fortölur né frómar óskir. Sósíalískur sértrúarsöfnuður lætur sér ekki segjast. Það er margreynt, og til vitnis um það geta menn haft í þessu tilviki, að viðkomandi fyrirtækjum verður ekki heimilaður aðgangur að fólki á þessum biðlista eða hinum, sem er eftir úrskurði um að komast á aðallistann. Fyrirtækjunum verður ekki heimilað að kynna þjónustu sína, sem ætti þó að vera sjálfsagt mál. Hjá þessum sértrúarsöfnuði kommúnismans á launaskrá íslenzka ríkisins snýst málið ekki um að veita sjúklingum bót meina sinna, heldur að standa vörð um það, að þeirra fólk veiti þessa þjónustu. Verkin sýna merkin, og þetta var einmitt kjarni pólitíkur fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Svandísar Svavarsdóttur. Kommúnistarnir misnota aðstöðu sína til að planta þóknanlegum viðhorfum inn í ríkisapparatið. Afleiðingin er ömurleg fyrir móttakendur þjónustu og skattgreiðendur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2023 | 11:09
Víti til varnaðar í sóttvörnum
Furðulegt offors einkenndi aðgeðir sóttvarnaryfirvalda í heiminum gegn veirunni SARS-CoV-2. Kínverjar reyndu fyrst að þagga niður allt tal um sjúkdóminn af hennar völdum, sem brátt fékk heitið COVID-19 eða C-19 hjá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni, AHS. Þegar þöggunin gekk ekki lengur, sneru kínversk yfirvöld algerlega við blaðinu með fyrirmælum um að svipta fólk ferðafrelsi, sem nánast fól í sér að svipta það sjálfræði. Var það lokað inni á heimilum sínum, fyrirtækjum lokað og annað í svipuðum dúr að hætti einræðisafla. Einu sóttvarnaráhrifin af því heimskupari var að seinka útbreiðslu faraldursins í Kína.
Í krafti óttans höfðu yfirvöldin öll ráð fólksins í hendi sér. Þetta tók AHS, sem er undir daglegri stjórn marxista frá Eþíópíu, sem sætir ákæru um stríðsglæpi, til fyrirmyndar fyrir önnur ríki, sem flest hlýddu í auðmýkt.
Flest ríki fylgdu þessum ráðleggingum með einum eða öðrum hætti, þ.á.m. Ísland. Nokkur ríki í Bandaríkjunum og Svíþjóð tóku þó sjálfstæða ákvörðun um mjög takmarkaðar frelsisskerðingar, og þeim reiddi betur af í heildar dauðsföllum talið, svo að ekki sé nú minnzt á fjárhagstjónið. Þegar síðan kom að bólusetningum, keyrði um þverbak. Arnar Þór Jónsson, lögmaður, hefur á vefsetri sínu, sem birtist á Moggablogginu, gert grein fyrir skráningum, t.d. í Bandaríkjunum, sem benda til óvenju tíðra veikinda af völdum bólusetninganna; um 1,6 milljón manns þar hafði skráð slíkar, og talið er, að aðeins 1 % af öllum slíkum tilvikum séu skráð. Flestir bólusettra hafa þannig líklega kennt sér meins af völdum bólusetninga.
Morgunblaðið birti þann 4. ágúst 2023 viðtal við einn ofstækisfyllsta bólusetningafrömuðinn, Kára Stefánsson, lækni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, undir fyrirsögninni:
""Auðvelt að vera klár eftir á"":
""Það er engin spurning um, að þessar bólusetningar hafa bjargað lífi tuga milljóna manna í heiminum, en það er líka ljóst, að einhverjir, sem voru bólusettir, fóru illa út úr því", segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar."
Hvaða rannsóknir styðja aðalsetninguna í málsgreininni ? Ekki hefðbundnar blindprófsrannsóknir á undan veitingu bráðabirgða leyfis fyrir bóluefnunum, því að lyfjafyrirtækin stöðvuðu þær allt of fljótt, þegar vísbendingar komu í ljós um mjög lítinn varnarmátt bóluefnanna 3 mánuðum eftir bólusetningu. Allir vita, að bólusettir virtust ekkert síður smitast af SARS-CoV-2 en óbólusettir. Með því að kasta því fram, að bólusettir hafi veikzt minna en óbólusettir, er bara verið að bera í bætifláka fyrir meingölluð og varhugaverð bóluefni, sem leyfð voru til nota á almenningi löngu áður en hefðbundnum prófunum lauk. Eru einhverjar hlutlægar rannsóknir óvilhallra aðila til, sem sýna, að bólusettir hafi með óyggjandi hætti veikzt minna eða er þetta bara innantóm fullyrðing gasprara ?
Núverandi Sóttvarnarlæknir hefur haldið því fram opinberlega, að óbólusettir hafi veikzt meira af hjartasjúkdómum við að smitast af téðri veiru en bólusttir af sprautunum. Getur verið, að sóttvarnarlæknir dragi of frjálslegar ályktanir af athugunum sínum. Hún er með ósambærileg þýði í samanburðinum, og mismunur þýðanna, sem ekki hefur verið jafnaður út, getur hæglega leitt Sóttvarnalækni á villigötur í ályktunum sínum.
"Sagði Kári ýmsa vísindamenn telja, að ekki hefði verið rétt að bólusetja alla og bent á fjölda [tilvika], þar sem bólusetningar á ungu fólki hefðu leitt til þess, að það fékk bólgu í hjartavöðva, jafnvel í meira mæli en fólk, sem sýktist af veirunni."
Þetta virðist fljótt á litið vera í mótsögn við málflutning Sóttvarnalæknis, en það á einvörðungu við, ef rétt er að bæta við tilvísunarsetninguna í lokin "og var óbólusett". Mikilvægasta spurningin í þessu sambandi er hins vegar, hvers vegna í ósköpunum var verið að sprauta ungviðið ? Þörfin var einfaldlega ekki fyrir hendi. Einkenni smits ungmenna voru væg, og engin dauðsföll studdu það að fara í þessa bólusetningarherferð. Við þessar aðstæður er eðlilegt að tortryggja þessa ákvörðun sóttvarnaryfirvalda (og margar fleiri) og gruna bóluefnaframleiðendur um græsku. Sóttvarnayfirvöld á Íslandi voru allt of leiðitöm og báru fyrir sig AHS, en þaðan leggur ramman spillingaróþef.
""Það er alltaf lítill hundraðshluti, sem situr uppi með aukaverkanir", segir Kári ... ."
Þarna skautar kjaftgleiður læknirinn léttilega yfir staðreyndir, sem tala allt öðru máli um tilraunabóluefnin, sem beitt var gegn SARS-CoV-2 veirunni. Fjöldi tilkynninga um aukaverkanir er meiri en summa allra tilkynninga hingað til um aukaverkanir bóluefna. Það eitt út af fyrir sig sannar þó ekkert um alvarleika þessara aukaverkana eða tíðni, en innihald tilkynninganna sýnir, að ver var af stað farið en heima setið, eins og Arnar Þór Jónsson hefur rakið í pistlum sínum á vefsetri sínu og birzt hafa á Moggablogginu. Heilbrigðisyfirvöldin skutu langt yfir markið, og lyfjaiðnaðurinn hafði sitt fram og makaði krókinn. Höfundur þessa vefpistils þáði enga sprautu gegn C-19 og er þess vegna ekki endilega einvörðungu eftir á klókur í þessum efnum. Hann hefur ekki hugmynd um, hvort hann hefur smitazt af C-19, því að hann fékk nokkrum sinnum flensueinkenni á tímabilinu, en fjarri því nokkur langvarandi einkenni, eins og sóttvarnaryfirvöld gerðu mikið úr. Eftir á vizkan í þessu máli er, að þau hefðu betur sleppt öllum bólusetningum og lagt höfuðáherzlu á að verja viðkvæma í stað þess að lama allt samfélagið og bólusetja holt og bolt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2023 | 10:05
Sanngirnismál Vestfirðinga
Það má hiklaust halda því fram, að sanngjarnt sé, að allir landshlutar búi við lágmarks afhendingaröryggi raforku, en það er nægilega trygg afhending raforku, sem kemur í veg fyrir kostnaðarsamt straumleysi, sem sé þá hið mesta einu sinni óvænt á 5 ára fresti og vari í minna en einn stundarfjórðung. Á Vestfjörðum eru straumleysin árlegur viðburður og vara einni stærðargráðu lengur en hér er miðað við. Það er ekki bara algerlega óviðunandi, heldur til vanza fyrir samfélag, sem framleiðir meiri raforku á mann en annars staðar þekkist.
Morgunblaðið hefur lagt Vestfirðingum gott lið í sanngirnisbaráttu þeirra fyrir leyfi til að virkja og fyrir öflugra og öruggara flutningskerfi raforku með jarðstrengjavæðingu á vegum Landsnets. Fjölmargar greinar hafa birzt í blaðinu Vestfirðingum til stuðnings í réttlætisbaráttu þeirra, og má benda á grein Halldórs Halldórssonar 04.08.2023. Þann 2. ágúst 2023 birtist Sviðsljósgrein í blaðinu eftir blaðamann þess, Klöru Ósk Kristinsdóttur, undir fyrirsögninni:
"Vestfirðinga skortir örugga orkuöflun".
Hún hófst þannig:
"Varaafl á Vestfjörðum nægir ekki til þess að bregðast við aukinni orkunotkun með nýjum atvinnutækifærum, segir Elías Jónatansson, Orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða, í samtali við Morgunblaðið.
Viðvarandi orkuskortur hefur verið á Vestfjörðum undanfarin ár og því nauðsynlegt að bregðast við í takti við uppbyggingu á svæðinu. Orkunotkun byggist að hálfu á orku, sem flutt er eftir Vesturlínu inn á Vestfirði, og ef línan verður straumlaus, er brugðist við með því að gangsetja varaaflsstöðvar.
Þær varaaflsstöðvar, sem nú eru fyrir hendi, duga til þess að mæta að fullu straumleysi eða aflskorti í raforkukerfinu m.v. núverandi notkun, en Elías segir það þó annað mál, að notkunin eykst á svæðinu."
Vestfirðir eru eitt af vaxtarsvæðum landsins um þessar mundir, og er allur þessi vöxtur í útflutningsgreinum, aðallega fiskeldi og ferðalögum útlendinga þangað ásamt vinnslu sáragræðandi efna úr þorskroði. Orðspor allrar þessarar starfsemi er reist á hugtakinu sjálfbærni, þ.á.m. við raforkuvinnslu. Við þessar aðstæður grefur staða raforkumálanna undan orðspori þeirrar vöru, sem Vestfirðingar markaðssetja á heimsmarkaðinum undir formerkjum sjálfbærni. Vestfirðir eru á einum 132 kV geisla út frá 132 kV Byggðalínu, sem eftir nokkur ár verður vonandi 220 kV hringhluti, lokað með 132 kV á SA-landi, en það yrði of í lagt að leggja 220 kV línu til Vestfjarða, og viðbótar 132 kV lína þangað verður að lúta í lægra haldi fyrir vatnsaflsvirkjunum á Vestfjörðum frá hagkvæmnisjónarmiðum og sjónarmiðum um afhendingaröryggi raforku.
Það eru ágætis virkjanakostir fyrir hendi á Vestfjörðum, sem geta útrýmt orðsporsáhættu Vestfirðinga, þótt núverandi Vesturlína sé í lamasessi um langan tíma. Það mun létta á yfirlestuðu landskerfinu, ef ekki verður að jafnaði þörf á raforku til Vestfjarða um Vesturlínu. Ahendingaröryggi rafmagns er hið langlakasta á Vestfjörðum m.v. aðra landshluta, og vegna ofangreinds vaxtar er brýn þörf á úrbótum. Margt hefur vitlausara og óþarfara verið gert á Alþingi en að setja sérlög um um að jafna aðstöðu Vestfirðinga að þessu leyti og að draga um leið sérstaklega mikið úr olíunotkun þeirra. Tvær flugur í einu höggi er ekki slæmt.
"Með það að markmiði að tryggja orkuöryggi á Vestfjörðum hefur Orkubúið kallað eftir því, að umhverfisráðherra endurskoði friðlýsingarskilmála í Vatnsdal, til þess að hægt sé að fara í orkunýtingu þar. Útilokað er að segja til um tímarammann á því verkefni, en "ef allt gengur vel, virkjunin kemst inn í rammann og fær eðlilega umfjöllun, þá getum við jafnvel séð virkjun rísa fyrir 2030", segir Elías.
"Með aukinni orkunotkun, nýjum atvinnutækifærum og fólksfjölgun fyrir árið 2030 er ekki hægt að tryggja nægt varaafl." Því getur komið til þess, að byggja þurfi upp varaafl á svæðinu til þess að halda uppi sama þjónustustustigi og við höfum í dag, þ.e.a.s. ef aflið fæst ekki með virkjunum eða með styrkingu landlínunnar. Elías segir það þó ekki ásættanlegt lengur að tryggja orkuöryggi með því að reisa dísilstöðvar "fyrir utan, að það er þvert á stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum"."
Orkubú Vestfjarða hefur nú gert skilmerkilega grein fyrir stöðu orkumála á veitusvæði sínu og fært greinargóð rök fyrir þeim leiðum, sem heimamenn telja vænlegast að fara til að snúa orkumálum sínum til betri vegar, sem er brýnt. Nú er komið kjörið tækifæri fyrir Guðlaug Þór Þórðarson að sýna, hvers hann er megnugur til að greiða götu Vestfirðingu á málefnasviðum sínum sem ráðherra. Ef ekkert vitrænt kemur fljótlega frá honum um þessi efni, er vandséð, til hvers hann situr í ríkisstjórn.
Friðlýsingarskilmálar eru ekki endanleg ákvörðun ríkisvaldsins, heldur breytingum undirorpnir, einfaldlega af því, að allt er í heiminum hverfult, og tæknin við hönnun og framkvæmdir virkjana og flutningsmannvirkja frá þeim, tekur verulegum framförum í tímans rás. Þá eiga viðhorf heimamanna á hverjum tíma að vega verulega þungt við ákvarðanatöku, ef raunverulegra lýðræðissjónarmiða er gætt.
Ef það er svo, að afturhaldið í landinu, sem á sína fulltrúa við ríkisstjórnarborðið um þessar mundir, ætlar að leggjast þversum gegn þessu, þá á það að verða kornið, sem fyllir mælinn í þessu ríkisstjórnarsamstarfi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þann 31. júlí 2023 birtist fjagra dálka ljósmynd á forsíðu Morgunblaðsins af skemmtiferðaskipum á Skutulsfirði, sem reykjarstrókana lagði upp af. Þarna var ljósi varpað á mengunarvandamál og orsök þess á þessum stað, raforkuskortinn. Nú blaðrar forsætisráðherra um, að verið sé að endurskoða opinbera aðgerðaáætlun til að draga úr losun koltvíildis frá Íslandi. Það plagg verður án tengils við raunveruleikann, nema miklu meira verði virkjað af endurnýjanlegri orku á Íslandi.
Ef ráðherrarnir ætla að hrista af sér slyðruorðið, munu þeir láta búa til hraðfara aðgerðaáætlun til að gera Vestfirðinga sjálfum sér næga með raforku úr endurnýjanlegum orkulindum og að ýta á eftir því, að ríkisfyrirtækið Landsnet breyti 33 kV og 66 kV loftlínum sínum á Vestfjörðum í jarðstrengi. Þar með verður hægt með raunhæfum hætti að undirbúa rafvæðingu hafnanna með háspenntan tengibúnað fyrir farþegaskipin. Þangað til ættu bæjaryfirvöld á Ísafirði að setja útgerðum farþegaskipanna stólinn fyrir dyrnar með sóðaskapinn og gera þeim að brenna gasi, á meðan þau eru inni á fjörðum. Það gerðu Norðmenn, sem nú eru mun lengra komnir við rafvæðingu hafnanna en Íslendingar, enda ekki forpokað afturhald að setja skít í tannhjól þróunarinnar þar.
Í Morgunblaðinu, 31.07.2023, birtist frétt um þetta undir fyrirsögninni:
"Ekki til orka fyrir skipin".
Þar var viðtal við íbúa á Ísafirði, Sturlu Pál Sturluson:
""Eins og við, sem búum hérna fyrir vestan, vitum, er Skutulsfjörðurinn sérstaklega lognsæll, en það kemur hins vegar allt of oft fyrir, að hann er í hálfgerðri blárri móðu eftir skipin", segir Sturla. Spurður, hvort mikil óánægja ríki [á] meðal bæjarbúa vegna ástandsins svarar Sturla því til, að fyrst og fremst hafi þeir áhyggjur af stöðu mála."
Staða mála er sú, að Ísfirðingar eiga ekki að þurfa að sætta sig við, að nokkur farþegaskip leggist að hjá þeim og mengi þá þá svo mjög, að sé á við árslosun bílaflota þeirra. Það á að fara að dæmi Norðmanna, sem banna svona dalla í norskum fjörðum og gera að skilyrði fyrir móttöku þeirra, að þau séu annaðhvort knúin jarðgasi eða rafmagni, á meðan þau eru innan norskra fjarða. Það er til skammar, að skortur á raforku úr endurnýjanlegum lindum skuli standa rafvæðingu hafnanna á Vestfjörðum fyrir þrifum.
Úrtölumenn á við píratakjánana halda því fram, að ekki sé unnt að heimila nýjar virkjanir, af því að þörfin sé ekki ljós, hægt sé að spara orkutöp, hætta að selja orku til námugraftrar gervimynta og þar fram eftir götunum. Ekki sé hægt að tryggja, að ný orka fari í orkuskipti. Allt er þetta tómur fyrirsláttur til að drepa umræðunni á dreif, og það hefur tekizt, því að ekkert stórt virkjanaverkefni er nú í gangi, eftir að Hvammsvirkjun fór á ís á fáránlegum grundvelli, þ.e. vatnalögum Evrópusambandsins.
Þörfin hefur verið kortlögð og nemur um 80 MW eða 400 GWh/ár. Allar stærðirnar, sem píratakjánarnir nefna til sönnunar þess, að ekki þurfi að virkja, verða eins og dropi í hafið, þegar þessar árlegu þarfir eru lagðar saman yfir byggingartíma virkjunar á borð við Hvammsvirkjun. Undanfarin ár hefur aðeins brot af ofangreindum stærðum bætzt við uppsett afl og árlega orkuvinnslugetu.
Það er mjög annkannalegur málflutningur hjá pírötum, sem að upplagi eru stjórnleysingjar, að vinza eigi úr viðskiptamannahópi raforkufyrirtækjanna eftir geðþótta stjórnmálamanna. Það verður hér eftir sem higað til að vera greiðslugeta fyrirtækjanna, sem ræður því, hvort þau fá raforku eða ekki. Annað er óþolandi forræðishyggja og mismunun í anda kommúnista, sem vart stenzt Stjórnarskrá.
"Þá segir Sturla stóra Akkilesarhælinn vera, að ekki megi virkja fyrir vestan, þó [að] nóg sé af fallvatni, og því geti skemmtiferðaskipin ekki nýtt sér rafmagn, þegar þau leggjast þar að bryggju.
"Þó [að] þessi skip myndu vilja fara þá leið, þá er þetta rafmagn bara ekki [fyrir hendi]. Það er ekki nóg að setja upp kapla og tengingar, ef engin er orkan", segir Sturla og bætir við, að fólk sé kannski ekki almennt að setja sig upp á móti skemmtiferðaskipum, heldur sjái frekar hið jákvæða vegna afkomunnar fyrir bæjarfélagið, þó [að] vissulega sé mengunin óþægilegur fylgifiskur þessa tiltekna ferðamáta"."
Það þarf mikið afl til að sjá stórum skemmtiferðaskipum fyrir nægu afli, enda eru þetta heil bæjarfélög á floti, þegar mest er. Það gæti þurft 10 MW aflfæðingu að höfninni á Ísafirði fyrir þetta, og það er óvíst, að flutningskerfið að bænum geti annað því núna, og núverandi vatnsaflsvirkjanir á Vestfjörðum geta ekki bætt við sig þessu álagi. 132 kV Byggðalínan er fulllestuð, svo að þótt 132 kV Vestfjarðalína gæti bætt þessu álagi á sig, kemur það ekki að haldi, enda er árlegt viðhaldstímabil hennar að sumarlagi, og allir, nema píratar og forysta Landverndar, sjá, að engin glóra er í að gangsetja olíukyntar varaaflsstöðvar Vestfjarða til að anna raforkuþörf skemmtiferðaskipta. Þess vegna hefur téður Sturla Páll lög að mæla um raforkuskortinn, þótt með ólíkindum sé á Íslandi 2023.
Vegna óstjórnar og misheppnaðrar lagaumgjarðar orkumálanna að hætti þröskulda samfélagsins siglir Ísland nú inn í Suður-Afríkanskt ófremdarástand með straumleysi vegna yfirálags og orkuskerðinga vegna orkuskorts. Orkuskerðingar hafa verið staðreynd um langa hríð staðbundið, t.d. í Eyjafirði í tvo áratugi vegna ófullnægjandi flutningsgetu, þegar tekin er með í reikninginn raforka, sem óskað hefur verið eftir, en ekki fengizt. Þetta hefur valdið þjóðfélaginu tugmilljarða ISK tekjutapi á ári.
Nú er sú staða að koma upp á Vestfjörðum vegna rífandi gangs útflutningsgreina þar og fólksfjölgunar, að aðeins verður unnt að anna aukinni aflþörf Vestfirðinga með olíukyntum rafstöðvum. Það er reginhneyksli og falleinkunn fyrir landsstjórnina, sem stöðugt gumar af endurnýjanlegum orkulindum og orkuskiptum.
Elías Jónatansson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða, er ötull talsmaður heilbrigðrar skynsemi í orkumálum Vestfirðinga og hefur iðulega skrifað fróðlegar greinar í Morgunblaðið um þetta brýna mál, sem þolir ekki lengri bið og Þyrnirósarsvefn yfirvalda, því að trúverðugleiki stefnunnar um samdrátt koltvíildislosunar og orkuskiptin liggur við:
"Í þágu Landverndar".
Greinin 26. júlí 2023 hófst þannig:
"Landvernd sendi Orkubúi Vestfjarða formlega beiðni 21. júlí 2023 um, að bregðast við meintum rangfærslum í grein umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í grein, sem birtist í Morgunblaðinu 7. júlí [2023]. Það er óvenjulegt, að Orkubúið fái slíka beiðni. Orkubúinu er málið hins vegar skylt og því sjálfsagt að leysa úr smávægilegum misskilningi, sem snýst reyndar ekki um, hversu mikið varaafl var framleitt með dísilolíu né um það, hversu stórt kolefnisspor þeirrar framleiðslu var, heldur um það, hver á varaaflsstöðina, sem um ræðir. Það er því upplýst hér á sama vettvangi, að umrætt varaafl er í eigu Orkubús Vestfjarða. Gagnvart kolefnissporinu og verndun loftslags er eignarhaldið á varaaflsstöðinni aukaatriði, en varmaorkuna, sem um ræðir, þarf að framleiða með dísilolíu vegna skorts á raforku [úr endurnýjanlegum orkulindum - innsk. BJo]. Það er óumdeilt."
Þessi sparðatíningur Landverndar er broslegur og varpar aðeins ljósi á, að þar á bæ kemst fólk aldrei að kjarna málsins, heldur reynir með heimatilbúnum og hrásoðnu fótalausu þvaðri að halda því fram, að ekki vanti meiri raforku í landið, því að Íslendingar framleiði manna mesta raforku úr endurnýjanlegum orkulindum í heiminum. Þetta er sértrúarflokkur, sem einföldustu rök bíta ekki á. Þessi einföldu rök eru, að andrúmsloftið er aðeins eitt, og ef þessi raforka væri framleidd annars staðar, þá kæmi sú raforka að megninu til úr varmaorku jarðefnaeldsneytis og að mestu úr kolum.
Þá er gengið um á skítugum skónum í húsi staðreyndanna í aumkunarverðri tilraun til að sverta íslenzka stóriðju. Því er haldið fram, að Norðmenn framleiði ál með meiri orkunýtni en Íslendingar. Svona samanburður er afar villandi, því að staðreynd er, að með hærri straumstyrk og stærri kerum fæst að öðru jöfnu hærri orkunýtni. Tæknimönnum íslenzku álveranna og öðrum starfsmönnum þeirra hefur tekizt að bezta rekstur þeirra m.v. það, sem fræðilega er talið unnt með þeirri kertækni, sem hér er í brúki. Ef Landvernd og píratar vilja spara raforku til álveranna, eru þeir að biðja um gríðarlegar fjárfestingar þar, en það er tómt mál að tala um slíkt, nema samtímis megi og verði til raforka til að auka framleiðsluna umtalsvert. Grillur Landverndar og pírata eru legío, en þau taka sjálf sig hins vegar gríðarlega alvarlega og gefa sér forsendur sjálf og þykjast þannig alltaf hafa rétt fyrir sér. Þetta er bara hlægilegt viðhorf illa upplýsts safnaðar.
Talnameðferð þessa safnaðar er óboðleg, og ættu skussar að forðast viðfangsefni, sem þeir ráða ekki við. Skussarnir bera kinnroðalaust saman epli og appelsínur og draga af því ályktanir, sem þeir höfðu áður klambrað saman. Þeir tóku orkunotkun rafgreiningar ISAL og lögðu orkunotkun steypuskálans við. ISAL hefur einmitt gert átak í rafvæðingu steypuskálaofna og stundar nú framleiðslu á eftirsóttri, sérhæfðri vöru í steypuskála sínum, sem eru álsívalningar af ýmsum lengdum, gildleikum og melmum. Þetta bera skussarnir saman við orkunotkun rafgreiningar einvörðungu hjá Norsk Hydro í Noregi og fá út, að ISAL noti 3 % meiri raforku á hvert áltonn en Norsk Hydro eða 100 GWh/ár. Niðurstaða dæmisins er vitlaus hjá pírötum og Landvernd, en athygli vekur, hversu munurinn er þó lítill. Hann nemur aðeins um þriðjungi af árlegri aukningu raforkuþarfar landsins, og hvað eru þessi illa upplýstu afturhaldsöfl búin að tefja virkjanaframkvæmdir hér um mörg ár ?
"Orkubú Vestfjarða vinnur nú að rannsóknum vegna 9,9 MW Kvíslatunguvirkjunar í Steingrímsfirði og 20-30 MW Vatnsdalsvirkjunar inn af Vatnsfirði. Með tilkomu þeirra virkjana mætti draga úr framleiðslu raforku með dísilolíu á Vestfjörðum um 90 %. Auk þess vinnur Orkubúið að jarðhitaleit bæði á Ísafirði og Patreksfirði. Nýting jarðhita gæti minnkað þörfina á raforku til kyndingar. Virkjanaáformin munu að sjálfsögðu þurfa að hljóta lögbundna skipulagsmeðferð og fara m.a. í umhverfismat. Orkubúið telur þó, að hægt sé að tryggja lágmarksáhrif á umhverfið í báðum þessum virkjanakostum."
Þakka ber Orkubússtjóranum fyrir þessa áhugaverðu upplýsingagjöf um leið og lýst er þeirri skoðun, að sjálfsagt sé að styðja Vestfirðinga á þeirri vegferð, sem þarna er lýst, til að auka afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum og draga úr sótmengun og losun CO2. Afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum er hið langminnsta á landinu, og samfélaginu (ríkisvaldinu) ber skylda til þess að jafna þann aðstöðumun, sem nú stendur Vestfirðingum fyrir þrifum. Í þessum efnum hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mikilvægu hlutverki að gegna. Hann hefur lýst yfir siðferðilegum stuðningi við þessi áform Vestfirðinga, en þau verða ekki í askana látin. Hann verður að láta hendur standa fram úr ermum og láta verkin tala varðandi Vatnsdalsvirkjun. Væmið malarafturhaldið í þéttbýli suð-vestur-hornsins mun rísa upp á afturfæturna í formyrkvuðu ofstæki sínu, og það getur orðið harðsnúinn pólitískur bardagi. Menn verða einfaldlega að verða tilbúnir til að láta sverfa til stáls gegn svartnættinu, sem hér tröllríður húsum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)