Skrípaleikurinn og skýrslan

Aðlögun Íslands að stjórnkerfi Evrópusambandsins, ESB, hófst formlega með þvinguðu samþykki Alþingis 16. júlí 2009 og lauk í ársbyrjun 2013 með ákvörðun ríkisstjórnarinnar, að tillögu Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, um að gera hlé á aðlögunarferlinu vegna Alþingiskosninga, sem í hönd fóru.  Af hverju ákvað Össur að gera þetta hlé ?  Sumpart var það vegna ágreinings í röðum þáverandi stjórnarflokka, og sumpart var það af ástæðum, sem útskýrðir eru í nýútkominni skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, HHÍ. 

Nú hefur ríkisstjórnin í kjölfar útgáfu skýrslu HHÍ tekið ákvörðun um að leggja fyrir Alþingi að binda enda á flausturslegasta flan lýðveldissögunnar í utanríkismálum.  Það er rökrétt að binda enda á aðlögun að ríkjasambandi, sem meirihluti þjóðarinnar hefur aldrei kært sig um að ganga í.  Hvers vegna ætti stjórnkerfið að fara í kostnaðarsama fulla aðlögun til þess eins að hætta við allt saman, þegar alls kyns laga- og Stjórnarskráarbreytingar væru að baki ?   

Aðlögun Íslands að ESB stóð í 3,5 ár á vegum fyrrverandi ríkisstjórnar.  Ágætlega unnin skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sýnir, að enginn ávinningur varð af þessu seindræga ferli.  Ekki voru til svo mikið sem drög að samkomulagi um "sérlausn", þegar Össur gafst upp í byrjun kosningaárs 2013.  Samt skorti ekki áhuga utanríkisráðherrans á að ná "sérlausnum" fyrir Ísland, eins og hann kallar varanlegar undanþágur af alkunnum orðhengilshætti.  Af þessum sökum var talið vonlaust að hefja formlega aðlögun að landbúnaðar- og sjávarútvegsbálki ESB.  Þetta blasir nú við eftir birtingu skýrslu HHÍ. 

Enn heldur fyrrverandi utanríkisráðherra því fram, að hægt sé að ná "sérlausnum" fyrir Ísland.  Hvernig í ósköpunum getur maður, sem barðist fyrir því í 3,5 ár að ná "sérlausnum" fyrir Ísland án árangurs, ætlazt til, að nokkur trúi því, að núverandi utanríkisráðherra, Gunnari Braga Sveinssyni, tækist að "semja um sérlausnir" fyrir Ísland á þessu kjörtímabili, ef honum væri falið það ?  Dr Össur gafst upp og ætlast til, að Gunnar Bragi taki við keflinu.  Þetta er lélegasti brandari íslenzkra stjórnmála um langa hríð.   

Þá, sem halda þessu fram, er ekki hægt að taka alvarlega, því að Gunnar Bragi hefur marglýst yfir andstöðu sinni við inngöngu Íslands í ESB.  Það er hreint og beint ekki hægt að ætlast til þess af núverandi þingheimi, sem að meirihluta til vill eyða orku, tíma og peningum í annað þarfara en einskis nýtt hjal við Stefan Füle um tímasetta aðlögunaráætlun Íslands að hinni sameiginlegu peningamálastefnu,  fiskveiðistjórnunarstefnu og landbúnaðarstefnu ESB. 

Það sem Össuri Skarphéðinssyni, dr í kynlífi laxfiska, einkum murtu í Þingvallavatni, tókst ekki, þrátt fyrir innilega löngun og jafnvel ástríðu, er ósanngjarnt og mjög óeðlilegt að ætlast til, að óbreyttum Gunnari Braga takist.

Setjum svo, að Gunnar Bragi legði út á vatnið og kæmist að landi hinum megin.  Hann hefði þá gengið á vatni, og aftur hefði orðið kraftaverk, en kálið (í þessu tilviki súrkál, uppáhaldsfæða forystuþjóðarinnar) væri ekki sopið, þótt í ausuna væri komið.  Lagalega tryggingu skortir alfarið, af því að samningur við aðildarríki er lögformlega víkjandi gagnvart sáttmálum ESB.  Ef eitthvert aðildarríkjanna mundi ekki, er frá liði, sætta sig við "sérlausnirnar", sem vissulega mundu brjóta í bága við sáttmálana, einn eða fleiri, ef um væri að ræða raunverulegar "sérlausnir", þá mun það kæra Ísland og aðildarsamning til t.d. leiðtogaráðsins.  Um deilur af þessu tagi hefur Evrópudómstóllinn einn lögsögu, og enginn efast um, að hann mun leggja sáttmálana, sem eru ígildi stjórnarskráar ESB, til grundvallar úrskurði sínum og þannig ógilda "sérlausnirnar".   

Þegar þarna væri komið, værum við komin í klærnar á framkvæmdastjórninni, sem mundi fara með okkur, eins og brókina sína.  Stæðum við frammi fyrir slíku fullveldisafsali, er ljóst, að Stjórnarskrá Íslands mundi ekki heimila veru landsins í klúbbi af þessu tagi, og Alþingi væri nauðugur einn kostur að samþykkja úrsögn Íslands úr Evrópusambandinu. 

Af ofansögðu má ljóst vera, að eina rökrétta leið Alþingis núna er að binda enda á umsóknarferlið, sem hófst 16. júlí 2009.  Þá bregður svo við, að formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs umturnast og heimtar skýringu á eftirfarandi texta úr kosningastefnuaskrá Sjálfstæðisflokksins 2013:

"Kjósendur ákveði í þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu, hvort aðildarviðræðum skuli haldið áfram."

Það, sem þarna stendur hefur síðan verið teygt, togað, misskilið og rangtúlkað af fleirum en téðri Katrínu, sem árið 2009 sveik samþykktir síns eigin flokks og samþykkti að leita inngöngu í ESB og fulla aðlögun að regluverki þess, en hafnaði þjóðaratkvæðagreiðslu um þá afdrifaríku ákvörðun. 

Kosningaplagg Sjálfstæðisflokksins tók hins vegar af öll tvímæli um það, að svo skyldi ekki fara á þessu kjörtímabili, heldur skyldi veita þjóðinni tækifæri til að tjá hug sinn um svo afdrifaríka ákvörðun.  Þjóðin kaus Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn til valda 27. apríl 2013 út á stefnuskrár flokkanna, sem m.a. lutu að því að draga umsókn um aðild að ESB til baka.  Allt er þetta eins lýðræðislegt og hægt er að hugsa sér.  Það er sögulega rangt og algerlega órökrétt m.v. stefnu þessara flokka, að þeir hafi lofað þjóðaratkvæðagreiðslu um að hætta við afglöp og óráð fyrri ríkisstjórnar.   

 

Helzta ályktunin, sem draga má af skýrslu HHÍ um aðildarumsókn Íslands að ESB, er, að tal fyrrverandi utanríkisráðherra um sérlausnir er hugarburður einn, enda náði hann ekki samkomulagi um neina "sérlausn" á 3,5 ára umsóknartíma. 

Áhugamenn um inngöngu Íslands í ESB hafa tekið ákvörðun ríkisstjórnarinnar illa, en þeir hafa reynzt gjörsamlega rökþrota í málflutningi sínum.  Það er fullkomlega óboðlegt að japla á innihaldslausum tuggum, sem jafngilda því, að Ísland eigi "af því bara" að halda áfram aðlögunarferlinu að ESB.  Þetta fólk, sem nú getur ekki á heilu sér tekið, grípur hins vegar til svikabrigzla í garð forystu Sjálfstæðisflokksins og meirihluta þingflokks hans vegna þess, að ekki sé við þessi tímamót boðað til kosninga um, hvort stöðva eigi þetta ógæfulega ferli.   

Þetta eru mikil endemi í ljósi þess, að þingflokkurinn er núna að framfylgja síðustu Landsfundarsamþykkt flokksins um þessi mál upp á punkt og prik.  Það verða haldnar kosningar eftir þennan dag, og þær fyrstu væntanlega í vor.  Síðan koma Alþingiskosningar, og þá gefst kjósendum kostur á að tjá hug sinn til flokkanna út af þessu máli og öðrum.  Heitustu fylgjendur aðildar, sem margir hverjir eru hinir sömu og höfðu í frammi alls kyns hótanir og hrakspár í garð kjósenda, ef þeir höfnuðu hinum alræmdu Icesave-samningum, mega þakka fyrir að þurfa ekki nú að horfa upp á enn einn niðurlægjandi ósigur sinn í kosningum.  

Málefnastaða þeirra í fortíð og nútíð er svo veik, og þeir liggja svo vel við höggi nú miðað við þróun mála í Evrópusambandinu, og andstæðingar ESB-aðildar eru svo öflugir og vel vopnum búnir, að fyrir þá er það létt verk að ganga á milli bols og höfuðs á andstæðingunum.    

 Tifandi tímasprengjaÞýzkt ESB

   

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er til of mikils ætlast af evrópubandalagsinnum, að lesa þetta plagg? :

http://ec.europa.eu/enlargement/pdf/publication/20110725_understanding_enlargement_en.pdf

Þetta svarar öllum spurningum og endar alla umræðu.

Kannski vilja þeir ekki lesa þetta eða þá að þeir skilja ekki ensku. Ég veit ekki hvað plagar.

Þetta er glansbæklingur frá Evrópusambandinu sjálfu, svo þeir ættu ekki að óttast rangfærslur. Hann sýnir hinsvegar svart á hvítu hverskonar spuna, rangfærslur og óforskammaða lygi, fv. Utanríkisráðherra og nótar hans hafa farið með. Glæpsamlega að mínu mati.

Jón Steinar Ragnarsson, 24.2.2014 kl. 02:41

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Sæll, Jón Steinar;

Ég er algerlega sammála þér um, að  gögn Evrópusambandsins sjálfs taka af öll tvímæli um, að við inngöngu í ESB afhendum  við embættismönnum ESB í Brüssel forræði yfir fiskveiðilögsögu okkar o.fl., og út frá hagsmunamati og frá lýðræðissjónarmiði er slíkt fullkomlega fráleitt og eitt út af fyrir sig alger frágangssök.  Nú æsa margir sig yfir því, að verið sé að taka af sér lýðræðislegan rétt.  Það er misskilningur.  Rétturinn var tekinn af okkur árið 2009, þegar þáverandi þingmeirihluti felldi tillögu um þjóðaratkvæði um spurninguna, hvort sækja ætti um aðild að ESB.  Af þeim sökum stóð utanríkisráðherra umboðslítill í aðlögunarferli og varð ekkert ágengt með sérlausnir.  Enginn stjórnmálaflokkanna lofaði fyrir síðustu þingkosningar þjóðaratkvæði um að draga umsóknina til baka.  Það var lofað að halda ekki aðlögunarferlinu áfram án þjóðaratkvæðis.  Lýðskrumarar hafa kynt undir þann herfilega misskilning, að lofað hafi verið þjóðaratkvæði um að hætta við.  Það var stefna Sjálfstæðisflokksins fyrir Alþingiskosningarnar í fyrra að hætta við.  Svo hjálpi mér allir heilagir, ef ég hef misskilið bæði talað og ritað orð.

Með góðri kveðju /  

Með góðri kveðju /

Bjarni Jónsson, 24.2.2014 kl. 20:48

3 Smámynd: Samstaða þjóðar

Núna er að koma í ljós betur en nokkurn tíma áður, hvers konar ofstæki rekur ESB-sinna áfram í þjónkun sinni við þursann í austri. Þetta fólk virðist trúa því, að þeir sem barist hafa gegn innlimun í Evrópusambandið frá 16. júlí 2009 og flestir löngu fyrir þann tíma, muni núna taka upp stuðning við ESB. Hefur ótúlegur viðsnúningur Vinstri-grænna í ársbyrjun 2009, vegna ríkis-spena-drauma, svo gjörsamlegað umturnað hugsanagangi Samfylkingarfólks, að það heldur að vanhugsuð en hávær kattasmölun muni hafa einhver áhrif á sjálfstæðissinna ?

 

Nú ættu Alþingismenn Samfylkingar og fylgifiskar þeirra að hugleiða dóm kjósenda í síðustu kosningum til Alþingis. ESB-aðildin var megin mál kosninganna og dómur þjóðarinnar var skýr. Íslendingar vilja ekki láta innlimast í Evrópusambandið, minnugir hvernig konungssambandið við Danmörku reyndist. Evrópusambandið er ekki glæst fyrirmynd í dag og það eru einungis þjóðir Austur-Evrópu, sem þjáðust undir kommúnismanum, sem þangað leita.

 

Það er rétt lýsing hjá Bjarna að nefna framferði Samfylkingar og fylgifiska þeirra skrípaleik. Til dæmis býsnast stjórnarandstaðan yfir 25 milljón króna kostnaði við gerð skýrslu Hagfræðistofnunar Háskólans. Þó vita allir að ESB-leiðangurinn kostaði milljarða og var þó öllum hugsandi mönnum ljóst að um gönuhlaup var að ræða. Meira að segja Evrópusambandið kvartar undan tilgangslausum samræðum við Össur Skarphéðinsson og kostnaði sem hefði betur verið varið til að sundra Úkraínu, með sama hætti og gert var við Júgóslavíu.

 

Loftur Altice Þorsteinsson.

 

Samstaða þjóðar, 26.2.2014 kl. 23:00

4 Smámynd: Bjarni Jónsson

Sæll, Loftur;

Í umræðunum um skýrslu HHÍ er málefnafátækt stjórnarandstöðu himinhrópandi m.v. stærð málsins, þ.e. hvort Ísland eigi að verða hluti ríkjasambands aftur.  Mín skoðun er sú, að uppivöðsluseggirnir á þingi úr röðum Samfylkingar og Bjartrar framtíðar vilji, að landið gangi skilyrðislaust í ESB, og þess vegna er ekki hægt að halda uppi vitrænni umræðu við þetta fólk um skýrsluna góðu.  Þau hafa engan hug á henni og hafa ekkert kynnt sér hana fremur en annað efni um ESB.  Þess vegna er blekkingaleikur Össurar um "sérlausnir".  Þær eru hugarórar hans, en Füle er ekki til viðræðu um slíkt. 

Með góðri kveðju /

Bjarni Jónsson, 27.2.2014 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband