Stjórnvöld og Stjórnarskráin

Arnaldur Hjartarson, aðjunkt við Lagadeild Háskóla Íslands, ritaði þann 2. júní 2018 grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni:

"Stjórnarskráin, EES-samningurinn og reglur um persónuvernd".

Tilefni greinarinnar er frumvarp ríkisstjórnarinnar um innleiðingu nýs umdeilds lagabálks ESB um persónuvernd. Þessi lagabálkur og krafa ESB gagnvart EFTA-ríkjunum um upptöku hans án tveggja stoða fyrirkomulags er enn ein staðfesting á stefnubreytingu ESB til hins verra fyrir EFTA, sem ekki dugar að láta sem ekkert sé.

Það er fengur að grein fræðimanns á sviði lögfræði um þetta viðkvæma mál. Of lítið bitastætt hefur verið í þeim efnum. Það er mikill samhljómur með þessari grein aðjunktsins og greinargerð norsku andófssamtakanna "Nei til EU", sem birtist hér á vefsíðunni 2. júní 2018 undir heitinu "Persónuvernd með fullveldisframsali", https://bjarnijonsson.blog.is/blog/bjarnijonsson/entry/2217736 .

Það er ekki hægt að bera í bætifláka fyrir þetta frumvarp með þeirri viðbáru, að fullveldisframsalið, sem í því felst breyti litlu fyrir daglegt líf fólksins í landinu, sé "lite inngripende", eins og Norðmenn segja, sbr niðurlagsorð aðjunktsins:

"Þær reglur, sem felast í reglugerð ESB um persónuvernd, eru til þess fallnar að hafa víðtæk áhrif á íslenzkt samfélag.  Alþingi gefst nú tækifæri til að ræða hið nýja frumvarp.  Vonandi gefst nægur tími til að kanna, hvort gætt hafi verið fyllilega að ákvæðum stjórnarskrárinnar í samningaviðræðum ríkisins við viðsemjendur þess á vettvangi sameiginlegu EES-nefndarinnar."

Þetta er mjög varfærnislega orðað, þótt tilefnið sé ærið, því að í augum leikmanna blasa við gróf stjórnarskrárbrot, ef af þessari innleiðingu verður.  Þar að auki er téðum samningaviðræðum ekki lokið, því að Sameiginlega EES-nefndin hefur enn ekki lokið umfjöllun þessa máls.  Þar af leiðandi hefur ríkisstjórnin farið fram úr sér með framlagningu þessa frumvarps.  ESB á líka eftir að samþykkja aðlaganir gagnvart EFTA.  Frumvarp þetta er vanbúið og ótækt inn í lagasafn Íslands.  Alþingi ber þess vegna að vísa því aftur til ríkisstjórnarinnar eða hreinlega að fella það.  

Aðjunktinn sýnir fram á, að í frumvarpinu felst bæði framsal framkvæmdavalds og dómsvalds til yfirþjóðlegra stofnana, þar sem Ísland á enga aðild.  Hvorki ríkisstjórn né Alþingi hafa umboð til slíks gjörnings:  

"Þessari stofnun ESB [EDPB-Persónuverndarráðinu-innsk. BJo] verður í einhverjum tilvikum heimilað að gefa Persónuvernd bindandi fyrirmæli.  Í þessu felst fyrirætlun um framsal framkvæmdavalds.  

Ákvarðanir stofnunar ESB virðist einungis mega bera undir Evrópudómstólinn, en íslenzka ríkið á ekki aðild að þeim dómstóli.  Þá mun ætlunin með reglugerð ESB jafnframt vera sú að binda hendur íslenzkra dómstóla, þegar kemur að mati á lögmæti þeirra ákvarðana Persónuverndar, sem tengjast ákvörðunum stofnunar ESB, sbr 143. mgr. formálsorða reglugerðarinnar.  Ef þetta er rétt, þá felst í þessu fyrirætlun um framsal dómsvalds."

Það er glapræði að grafa undan réttarríkinu með því að halda áfram á þessari braut spægipylsuðferðar við sniðgöngu íslenzku Stjórnarskrárinnar.  Stjórnvöld verða að leita sér fullnægjandi umboðs áður en lengra er haldið.  Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvert mál af þessu tagi fullveldisframsals er ein leið til að afla fullnægjandi lýðræðislegs umboðs fyrir þessum og öðrum slíkum gjörningum.  Önnur leið er stjórnarskrárbreyting, sem veitir Alþingi slíkar heimildir með skilyrðum, t.d. með ákvæðum um aukinn meirihluta, þegar framsal fullveldis ríkisins á sér stað til yfirþjóðlegra stofnana, þar sem Ísland ekki er fullgildur aðili. 

Festung Europa


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég tek undir með þér að það þarf að taka á þessum framsalsheimildum. Þjóðin verður að vera með í slíkum ákvörðunum hverju nafni sem þær nefnast.

Ég styð þjóðaratkvæði.

Ragnhildur Kolka, 4.6.2018 kl. 13:24

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Þakka góða grein Bjarni. 

 Það sem helst stendur upp á hérlenda embættis og þingmenn, er að fylgjast betur með því þegar reglugerðarútungunarvélin í Bulluseli drullar úr sér drögum að regluverkum. Útungunarvél þessi er með stanslausar hríðir allan ársins hring og ungar út fleiri reglugerðum en afkastamestu skordýradrottningar Jarðarinnar, enda stanslaust sædd af óseðjandi möppudýrum evrópusambandsins.   

 Þetta er að sjálfsögðu með vilja gert, því ekkert ríki hefur yfir að ráða nógu miklum mannskap, til að fylgjast með óskapnaðinum úr saurugum iðrum Bullusels. Á þessu lifir Bullusel. Tímamörk eru sett og ef ekki eru gerðar athugasemdir við óskapnaðinn, verða fórnarlömbin að samþykkja á þjóðþingum sínum, sökum þess að fyrrgerðir samningar kveða á um slíkt.

 Að á Íslandi skuli fyrirfinnast fólk sem telur þetta í lagi, er með hreinum ólíkindum. Að ráðherra Sjálfstæðisflokksins telji þetta nánast engu máli skipta, er sorglegra en tárum taki.

 Að það skuli þurfa að "ræða þetta eitthvað" er ótrúlegt. 

 Verði þetta samþykkt, er ekki einungis Snorrabúð stekkur, heldur Sjálfstæðisflokkurinn ljótur flekkur.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 4.6.2018 kl. 22:12

3 Smámynd: Bjarni Jónsson

Því hefur verið haldið fram, að æskilegt sé fyrir Ísland, að embættismenn landsins fylgist betur með málum á undirbúningsstigi hjá ESB.  Þetta er óraunhæft.  Það þyrfti að fjölga í utanríkisþjónustu um marga tugi manna til að anna öllu flóðinu.  Þeir mundu þó ekki fá að fylgjast með á frumstigum máls.  Þegar samstaða hefði náðst á milli ESB ríkjanna, nenna búrókratar ESB ekki lengur að taka nýja fundalotu með EFTA-ríkjunum.  Þetta viðhorf um aukin áhrif á þessum vettvanfi er óskhyggja.

Bjarni Jónsson, 5.6.2018 kl. 20:27

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Bjarni og takk fyrir að standa vaktina.

Það sem mér tekst ekki með nokkru móti að skilja er hvers vegna þingmenn okkar, sem sem starfa í okkar umboði, eru tilbúnir að samþykkja eitthvað sem hugsanlega stangast á við stjórnarskrá, hvað þá það sem augsýnilega gerir slíkt. Hefði haldið að ef um efa er að ræða, væri stjórnarskráin látin njóta hans.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 5.6.2018 kl. 20:54

5 Smámynd: Bjarni Jónsson

Persónuverndargjörð ESB er prófsteinn á Alþingi varðandi innleiðingu á gjörðum, sem fela í sér afdráttarlaust framsal ríkisvalds til yfirþjóðlegrar stofnunar.  Renni þessi meingallaða gjörð í gegn, er hætt við, að reynt verði að vísa til þess sem fordæmisgefandi, þótt hvert mál sé eintakt.  Það má líka líta á þetta þannig, að í hvert sinn, sem Stjórnarskráin er fótum troðin, sé rekinn nagli í líkkistu EES-samningsins.  

Bjarni Jónsson, 6.6.2018 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband