Hvaða vandamál á ACER að leysa hérlendis ?

Morgunblaðið birti 9. ágúst 2018 frétt á bls. 20 um raforkuverð til almennings í 33 Evrópulöndum, eins og það er reiknað af Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat.  Einingin er cEUR/kWh (evrusent á kílówattstund), og trónir Belgía efst með 28,5 og Kósóvó er lægst með 6,6.  Ísland er í 21.-23. sæti með 12,4 cEUR/kWh eða 15,5 ISK/kWh m.v. 125 ISK/EUR.  Það eru 20 ESB ríki fyrir ofan Ísland og 3 fyrir neðan.  Ísland stendur vel að vígi í þessum samanburði, og það er mjög ólíklegt, að innleiðing Þriðja orkumarkaðslagabálks ESB á Íslandi mmundi leiða til lækkunar á raforkuverði hérlendis, því að samkeppnisþátturinn, raforkuvinnslan sjálf, spannar aðeins um 40 % af ofangreindu verði á Íslandi.  

Þvert á móti getur þessi innleiðing haft skaðleg áhrif hérlendis, því að markaðskerfi ESB/ACER letur fremur en hvetur íslenzk orkufyrirtæki til að fjárfesta í nýjum virkjunum, og þar af leiðandi eykst hættan á afl- og orkuskorti hér með þeim mikla samfélagslega kostnaði, sem hann hefur í för með sér.  Ástæðan er sú, að vinnslukostnaður nýrra virkjana á Íslandi er hærri en fyrri virkjana, öfugt við stöðuna í ESB-löndunum, og þar af leiðandi versnar samkeppnisstaða þeirra, sem hérlendis reisa nýjar virkjanir í orkumarkaðskerfi ESB.

Ef innleiðing Þriðja orkumarkaðslagabálks ESB á Íslandi leiðir til lagningar aflsæstrengs til útlanda, en slíkur er í framvinduskýrslu ACER frá 07.07.2017, "Consolidated Report on the progress of Electricity and Gas Projects of Common Interests for the year 2016", skráður á rannsóknarstigi, þá er alveg áreiðanlegt, að raforkuverð á Íslandi mun hækka verulega, bæði vegna aukinnar eftirspurnar, fjölda nýrra virkjana og vegna nauðsynlegrar eflingar flutningskerfisins til að flytja raforkuna að sæstrengnum. Sá kostnaður lendir á notendum innanlands samkvæmt reglum ESB/ACER.  

Raforkukerfið á Íslandi er allsendis ófullnægjandi, en markaðshagkerfi ESB/ACER leysir engan veginn úr þeim vanda, því að mestu vandkvæðin eru bundin við einokunarstarfsemina.  Flutningskerfi Landsnets annar ekki núverandi raforkuþörf á nokkrum stöðum og annar ekki þörfum orkuskiptanna, nema á einstaka stað.  Áreiðanleika flutningskerfisins er víða ábótavant, og áreiðanleika dreifikerfanna er mjög víða ábótavant.

Þann 8. ágúst 2018 varð straumlaust í 9 klst samfleytt í Hveragerði, sem er 2300 manna bæjarfélag með fjölbreytta atvinnustarfsemi. Skammhlaup varð í jarðstreng.  Ljóst er, að varnir aðalspennisins í aðveitustöð Hveragerðis hafa verið ranglega stilltar eða bilaðar, því að þetta strengskammhlaup leiddi til bilunar aðalspennisins.  Það er glæfralegt og óviðunandi fyrir bæjarfélag á borð við Hveragerði, að bilun í aðalspenni geti leitt til langvarandi straumleysis.  Í aðveitustöð Hveragerðis verður að búa svo um hnútana, að ein bilun geti ekki valdið meira en einnar klst straumleysi að hámarki.  Til þess þarf annar eins spennir að vera tilbúinn til innsetningar, ef hinn rofnar frá kerfinu.  

Frétt Morgunblaðsins af þessum atburði 9. ágúst 2018,

"Engin starfsemi í níu klukkustundir",

hófst þannig:

""Samfélagið lamaðist algjörlega, og maður sá, hversu virkilega háð við erum rafmagninu", segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, um rafmagnsleysi, sem kom upp í bænum í gær og stóð yfir í um 9 klukkustundir. Rafmagn er nú komið á í bænum og allt komið í samt lag.  Spurð um, hvort rafmagnsleysið hafi valdið miklu tjóni, kveður Aldís já við.  Nefnir hún í því samhengi fyrirtæki, sem urðu af viðskiptum í kjölfar rafmagnsleysins."

Þá var viðtal við kynningarstjóra RARIK, sem er dreifingarfyrirtæki Hvergerðinga, Rósant Guðmundsson:

"Að sögn Rósants geta bilanir í aflspennum komið upp, hvenær sem er.  Með réttu viðhaldi sé bilanatíðni þeirra hins vegar afar lág. [Hér er sá hængurinn á, að "rétt viðhald" verður ekki framkvæmt, ef ekki er hægt að taka spenninn úr rekstri án straumleysis hjá notendum.  M.a. þess vegna eru 2 spennar nauðsynlegir, og hægt á að vera að flytja álagið á milli þeirra án straumleysis hjá notendum - innsk. BJo.]

"Aflspennar geta bilað, hvenær sem er.  Ef sagan er samt skoðuð, kemur í ljós, að með réttu viðhaldi er tíðni bilana lág.  [Rétt viðhald felur líka í sér réttar stillingar liðaverndar og prófanir á liðavernd - innsk. BJo.]  Í ljósi þess, hve dýrir aflspennar eru, þá er iðulega ekki gert ráð fyrir tvöföldu öryggi með aukaspenni á hverjum stað, heldur reynt að hafa tiltækan varaspenni, sem má flytja á svæðið, þegar þörf krefur", segir Rósant."

Fyrir yfir 2000 manna notendahóp er þetta einfaldlega rangt mat.  Kostnaður þeirra af slíku straumleysi réttlætir fullkomlega tvöfalt kerfi.  RARIK verður að gera meiri kröfur til sín um gæði þjónustunnar en þessi ummæli gefa til kynna, og sveitarfélagið ætti að krefjast nákvæmrar greiningar á þessu atviki og á  kostnaðinum, sem tvöföldun í þessu tilviki mundi hafa í för með sér fyrir notendur.

Elías Elíasson, sérfræðingur í orkumálum, skrifaði afar skilmerkilega grein í Morgunblaðið þann 9. ágúst 2018 um reginmun á raforkukerfi Íslands og ESB-landanna, sem gerir það að verkum, að það er ekki hægt að beita markaðsaðferðum ESB/ACER á íslenzka raforkumarkaðinn án þess að valda atvinnulífinu hér og öllum almenningi skakkaföllum. Rökrétt ályktun af þeirri niðurstöðu er, að Þriðji orkumarkaðslagabálkur ESB á ekkert erindi inn í íslenzka löggjöf.  Íslendingar eru síður en svo bundnir af samþykktum á löggjafarsamkomum annarra EFTA-ríkja á þessari framandi ESB-löggjöf, og Alþingi ætti því hiklaust að synja þessu máli samþykkis, þegar það kemur þar til afgreiðslu.

Lokakafli téðrar greinar, 

"Markaðstrú og raunveruleiki", 

hljóðaði svo:

"Við þær aðstæður, sem hér eru, getur óheftur markaður samkvæmt forskrift ESB ekki tryggt notendum nægilegt öryggi og lágt orkuverð án aðkomu stjórnvalda.  Allt þetta merkir líka, að hægt verður að setja spurningar við það, hvað raforkumarkaður hér getur orðið frjáls í raun, en samt verður að reyna.  Það má ekki gefast upp á því að nýta markaðslögmálin til að auka hagkvæmni í raforkuvinnslu og flutningi til hagsbóta fyrir almenna notendur raforku í landinu.

Eins og kemur fram í forsendukafla tilskipunar ESB nr 75/2009, þá er ein meginástæða fyrir tilurð hennar tregða einhverra innan ESB til að setja þær reglugerðir og leggja í þær fjárfestingar, sem þarf til að mynda frjálsan, nægilega virkan markað yfir landamæri innan bandalagsins.  Á þessu er tekið í tilskipuninni, með því að hvert ríki ESB skal stofna embætti landsreglara, og hafi þeir með sér samstarf, sem ný stofnun, ACER, heldur utan um.  Þannig fær þessi stjórnarstofnun ESB sterkt áhrifavald inn í raforkukerfi hvers lands, framhjá öllum öðrum stjórnvöldum og beitir því til að samræma reglugerðir þeirra.  Þetta leysir engin okkar vandamála, nema síður sé."

Landsreglari ESB yfir raforkumálum á Íslandi yrði algerlega einstæður í sögu stjórnskipunar á Íslandi frá 1. desember 1918.  Stofnun þessa embættis felur í sér opinbert valdframsal til yfirþjóðlegrar stofnunar, sem er Stjórnarskrárbrot á Íslandi.  Þegar af þeirri ástæðu ber Alþingi að hafna væntanlegri þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um innleiðingu umrædds lagabálks.  

Kerfi ESB er tæknilega ófært um að lækka orkuverð á Íslandi og samtímis að tryggja nægt framboð raforku.  Hér þarf að leggja auðlindagjald á orku frá virkjunum 20 ára og eldri til að mynda hvata til nýrra virkjana.  

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Sæll Bjarni!

Úr þinni grein:

"Ef innleiðing Þriðja orkumarkaðslagabálks ESB á Íslandi leiðir til lagningar aflsæstrengs".

----------------------------------------------------------------------

Innleiðing þriðja orkumálapakkinn mun væntanlega ekki leiða til lagningar sæstrengs.

En sitjandi ríkisstjórn þarf að gera það upp við sig hvort að hún vilji að sæstrengur verði lagður. 

=Að negla ákvörðuna niður Y/N?

Ef NEI=Þá mun ACER væntanlega ekki skipta neinu máli hér á landi þar sem að það er engin tengin við ESB-Löndin.

Ef JÁ=Þá fyrst myndi ACER öðlast einhverskonar virkni hér á landi og þá væri best að kjósa um allan EES-samingin upp á nýtt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Jón Þórhallsson, 7.9.2018 kl. 10:43

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Sæll, Jón Þórhallsson;

Ég var með eftirfarandi sviðsmynd í huga: Fjárfestir sækir um leyfi fyrir lagningu sæstrengs og tengingu hans við íslenzka raforkukerfið.  Orkustofnun getur ekki með réttu hafnað þessari umsókn, ef öll skilyrði Landsreglarans, sem er sá aðili, sem skilgreinir kröfurnar, eru uppfyllt í umsókninni.  Hafni Orkustofnun samt, kærir fjárfestirinn vafalítið úrskurðinn til ESA.  Málið verður alfarið úr höndum íslenzka ríkisvaldsins, ef/þegar Alþingi samþykkir Þriðja orkumarkaðslagabálkinn.  

Landsreglarinn verður æðsta vald á Íslandi í málefnum raforkuflutninga og raforkumarkaðar, þótt enginn sé sæstrengurinn.  Hann mun hafa mikið áhrifavald við mótun innlenda raforkumarkaðarins, þótt hann geti ekki skipað fyrir um, að hér skuli vera uppboðsmarkaður samkvæmt forskrift ESB, fyrr en umsókn um sæstreng hefur verið samþykkt.  

Á frjálsum samkeppnismarkaði er hægt að beita reglum ESB um markaðsmisbeitingu ríkisfyrirtækis með yfirþyrmandi markaðshlutdeild.  Það er þess vegna alrangt, að Landsreglari/ACER fái engin völd hér fyrr en ríkisstjórnin ákveði, að hingað verði lagður sæstrengur.  Þetta snýst um framsal íslenzks ríkisvalds til stofnunar á vegum framkvæmdastjórnar ESB.  Klárt Stjórnarskrárbrot.  

Bjarni Jónsson, 7.9.2018 kl. 18:21

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þarna er væntanlega um að ræða svo stóra framkvæmd að slík framkvæmd væri alltaf háð leyfi LANDSVIRKJUNAR / og þar með RÍKISSTJÓRNINNI: 

Þar sem nær allar virkjanir sem að skipta einhverju máli hér á landi

eru í eigu RÍKISINS, þannig að þá gæti hinn "væntanlegi fjárfestir"

hvergi stungið í samband hér á landi nema með leyfi ríkissins.

Viljinn til að selja orkuna úr landi þarf að vera til staðar.

---------------------------------------------------------------

Vil sitjandi ríkisstjórn selja raforku úr landi

eða vil hún nýta hana betur hringinn í kringum landið?

=Hvar er stefna þessarar ríkisstjórnar í þessu máli?

Jón Þórhallsson, 7.9.2018 kl. 18:41

4 Smámynd: Bjarni Jónsson

Landsvirkjun má ekkert skipta sér af málefnum flutningskerfis raforku samkvæmt Öðrum orkumarkaðslagabálki ESB, sem hér var lögleiddur 2004.  Landsvirkjun veitir engin virkjanaleyfi.  Það er sameiginlegur markaður innan EES, þar sem engin mismunum má eiga sér stað.  Þess vegna eiga orkuvinnslufyrirtæki, t.d. Vattenfall í Svíþjóð eða E.On í Þýzkalandi sama rétt og Landsvirkjun til rannsóknar- og virkjanaleyfa hérlendis.  Fái einhverjir fjárfestar áhuga á að leggja hingað sæstreng, þá hafa þeir fundið ábatasama leið til að nota hann.  Þá er um leið líklegt, að ásókn stóraukist í að fá að virkja hér vatnsföll og jarðgufu fyrir erlendan markað.  Ríkisstjórnin verður einfaldlega algerlega undir hælnum á ESA í þessum efnum, sem mun beita á hana keyri strangra laga um frjálsa samkeppni.  Auðlindastjórnun hérlendis verður þar með í höndum hins sameiginlega raforkumarkaðar EES, sem mun beina raforkunni til hæstbjóðenda, en Íslendingar verða áhorfendur, eins og var þeirra hlutverk á fyrstu áratugum erlendrar togaravæðingar, þegar erlendir togarar veiddu hér inni í fjörðum og flóum landsins og fluttu aflann utan. 

Um stefnu ríkisstjórnarinnar í þessu máli hefur ekkert heyrzt, og ég er ekki viss um, að hún hafi enn mótað nokkra stefnu.  Valdið er nú hjá Alþingismönnum.  Þeir fá eitt tækifæri til að stöðva þessa ósvinnu, en síðan verða þeir ekki spurðir, nema þá um úrsögn úr EES. 

Bjarni Jónsson, 8.9.2018 kl. 13:28

5 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Við skulum muna að það þurfti ekki sæstreng, til að við værum látnir selja rafmagn

frá kjarnorku, kolum, og mengunar aflátsbréf og reyndar allt sem hægt var að nota

til að ná peningum af fólkinu.

Gangi ykkur allt í haginn.

Egilsstaðir, 08.09.2018  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 8.9.2018 kl. 13:58

6 Smámynd: Bjarni Jónsson

Sæll, Jónas;

Sala upprunavottorða héðan er hneyksli, því að þau eru ætluð til að hvetja til að virkja endurnýjanlega orku í stað jarðefnaeldsneytis.  Hér er ekkert val á milli slíks, heldur er öll virkjuð orka endurnýjanleg innan þeirra marka, sem jarðgufan endurnýjast í forðabúri virkjananna.  Þessi sala kemur mörgum fyrirtækjum í hópi raforkukaupenda illa, því að á rafmagnsreikningi þeirra stendur, að meirihluti nýttra orkulinda sé kjarnorka, kol og jarðgas.  Þetta er mjög slæmt fyrir markaðssetninguna.

Bjarni Jónsson, 8.9.2018 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband